Fréttablaðið - 13.11.2004, Side 32

Fréttablaðið - 13.11.2004, Side 32
„Meinfýsnishlakkandi úrtölumenn víða um heim hafa einblínt á erfiðleikana sem vissulega er við að etja í Írak og virðast telja deilur um aðdraganda innrásarinn- ar skipta meira máli en frelsi og framtíðarvonir Íraka.“ Davíð Oddsson utanríkisráðherra, 11. nóvember 2004. „Það er alveg fráleitt af hæstvirtum forsætisráðherra að hlaupa í þessa vörn fyrir olíufélögin. Er þetta forsæt- isráðherra olíufélaganna? Ég spyr?“ Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, 8. nóvember 2004. Survivor á tjarnarbakkanum „Þetta er bara eins og survivor!“ varð glögg- um blaðamanni að orði þegar niðurstaða R- listans varð sú að sá borgarfulltrúi sem fæst- um væri í nöp við yrði næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Fyrst bolar Alfreð Degi út og svo koll af kolli. Eldri blaðamaður benti aftur á móti á að Steinunn Valdís nyti framsóknar- tengsla sinna: hún er tengdadóttir Haraldar Ólafssonar, mannfræðings og fyrrverandi al- þingismanns Framsóknarflokksins. Að kenna gömlum hundi að sitja Davíð Oddsson er kominn til starfa aftur af fullum krafti og flutti skýrslu utanríkisráðherra sköruglega eins og hans var von og vísa. Það hefur vakið athygli blaðamanna að Davíð virðist eiga mjög erfitt með að muna að hann er ekki lengur forsætisráðherra. Að minnsta kosti á hann það til að fara út um forsætisráðherradyrnar á fundarherbergi ríkis- stjórnarinnar. Hefð er fyrir því að forsætisráð- herra gangi einn þar út og mæti pressunni að loknum fundum en hinir ráðherrarnir tín- ist út um bakdyrnar. Nema hinn gleymni Davíð. En segja ekki gárungarnir að Halldór Ásgrímsson sé forsætisráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar? Guðrún Ögmundsdóttir Á einum tímapunkti þegar val borgarstjóra stóð yfir hjá R-listanum varð einum foringj- anna að orði að sækja yrði borgarstjórann í raðir núverandi eða fyrrverandi borgarfulltrúa. Upphófust miklar spekúlasjónir og datt mönnum einna helst í hug að hér væri verið að opna á Guðrúnu Ögmundsdóttur, alþing- ismann og fyrrverandi borgarfulltrúa. Hún þykir ekki hið einasta afbragðsgestgjafi held- ur hefði það leyst mál Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem er einmitt varaþingmaður í kjördæmi Guðrúnar. Óvænt tíðindi Svo óvænt var raunar kjör Steinunnar Valdísar að þegar þingflokki Sam- fylkingarinnar var kynnt hvað í aðsigi væri síðdegis á mið- vikudag héldu fleiri en einn og fleiri en tveir að tíðinda- maðurinn væri að gantast. 32 13. nóvember 2004 LAUGARDAGUR Enginn þorir lengur að slá því föstu að R-listinn bjóði fram að nýju i næstu borg- arstjórnarkosningum. Vinstri grænir nefna mögu- leika á kosningabandalagi þriggja framboða í stað R- lista. „Spurning: Hvað er sameiginlegt með Jassir Arafat og R-listanum? Svar: Báðir eru við rosalega góða heilsu.“ Þessi kaldhæðna skrítla gekk manna á millum á SMS- skilaboðum í baklandi Vinstri grænna í síðustu viku. Fátt lýsir betur ástandinu innan Reykjavík- urlistans. Varla nokkur málsmet- andi maður í flokkunum þremur sem að listanum standa í Reykja- vík talar um næstu borgarstjórn- arkosningar eftir hálft annað ár öðruvísi en að tala um „ef“ R-list- inn bjóði fram á ný. Opinberlega reyna forystumenn vitaskuld að bera sig vel en eins og Vinstri- grænna skrítlan ber með sér, fylgir hugur varla máli. Engum leynist að Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, nýkjörnum borgarstjóra, er mjög í mun að halda R-listanum saman, enda hefur hún látið í það skína að hún sér í raun meiri R-listamanneskja en Samfylkingarkona: „Ég er R- listakona í húð og hef fjárfest í Reykjavíkurlistanum í pólitík og finnst það rökrétt framhald af svipuðu samstarfi í Röskvu og Grósku.