Fréttablaðið - 24.09.2004, Side 49
TORFÆRA Haraldur Pétursson
tryggði sér Íslandsmeistaratitil-
inn í torfæruakstri í lokaumferð
Íslandsmeistaramótsins sem ekin
var á Hellu á dögunum. Var þetta
þriðja árið í röð sem Haraldur
verður Íslandsmeistari og í fimm-
ta skiptið sem hann hampar þess-
um titli. Afrek Haraldar nálgast
nú afrek Gísla Gunnars Jónsson-
ar, sem hefur orðið Íslandsmeist-
ari sex sinnum, þar af fimm sinn-
um í röð frá árinu 1997 til 2001.
Allar brautirnar í þessari keppni
voru mjög erfiðar og reyndu
virkilega á ökutæki og ökumenn.
Margir ökumannanna áttu í erfið-
leikum vegna bilana en vafalaust
hafa vonbrigðin verið sárust hjá
Sigurði Þór Jónssyni og hans
mönnum en Sigurður sprengdi
bæði vél og skiptingu í fyrstu
brautinni.
Ljómandi dagur
„Þetta var ljómandi dagur,“
sagði Haraldur Pétursson eftir
keppnina. „Ég náði forskoti strax
í fyrstu brautinni en missti það
svo niður í 5. og 6. braut en þar
lenti ég tvisvar út úr brautinni.
Mér tókst svo að vinna forskotið
upp aftur í ánni. Þá var ég kominn
með 45 stiga forskot á næsta
mann. Svo tókst mér að aka alla
mýrina og komst þá vel upp fyrir
hina. Mýrin var svakalega erfið í
dag og hefur hún varla verið
erfiðari. Ég var sá eini sem gat
ekið mýrina alla,“ sagði Haraldur,
sem lauk keppninni með 315 stiga
forskoti.
„Ætli það sé ekki vegna þess
að ég er á Musso, það er eina
skýringin sem mér dettur í hug,“
svaraði Haraldur þegar hann var
inntur eftir skýringum á því
hvers vegna honum tókst að aka
mýrina alla þrátt fyrir að fara
síðastur í þá braut.
„Mýrin var mjög erfið núna.
Þegar ég var kominn að pyttinum
þar sem flestir festu sig var ég
búinn að rífa öll plastfilmulögin
af gleraugunum. Fljótlega eftir
það varð ég að taka af mér gler-
augun og ég hafði ekki undan að
blikka augunum og reyna að
byrgja fyrir aurinn sem jóst yfir
mig. Oft hefur verið hægt að
sneiða framhjá pyttunum í braut-
inni en nú var það ekki hægt.
Maður varð bara að láta vaða í þá
og sem betur fer var Mussoinn að
vinna vel núna,“ sagði Haraldur,
sem hefur nú landað báðum tor-
færutitlunum, Íslandsmeist-
aratitlinum með miklum yfir-
burðum og heimsbikartitlinum
eftir harða keppni við öfluga
keppinauta frá Noregi og Svíþjóð.
Gunnar Gunnarsson á Trúðn-
um innsiglaði Íslandsmeistaratit-
ilinn í götubílaflokki þrátt fyrir
að hann lenti í 2. sætinu að þessu
sinni „Íslandsmeistaratitillinn
hefði mátt koma með 1. sætinu en
það gekk bara ekki betur en
þetta,“ sagði Gunnar eftir keppn-
ina.
„Það má segja að fimmta og
sjötta brautin hafi gert útslagið
hjá mér. Ég fer fyrstur í 5. braut-
ina og geri leiðina greiðfæra
fyrir hina. Þegar ég kem að enda-
hliði hennar kastast ég til hliðar
svo að ég næ ekki að fara al-
mennilega í gegnum hliðið, fer
eiginlega út úr brautinni svo að
ég fæ ekki fullt hús stiga þar. Ég
fer síðan síðastur í 6. brautina en
þá var búið að spóla barðið í enda
brautarinnar svo hrikalega að það
var eins og að keyra á steinvegg.
Ég kastaðist til og var að fara
fram af klettinum. Þá setti ég
Trúðinn í bakkgírinn og bakkaði
aftur niður. Ég vildi frekar gera
það en að eyðileggja bílinn. Í
mýrinni hafði ég lítið útsýni. Aur-
inn gekk yfir mig, ég varð að taka
af mér gleraugun en þá fylltust
augun af leir, ég sá ekkert og varð
að slá af. Maður tekur ekki séns-
inn á að keyra bara eitthvert út í
loftið,“ sagði Gunnar Gunnars-
son, sem er nú Íslandsmeistari í
götubílaflokki í þriðja sinn.
„Það er aðstoðarmönnum mín-
um og kostendum að þakka að ég
náði þessum titli, og kannski
pínulítið mér,“ sagði Gunnar að
lokum. JAK
Fimmti titillinn kominn í höfn
Haraldur Pétursson vann Íslandsmeistaratitilinn í torfæruakstri þriðja árið í röð á dögunum.
FÖSTUDAGUR 24. september 2004 33
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Ryan Giggs, leikmaður Manchest-er United, hefur tekið út tveggja
leikja keppnisbann og mun leika
með Wales gegn Englendingum 9.
október á Old Trafford. Giggs varð
uppvís að því að
gefa mótherja sín-
um olnbogaskot í
leik gegn Rússum á
EM í Portúgal fyrr á
þessu ári og missti
þar af leiðandi af
tveimur fyrstu leikj-
um Wales í und-
ankeppni HM.
Robbie Savage hefur einnig verið
valinn í lið Wales en verður ekki
með gegn Englendingum vegna leik-
banns. Savage hefur áfrýjað dómn-
um en ólíklegt er að honum verði
hnekkt.
