Fréttablaðið - 13.11.2004, Side 17
17LAUGARDAGUR 13. nóvember 2004
Fimmtugar konur:
Dagsyfja
algeng
HEILSA Dagsyfja er algeng meðal
fimmtugra íslenskra kvenna og
tengist einkum kvíða, þunglyndi
og einkennum breytingaskeiðs.
Þessa ályktun draga læknarnir
Bryndís Benediktsdóttir, Þórar-
inn Gíslason og Kristinn Tómas-
son af rannsókn sinni um efnið en
hún var kynnt á Heimilislækna-
þinginu sem haldið var nýlega á
Akureyri.
Lengst af var skollaeyrum
skellt við kvörtunum sjúklinga
um dagsyfju og hún helst álitin
leti eða ómennska og til marks um
slæman lífsstíl. Læknar og vís-
indamenn hafa sýnt fyrirbærinu
aukinn áhuga í seinni tíð og í rann-
sókn þríeykisins kom á daginn að
dágóður hópur íslenskra kvenna
er talinn þjást af talsverðri eða
mikilli dagsyfju. Allar fimmtugar
konur á höfuðborgarsvæðinu
voru spurðar um svefnvenjur,
svefntruflanir, andlega og líkam-
lega heilsu, lyfjanotkjun, tíða-
hvarfaeinkenni og félagslegt um-
hverfi. Af niðurstöðunum að
dæma má það kallast eðlilegt að
fimmtugar konur syfji á daginn
og alls ekki til merkis um leti eða
slæman lífsstíl. - bþs
MEÐ TÆRNAR UPP Í LOFT Á MIÐJUM
DEGI
Dagsyfja plagar fjölda fimmtugra kvenna.
Féð í Möðrudal á Möðrudalsöræfum
er ekkert yfir sig ánægt þessa dag-
ana. Það hefur verið sett í útgöngu-
bann eftir eldgosið í Grímsvötnum
og fær ekki að fara út fyrr en ein-
hvern tíma eftir áramót. Bændur
þar á bæ eru því með á þriðja hund-
rað fjár á fullri gjöf, þótt nóvember-
mánuður sé ekki nema rétt um það
bil hálfnaður.
„Við erum alveg með féð á gjöf,
en höfum nýlega hleypt hestunum í
stærra rými, þar sem þeir hafa hey
og rennandi vatn, en geta jafnframt
gripið í jörð,“ sagði Anna Birna
Snæþórsdóttir, bóndi á Möðrudal á
Möðrudalsöræfum. Skömmu eftir
að gosið hófst í Grímsvötnum urðu
bændur á Möðrudal að smala sam-
an öllum bústofni sínum vegna
öskufalls og hættu á flúoreitrun
samfara því. Fyrr í vikunni rigndi
hressilega og eftir það hafa hrossin
fengið aukið frelsi. En féð verður
alveg inni, samkvæmt ráðlegg-
ingum þar til bærra fagmanna.
„Þeir mælast til þess að það fari
ekki út fyrr en eftir áramót,“ sagði
Anna Birna. „Við erum því búin að
rýja það.“
Í venjulegu ári háttar svo til, að
féð hefur legið við opið fram í des-
emberbyrjun, svo fremi sem tíðar-
far hafi leyft það. Síðan hefur það
verið tekið á hús.
Þetta munar um það bil mánuði
hvað við erum fyrr með þetta
núna,“ sagði hún enn fremur. „Ærn-
ar eru náttúrlega ekki vanar þessu
og þær eru óskaplega snöggar ef
maður gengur um dyr að reyna að
drífa sig út. Það segir manni að þær
þrá útiveruna sem aðstæður leyfa
þeim þó ekki á þessu hausti.“ ■
BÍLASALA Bílaumboðin seldu 213
nýja bíla í síðustu viku, dagana 1.-5.
nóvember. Flestir voru bílarnir af
Toyota-gerð, 39 talsins, en
Volkswagen kemur þar á eftir, 36
slíkir voru keyptir í síðustu viku.
Vekur þetta nokkra athygli þar sem
Toyota ber vanalega höfuð og herð-
ar yfir aðrar tegundir.
Ford var þriðja vinsælasta bíla-
tegundin í síðustu viku, 21 slíkur
var afhentur nýjum eigendum. Eng-
in Lada var keypt í vikunni og sama
máli gegnir um níu aðrar tegundir
sem telja má góðkunningja á götum
landsins. - bþs
Eftirmál: Anna Birna Snæþórsdóttir bóndi á Möðrudal
Á þriðja hundrað fjár í útgöngubanni
Bílasalan í síðustu viku:
213 bílar keyptir
Veðurhorfur:
Kólnar á
Kárahnjúk-
um
VEÐRIÐ Frostið fer niður í allt að 12
stig á Kárahnjúkum í vikunni,
gangi spá Veðurstofu Íslands
fyrir næstu daga eftir. Samkvæmt
henni rokkar hitinn frá 0 gráðum
og niður í mínus 12 og er búist við
að kaldast verði á miðvikudag. Þá
mun einnig hvessa og vindur ná
17 metra hraða á sekúndu. Það er
því vissara fyrir starfsmennina
þar efra að klæðast síðbrók svo
kuldaboli bíti síður. - bþs
FJALLAKAFFI
Ferðamönnum sem heimsækja Möðrudal
fer fjölgandi á milli ára að sögn Önnu
Birnu Snæþórsdóttur. Þar er seld gisting
allan ársins hring, auk þess sem Fjallakaffi
er opið yfir sumartímann.
VINSTRA FRAMLJÓS Á VOLKSWAGEN
36 nýir Vollar seldust í síðustu
viku og 39 Toyotur.
h e i m u r s k e m m t i l e g r a h l u t a o g h u g m y n d a
meðan við bíðum
eftir jólunum...
ROKKANDI JÓLASVEINAR 2 JÓLASTJÖRNUR 950,- FÖNDUREFNI Í JÓLAKORT OG JÓLAKÚLUR
KERTASKREYTINGAR
í miklu úrvali
SÝPRUSAR
á frábæru verði
tilboð50% afsláttur ný sending!
UM HELGINA
ILMANDI
VÖFFLUKAFFI
I I
AF VÖLDUM SERÍUM
50% afsláttur
S t e k k j a r b a k k a 4 - 6 - M j ó d d - S í m i 5 4 0 3 3 0 0 - w w w . g a r d h e i m a r . i s - g a r d h e i m a r @ g a r d h e i m a r . i s