Fréttablaðið - 13.11.2004, Síða 2
2 13. nóvember 2004 LAUGARDAGUR
Útrás íslenskra fjárfesta:
Kaupa flaggskip
danskrar verslunar
VIÐSKIPTI Íslendingar hafa eignast
meirihluta í þekktasta vöruhúsi
Dana, Magasin Du Nord við
Kóngsins Nýjatorg í Kaupmanna-
höfn. Birgir Þór Bielvedt, sem
rekið hefur Domino's í Kaup-
mannahöfn, Baugur og Straumur
fjárfestingarbanki hafa keypt 69
prósent í TH. Wessel & Wett sem
rekur vöruhúsið. Munu fjárfest-
arnir gera yfirtökutilboð í kjöl-
farið. Kaupverð hlutarins er 4,8
milljarðar króna.
Magasin Du Nord var stofnað
1868 og var lengst af vöruhús
vöruhúsanna í Kaupmannahöfn.
Ætlun íslensku fjárfestanna er að
færa þetta flaggskip danskrar
verslunar til fyrri vegs og virð-
ingar.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var síðdegis í gær í Kaup-
mannahöfn lýstu seljendurnir
mikilli ánægju með íslensku fjár-
festana. Jyske Bank hefur um
skeið átt stóran hlut í félaginu og
fögnuðu aðrir eigendur því að
fjárfestir með þekkingu á smá-
sölu kæmi að félaginu. Mörg al-
þjóðleg verslunarfyrirtæki sýndu
félaginu áhuga, en seljendur
sögðu á fundinum að Íslending-
arnir hefðu haft þann hraða sem
þurfti til að ganga frá kaupunum.
Baugur er stærstur í hópi fjár-
festanna með 42 prósent, Straum-
ur er með þriðjung auk fjármögn-
unar kaupanna og Birgir með
fjórðung. Hugsanlegt er að fleiri
bætist í hópinn. - hh
Um milljón
í styrk á ári
Olíufélagið hefur styrkt stjórnmálaflokkana um eina milljón á ári
síðustu fimm ár. Skeljungur hefur styrkt flokkana um samtals
40,1 milljón á 12 ára tímabili. Forstjóri Olís svarar ekki skilaboðum.
STYRKIR Olíufélagið Esso hefur
styrkt alla stjórnmálaflokka
landsins um samtals eina milljón
króna á ári síðustu fimm ár, eða að
meðaltali um 980 þúsund krónur.
Skiptingin hefur ekki farið eftir
stærð flokkanna heldur verið
nokkuð jöfn. Styrkirnir hafa verið
veittir til flokkanna bæði á lands-
vísu og í sveitar-
stjórnarmálum.
S k e l j u n g u r
hefur hins vegar
veitt samtals
40,1 milljón
króna til stjórn-
málaflokkanna á
12 ára tímabili,
1 9 9 3 - 2 0 0 0 .
Styrkirnir eru
bæði í formi
keyptra auglýs-
inga og beinna
fjárstyrkja.
„Þessar fjár-
hæðir eru mest tilkomnar árin
1993-2000 en hafa snarminnkað
síðustu ár. Frá 2000 hefur þetta
eingöngu verið í formi auglýsinga
en við höfum ekkert styrkt stjórn-
málaflokkana á þessu ári,“ segir
Gunnar Karl Guðmundsson, for-
stjóri Skeljungs.
Fréttablaðið óskaði eftir upp-
lýsingum um styrki olíufélag-
anna til stjórnmálaflokkanna
fyrr í vikunni og bárust síðustu
svör í gærkvöldi. Greinilegt var
að spurningin var mjög við-
kvæm og að stjórnendurnir
töldu að um trúnaðarmál væri að
ræða. Þeir töldu að djúpt væri á
þessar upplýsingar í bókhaldi
félaganna en bæði Skeljungur og
Olíufélagið Esso létu starfsmenn
sína kafa ofan í málið. Einar
Benediktsson, forstjóri Olíu-
verslunar Íslands, svaraði hins
vegar ekki beiðninni sem var
send honum í tölvupósti sam-
hliða ítrekuðum tilraunum til að
ná tali af honum í síma.
Olíufélagið hefur engar sér-
stakar reglur um styrkveitingar
til stjórnmálaflokka en Hjörleifur
Jakobsson, forstjóri Olíufélags-
ins, segist telja eðlilegt að félagið
markaði sér stefnu í þessum efn-
um. Gunnar Karl segir hins vegar
þá reglu hafa gilt frá því hann tók
við starfi forstjóra fyrir rúmu ári
síðan að engir styrkir væru veitt-
ir til stjórnmálaflokka.
ghs@frettabladid.is
Hryðjuverkaæfing:
Viðbrögð
samhæfð
LÖGREGLA Þrír fulltrúar Víkinga-
sveitarinnar fylgdust með æfingu
norrænna lögregluyfirvalda nýlega
þar sem verið var að æfa og sam-
hæfa viðbrögð og samstarf við árás
hryðjuverkamanna á farþegaskip á
siglingu milli landanna þar sem gert
var ráð fyrir að hryðjuverkamenn-
irnir væru með sprengju um borð.
„Þarna var fyrst og fremst verið að
æfa skipulag Norðurlandanna og
möguleika þeirra á samvinnu við
hryðjuverk á sjó,“ segir Jón Bjart-
marz, yfirlögregluþjónn hjá ríkis-
lögregluembættinu. „Um svokallaða
skrifborðsæfingu var að ræða. Þetta
var æfing fyrir ríkislögreglustjóra-
embættin í þessum löndum.“ - ghs
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Viðskiptaráðherra telur koma til greina að
Ríkisendurskoðun geri athugun á styrkjum
til stjórnmálaflokka.