“ Skoðanir eru skiptar meðal samfylkingarmanna um hvort flokkurinn geti unað við niður- stöðu borgarstjóramálsins. Ann- ars vegar fagna menn að flokkur- inn eigi borgarstjórann en á hinn bóginn harma menn að annar flokkur skuli ráða hver setjist í stólinn. Samfylkingin er lang- stærst R-listaflokkanna og því finnst mörgum freistandi að bjóða fram sér í næstu kosning- um. Opinberlega tala forystu- mennirnir um að R-listinn hafi sýnt styrk með því að ná að leiða málið til lykta með svo skjótum hætti sem raun ber vitni. Stefán Jón Hafstein segir: „Ég held að þetta mál sýni að fólk vilji um- fram allt að R-listinn haldi áfram og það má sjá í málinu vísbend- ingar um að það sé meiri töggur í honum en flestir hafa gefið í skyn.“ Formaður flokksins, Össur Skarphéðinsson, segir að það sé mikil seigla í R-listanum: „En hann verður að taka sér tak og skilgreina hvaða áherslur hann ætlar að hafa. Hann hefur verið við völd í tíu ár og rétt eins og stjórnmálaflokkur sem verið hefur lengi við völd, verður hann að sýna fram á að hann geti endurnýjað sig hugmyndalega.“ Þótt forystumennirnir séu þó þetta bjartsýnir út á við eru menn mun svartsýnni í tali sín á milli og virðast fæstir trúa á R-lista- framboð 2006. Alfreð Þorsteinsson, borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins, reyndist ekki hafa styrk til að standa við tilboð um að Dagur Eggertsson yrði borgarstjóri. Anna Kristinsdóttir, stallsystir hans, beitti neitunarvaldi fyrir tilstilli flokksforystunnar eftir því sem heimildir herma og varð Alfreð að bakka við svo búið. Halldór Ásgrímsson og Árni Magnússon stóðu þar að baki en hvorugur þeirra hefur leynt andúð sinni á Reykjavíkurlistan- um á undanförnum misserum. Al- freð hefur hins vegar verið einna ákafastur í að halda R-listanum saman en hann stýrir sem kunn- ugt er Orkuveitunni, langauðug- asta borgarfyrirtækinu. „Það eru ekki góð tíðindi fyrir R-listann að hann hafi látið í minni pokann fyrir Halldóri og Árna,“ segir innanbúðarmaður. Einn af for- ystumönnum Samfylkingarinnar í Reykjavík gengur enn lengra: „Árni Magnússon hefur tekið völdin af Alfreð. Það er bara fyrsta skrefið í að ganga frá hon- um, eins og flokksforystan hefur lengi viljað.“ Sjálfur segir Alfreð: „Það veit enginn á þessu stigi hvort R-listinn býður fram næst.“ Ögmundur Jónasson, þing- maður Vinstri grænna í Reykja- vík, segir: „Það verður að koma i ljós hvort flokkarnir þrír bjóði fram sameiginlegan R-lista eða gangi til kosninga hver í sínu lagi með heitstrengingar um að vinna saman að loknum kosningum. Mér finnst líklegra en ekki að einhvers konar samstarf verði uppi á teningnum.“ ■ stjornmal@frettabladid.is Úr bakherberginu... nánar á visir.is Þegar ég var í Menntaskólanum í Reykjavík á þeim tíma sem seinna var kallaður framsóknaráratugurinn var einu sinni gerð skoðanakönnun um fylgi við stjórnmálaflokkanna. Ég man ekki niðurstöðurnar í smáatriðum en þó man ég að það reyndist enginn framsóknarmaður vera í 700 manna skólanum! Og samt voru Siv Friðleifs- dóttir þingmaður, Einar Sveinbjörns- son bæjarfulltrúi og Pétur Gunnars- son, altmúligmaður þingflokks fram- sóknarmanna, öll í MR á þessum tíma. Og engum datt í hug að þau væru framsóknarmenn, kannski ekki einu