Fréttablaðið - 13.11.2004, Page 60

Fréttablaðið - 13.11.2004, Page 60
48 13. nóvember 2004 LAUGARDAGUR Notaleg tilboðshelgi Komdu inn Það verður þægileg stemning í sýningarsal okkar um helgina og við bjóðum gestum og gangandi að koma inn úr kuldanum og njóta þess með okkur. Fjöldinn allur af frábærum tilboðum í gangi. Kaffibarþjónar frá Te & Kaffi, þ.á.m. Íslandsmeistari kaffibarþjóna, skenkja lúxuskaffi. Komdu á Nýbýlaveginn og vertu eins og heima hjá þér um helgina. Opið kl. 12-16 laugardag og kl. 13-16 sunnudag. Notaleg tilboðshelgi við Nýbýlaveginn Toyota Kópavogi Sími 570-5070 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 26 35 5 1 1/ 20 04 Notaleg tónlist Tónlistarmennirnir landsþekktu Stebbi og Eyfi fá gesti til að skipta yfir í afslappaða gírinn með söng og spjalli, kl. 14 - 15.30 laugardag og sunnudag. Tilboð með öllum seldum fólksbílumÓkeypis vetrardekk fylgja öllum nýjumCorolla, Avensis og Yaris. Tilboð Yamaha tæki á tilboði Seljum e ldri árger ðir af mótor hjólum o g vélsleð um á lækkuð u verði. LEIKIR GÆRDAGSINS Intersportdeildin KR–KEFLAVÍK 90–88 Stig KR: Damon Garris 21, Cameron Echols 20, Ólafur Ægisson 16, Skarphéðinn Ingason 9, Steinar Kaldal 9, Lárus Jónsson 7, Hjalti Kristins- son 4, Níels Dungal 2. Stíg Keflavíkur: Anthony Glover 31, Nick Brad- ford 18, Gunnar Einarsson 16, Jón Hafsteinsson 8, Magnús Gunnarsson 6, Elentínus Margeirsson 5, Halldór Halldórsson 2. Keflavík byrjaði leikinn betur en KR-ingar tóku við sér í öðrum leikhluta þar sem Ólafur Ægisson fór fyrir KR-ingum og gerði 13 stig. Staðan í leikhléi var 51-49. Keflavík hafði yfirhöndina lengst af en Garris setti tóninn fyrir KR með þremur þristum í röð. Leikurinn var í járnum síðustu mínúturnar en það var Skarphéðinn Ingason sem tryggði KR sigur eftir glæsilega sendingu frá Lárusi Jónssyni fjórum sekúndum fyrir leikslok. Nick Bradford reyndi þriggja stiga skot á lokasekúndum sem geigaði. GRINDAVÍK-TINDASTÓLL 102–95 Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 33 (14 frák., 9 stoðs.), Páll Vilbergsson 28 (7 frák.), Morten Szmiedowicz 11 (9 frák.), Justin Miller 11 (5 stoðs.), Guðlaugur Eyjólfsson 8, Davíð Hermansson 5 (7 frák., 5 stoðs.), Þorleifur Ólafsson 4, Ágúst Dearborn 2. Stig Tindastóls: Bethuel Fletcher 30 (10 frák., 12 stoðs. 10 tap.), Svavar Birgisson 26 (7 frák.), Nicola Cvjetkovic 18 (10 frák., 5 stoðs.), Axel Kárason 14 (5 stoðs.), Björn Einarsson 5, Andri Árnason 2. Tindastóll byrjaði betur en Grindavík rétti úr kútnum og staðan í hálfleik var 51-48. Stólarnir voru ekki af baki dottnir og komust yfir í byrjun síðari hálfleiks en Grindvíkingar voru sterkari á lokasprettinum og náðu að knýja fram mikil- vægan sigur eftir slakt gengi upp á síðkastið. STAÐAN NJARÐVÍK 6 6 0 590–455 12 SKALLAGR. 