Viðskiptaráðherra:
Kallar ekki á
endurskoðun
STJÓRNMÁL Valgerður Sverrisdótt-
ir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
telur koma til greina að Ríkis-
endurskoðun skoði styrki til
stjórnmálaflokka sem fá framlög
á fjárlögum en hyggst þó ekki
beita sér fyrir því. Hún sér ekki
ástæðu til þess að fyrirtæki hætti
að styrkja stjórnmálaflokka.
Valgerður gagnrýnir Svan
Kristjánsson, prófessor við Há-
skóla Íslands, fyrir ummæli um
að Olíufélagið hafi greitt laun
starfsmanns hjá Framsóknar-
flokknum. „Mér finnst fyrir
neðan allar hellur að prófessor við
Háskóla Íslands breiði út gamla
kjaftasögu sem enginn veit hvort
er sönn eða login. Mér fannst það
bara vera honum og Háskólanum
til minnkunar.“ - ghs
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
„Það segir einhvers staðar í ljóði:
Dagur ei meir. En að öllu gamni
slepptu kemur auðvitað dagur eftir
þennan dag.“
Dagur B. Eggertsson sagði í viðtali við Fréttablaðið
að Alfreð Þorsteinsson, formaður borgarráðs,
hefði boðið sér starf borgarstjóra eftir að Þórólfur
Árnason sagði af sér.
SPURNING DAGSINS
Alfreð, kemur ekki dagur eftir þenn-
an dag?
HANDTEKNIR ÍRAKAR
Hermenn fara hús úr húsi í leit að víga-
mönnum sem þar leynast. Þar fara fram
einhverjir hættulegustu bardagar orrust-
unnar um Falluja.
Falluja í Írak:
Hertekin
að mestu
ÍRAK, AFP/AP Bandarískar og íraskar
hersveitir hafa náð 80 prósentum
Falluja á sitt vald, segja yfirmenn
Bandaríkjahers. Enn er þó barist
hús úr húsi á svæðum sem hermenn
eru sagðir hafa náð á sitt vald. Þar
mun verið að leita uppi og fella
vígamenn sem höfðu falið sig þegar
fremstu hersveitirnar sóttu fram.
Í gær var dreift upptöku þar sem
hryðjuverkaforinginn Abu Musab
al-Zarqawi hvatti stuðningsmenn
sína í borginni til að halda barátt-
unni áfram.
Íbúar Falluja reyna að flýja
borgina, en körlum verður lítið
ágengt því hermenn skipa þeim að
snúa aftur, einungis konum og börn-
um er leyft að fara. ■
Ríkisendurskoðandi:
Þarf að setja lög
RÍKISENDURSKOÐUN Sigurður Þórð-
arson ríkisendurskoðandi segir
að það sé ekki í verkahring
Ríkisendurskoðunar að gera at-
hugun á fjármálum flokkanna
eða styrkjum til þeirra. Ríkis-
endurskoðun geti í besta falli
óskað eftir greinargerðum um
það hvernig flokkarnir hafi ráð-
stafað styrkjum frá ríkinu. Hann
telur hugsanlegt að Ríkisendur-
skoðandi geti tekið ákvörðun um
að skoða þessi mál en langlíkleg-
ast sé að breyta þurfi lögum um
starfsskyldur Ríkisendurskoð-
unar til að stofnunin geti rann-
sakað styrki fyrirtækjanna, í
þessu tilviki olíufélaganna, til
flokkanna.
„Við heyrum undir Alþingi. Ef
Alþingi setur á okkur einhverjar
starfsskyldur í lögum þá verðum
við að framfylgja þeim. Ég hef
ekkert velt þessu fyrir mér en ég
myndi halda að Alþingi þyrfti að
breyta lögunum, það er ekkert
vit í öðru. Annars hef ég enga
skoðun á þessu og vil ekki hafa
neina. Þetta er umræða sem fer
fram fyrir utan okkur,“ segir
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi.
- ghs
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON
Ríkisendurskoðandi telur að breyta þurfi lögum til að Ríkisendurskoðun geti rannsakað
styrki til flokkanna.
HJÖRLEIFUR
JAKOBSSON
Olíufélagið Esso
hefur styrkt stjórn-
málaflokkana um
ríflega milljón á ári
síðustu árin.
SKELJUNGUR
Skeljungur hefur styrkt stjórnmálaflokkana um rúmlega 40 milljónir á 12 ára tímabili.
MARÍJÚANA Á SVEITABÆ Lögregl-
an á Selfossi fann í gær 120
grömm af maríjúana við leit á
sveitabæ í Árnessýslu. Maður á
sextugsaldri játaði að eiga efnið
og sagði það ætlað til einka-
neyslu. Málið telst upplýst.
FANN TIL Í BAKI Maður var flutt-
ur á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja með verk í baki og í hálsi
eftir aftanákeyrslu á Hringbraut
á móts við Samkaup í Reykjanes-
bæ í gær.
MAGASIN DU NORD
Íslendingar hafa eignast þetta fræga vöru-
hús.
■ NORÐURLÖND
NOKKUR ÞÚSUND STRANDA-
GLÓPAR SAS-flugfélagið þurfti að
aflýsa um hundrað flugferðum í
gær, hvort tveggja í innanlands-
og millilandaflugi, vegna verkfalls
flugfreyja og flugþjóna. Milli þrjú
og fjögur þúsund farþegar urðu
strandaglópar af þessum sökum,
að sögn yfirmanna flugfélagsins.