sinni þeim sjálfum. Ekki er langt síðan að ung og efni- leg kona kom að máli við mig og bað mig um að ráða sér heilt á frama- brautinni. Ég sagði henni að hún ætti að ganga beinustu leið í Framsóknar- flokkinn og sagðist tilbúinn að veðja við hana að hún yrði komin á þing innan fimm ára. Ég minnist þess líka að einn helsti forystumaður Fram- sóknarflokksins dásamaði Guðmund blaðamann Steingrímsson, Her- mannssonar glímukappa Jónassonar, nýlega í prívatsamtali og sagði þar mesta framsóknarefni sem komið hefði fram í lengri tíma. Kunningi minn hlýddi á forystumann þennan (sem þekktari er fyrir að ljúka lofsorði á kýr en menn) í nokkurri forundran enda hefur téður Guðmundur farið heldur leynt með meinta framsóknar- mennsku sína. Fór svo að vinurinn dró í efa að Guðmundur væri framsóknar- megin í tilverunni. Framsóknarleiðtog- inn horfði á hann skilningssljóum aug- um og minnti á að þarna færu saman góð gen og greið leið til frama: Hvað var eiginlega vandamálið? Já, ólíklegustu menn finna í sér framsóknarmanninn seint á ævinni og er Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmað- ur Halldórs Ásgrímssonar, nýjasta dæmið. Hjálmar Árnason var róttækur Alþýðubandalagsmaður langt fram eftir aldri (seinþroska að eigin sögn) þar til hann sá ljósið: „Framsóknar- stefnan setur manninn og velferð hans í öndvegi.“ Hver getur ekki skrif- að upp á það? En vikan í pólítik sýnir okkur einmitt þetta: Vitnað hefur verið til orða fyrrverandi gjaldkera flokksins að Framsókn komi mönnum í áhrifa- stöður og fái síðan tíund af launum. Framsóknarflokkurinn hefur reyndar sjaldan eða aldrei verið öflugri þar sem hann situr eins og klettur í hafinu á miðju íslenskra stjórnmála. Í landi samsteypustjórna komast þeir til áhrifa sem geta fallerað frú Framsókn. Húsráðandinn í hvíta húsinu við Lækj- argötu þarf ekki einu sinni að byrsta sig til að læknakandídatinn Dagur og fræðslumálaforkólfurinn Stefán éti það sem úti frýs og Steinunn Valdís er með pálmann í höndunum. Mér segir svo hugur að margur sem hefur horft upp á hvernig framsóknar- menn ráða öllu sem þeir vilja ráða hugsi „If you can’t beat them, join them“. Eru ekki allir framsóknarmenn inni við beinið? Og meira að segja ég sjálfur, ég verð bara að viðurkenna að þegar pyngjan hefur verið hvað léttust og umsóknum um stöður ekki einu sinni verið svarað, þá hefur mér stundum fundist að yfir mig færðist undarleg græn slikja. VIKA Í PÓLITÍK ÁRNI SNÆVARR SKRIFAR Við erum öll framsóknar- menn inni við beinið Ódýrar jólagjafir! Barna myndbönd (Disney ofl.) Fótboltatreyjur barna. Verð 1.400,- Spiderman 2 bolir. Verð 1.000,- Flíspeysur (fullorðins). Verð 990,- Geisladiskar frá kr. 300,- DVD myndir, úrval af nýjum og gömlum myndum PC tölvuleikir frá kr. 400,- Bolir: 50 Cent og Metallica. Verð 1.000,- Fjarstýrðir Formula bílar. Verð 3.990,- Yu-Gi-Oh kort. Verð frá kr. 390,- Einnig, úrasett, laser (2 virkur), kerti á leiði, úlpur, Leigumyndbönd á 500 kr. og margt fleira. Jólamarkaðurinn í Glæsibæ. (Álfheimum 74) Opið 10 – 18 virka daga og 10-16 laugardaga . Uppl. í síma 659-9945. Sendum í póstkröfu. UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, R-LISTINN Stefán Jón Hafstein, Anna Kristinsdóttir og Árni Þór Sigurðsson tilkynna blaðamönnum kjör nýs borgarstjóra, hugsanlega síð- asta borgarstjóra R-listans. Framtíð Reykjavíkur- listans í algjörri óvissu Þeir komast til áhrifa sem geta fallerað frú Framsókn. ,,

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.