Todd MacCull-och, leikmaður
Philadelphia 76ers í
NBA, tilkynnti ný-
lega að hann væri
hættur í körfubolt-
anum. MacCulloch
er kanadískur að
uppruna og lék þrjú tímabil með Six-
ers og eitt með New Jersey Nets.
Hann greindist með dularfullan
hrörnunarsjúkdóm fyrir rúmu ári
og hefur ekki leikið körfubolta síðan.
MacCulloch gekkst undir skurð-
aðgerð í byrjun þessa árs til að freista
þess að ná sér að nýju en náði eng-
um bata og ákvað því að láta gott
heita. „Maður getur ekki spáð fyrir
um svona lagað og því miður ráðum
við ekki alltaf örlögum okkar,“ sagði
MacCulloch.
Roy Keane hjáM a n c h e s t e r
United er þess full-
viss að liðið sé á
uppleið eftir að Rio
Ferdinand tók út 8
mánaða leikbann
vegna skróps í lyfja-
prófi. Ferdinand lék sinn fyrsta leik
eftir bannið gegn Liverpool á Old
Trafford fyrr í vikunni og var gömlu
erkifjendunum erfiður heim að
sækja. „Hann er mjög vel á sig kom-
inn líkamlega og er mikilvægur í vörn
liðsins,“ sagði Keane og bætti við að
fjarvera hans hefði valdið liðinu erf-
iðleikum, bæði á vellinum og hugar-
farslega séð. „Núna er hann kominn
aftur og þá getum við farið að spila
eins og menn.“
Bandaríski sprett-h l a u p a r i n n
Maurice Greene
hafði lítið að segja í
hinn öfluga Justin
Gatlin, sem
burstaði keppni í
100 metra hlaupi í
Yokohama í Japan í fyrrakvöld.
Greene varð uppvís að þjófstarti og
endaði í fimmta sæti í hlaupinu.
Gatlin, sem er núverandi ólympíu-
meistari, sigraði með yfirburðum á
9,97 sekúndum en Leonard Scott
varð í öðru sæti á 10,13. Þriðji var
heimamaðurinn Nobuharu Asahara
sem hreppti þriðja sætið á 10,2 sek-
úndum.
Gatlin var hæstánægður eftir
hlaupið og var sem fyrr með
skemmtilegar staðhæfingar. „Ég virð-
ist vera sá besti í dag og hlakka til að
koma hingað á næsta ári,“ sagði
Gatlin.
Sergio Garcia,kylfingurinn litríki
frá Spáni, sýndi og
sannaði að hann er
ekki peningaþyrstur
maður þegar kemur
að golfi. Hann
ákvað að taka ekki
þátt í HSBC World Match Play-mót-
inu í Wentworth og leika í staðinn á
Mallorca Classic í heimalandinu. Ein
milljón punda er í boði fyrir sigur-
vegarann í Wentworth en á Mallorca
eru aðeins 113 þúsund pund í boði
fyrir fyrsta sætið.
Þess má geta að Garcia er þriðji
kylfingurinn sem afboðar komu
sína því Tiger Woods og Phil
Mickelson hættu einnig við þátttöku
á mótinu.
Dajuan Wagner, leikmaðurCleveland Cavaliers í NBA, á ekki
sjö dagana sæla eftir að stjúpfaðir
hans var handtekinn og ákærður fyr-
ir fíkniefnabrot. Leonard Paulk,
stjúpfaðir piltsins, tilheyrir 14 manna
hópi sem er gefið að sök að hafa
skipulagt stóran eiturlyfjahring.
ÚRSLIT KEPPNINNAR
Sérútbúinn flokkur
1. Haraldur Pétursson, Musso 2000
2. Gunnar Egilsson, Cool 1685
3. Leó Viðar Björnsson 1620
4. Jónas Karl Sigurðsson, Batmann 1310
5. Ólafur Bragi Jónsson, Tómaur 1210
Götubílaflokkur
1. Ragnar Róbertss., Pizza 67 Willys 1655
2. Gunnar Gunnarsson, Trúðurinn 1330
3. Bjarki Reynisson, Dýrið 1295
4. Karl Víðir Jónsson, Team Frosti 1290
5. Pétur V. Pétursson, Sprautarinn 830
STAÐAN Í ÍSLANDSMEISTARA-
MÓTINU
Sérútbúinn flokkur
1. Haraldur Pétursson, Musso 46
2. Helgi Gunnarsson, Gæran 28
3. Leó Viðar Björnsson 19
4. Sigurður Þór Jónss., Toshiba Tröllið 16
5. Daníel Ingimundars., Green Thunder 11
6. Ólafur Bragi Jónsson, Tímaur 9
7. Björn Ingi Jóhannsson, Fríða Grace 9
8. Gunnar Egilsson, Cool 8
9. Gunnar Ásgeirss., The GoodYear Eagle 8
10. Jónas Karl Sigurðsson Batmann 4
Götubílaflokkur
1. Gunnar Gunnarsson, Trúðurinn 46
2. Ragnar Róbertss., Pizza 67 Willysinn 40
3. Bjarki Reynisson, Dýrið 27
4. Pétur V. Pétursson, Sprautarinn 20
5. Daníel Karlsson, Team Frosti 11
6. Karl Víðir Jónsson, Team Frosti 4
7. Loftur Matthíasson, Team Frosti 4
Hlynur Jónsson, Tasmaníu djöfullinn 2
ÍSLANDSMEISTARARNIR Gunnar Gunn-
arsson og Haraldur Pétursson voru léttir í
bragði eftir að hafa landað Íslandsmeist-
aratitlunum. Fréttablaðið/JAK