6 4 2 520–502 8 SNÆFELL 6 4 2 520–469 8 FJÖLNIR 6 4 2 566–552 8 KEFLAVÍK 6 4 2 544–483 8 GRINDAVÍK 6 3 3 553–546 6 TINDASTÓLL 6 3 3 501–533 6 KR 6 3 3 488-506 6 ÍR 6 2 4 517–551 4 HAUKAR 6 2 4 522–490 4 HAMAR/SEL. 6 1 5 530–613 2 KFÍ 6 0 6 497–628 0 Við höfum engar afsakanir Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, krefst árangurs á World Cup í Svíþjóð þótt hann sé með nýtt og óreynt lið í höndunum. Átta nýir leikmenn koma inn í hópinn. HANDBOLTI Viggó Sigurðsson, lands- liðsþjálfari í handknattleik, til- kynnti í gær sinn fyrsta landsliðs- hóp sem fer á World Cup í Svíþjóð í næstu viku. Það eru miklar breytingar á landsliðshópnum en átta leikmenn koma nýir inn frá hópnum sem fór til Aþenu. Þeir eru Birkir Ívar Guðmundsson, Hreiðar Guðmundsson, Logi Geirsson, Vignir Svavarsson, Þór- ir Ólafsson, Arnór Atlason, Einar Hólmgeirsson og Markús Máni Michaelsson. Viggó hefur tilkynnt Guð- mundi Hrafnkelssyni og Rúnari Sigtryggssyni að þeir muni ekki spila með landsliðinu undir hans stjórn og má því leiða líkum að því að landsliðsferill þeirra sé á enda. Ólafur Stefánsson hefur ákveð- ið að taka sér frí frá þessari keppni og Sigfús Sigurðsson er að skríða til baka eftir uppskurð. Kristján Andrésson er einnig meiddur og leikur ekki handbolta næstu mánuðina. Gylfi Gylfason og Róbert Sighvatsson hlutu ekki náð fyrir augum landsliðsþjálfar- ans að þessu sinni en eru samt í myndinni hjá þjálfaranum sem og Ragnar Óskarsson sem virðist seint ætla að fá almennilegt tæki- færi með íslenska landsliðinu. Það eru ekki margir dagar í fyrsta leik á mótinu í Svíþjóð en Ísland leikur gegn Evrópumeist- urum Þjóðverja á þriðjudag. Það segir sig því sjálft að Viggó fær ekki mikinn tíma til þess að slípa þetta óreynda lið til en hann setur engu að síður markið hátt eins og hann hefur alltaf gert. „Ég stend við það sem ég sagði þegar ég tók við starfinu að það þyrfti að gera breytingar á þess- um landsliðshóp. Ég mun ekki af- saka mig fyrir fram að ég sé að fara með nýtt og óreynt lið á þetta mót. Það er bara þannig að ef maður ætlar að vera landsliðs- þjálfari á Íslandi þá verður maður að gera væntingar. Annars getur maður bara verið einhvers staðar annars staðar. Þó ég geti ekki mót- að liðið mikið þá geri ég þær kröf- ur að liðið nái árangri því við erum hátt skrifaðir í handbolta og erum með góða leikmenn. Liðið er byggt upp af atvinnumönnum sem eru að spila fyrir mikla peninga og við höfum engar afsakanir,“ sagði Viggó ákveðinn. Frumraun hans með landsliðið verður langt frá því að vera auð- veld því fyrir utan að mæta Þjóð- verjum á þessu móti er Ísland einnig í riðli með Frökkum og Ungverjum. henry@frettabladid.is LANDSLIÐSHÓPURINN Markverðir: Birkir Ívar Guðmundsson Haukar Roland Valur Eradze ÍBV Hreiðar Guðmundsson ÍR Aðrir leikmenn: Einar Örn Jónsson Wallau Guðjón Valur Sigurðsson Essen Logi Geirsson Lemgo Róbert Gunnarsson Århus Vignir Svavarsson Haukar Þórir Ólafsson Haukar Arnór Atlason Magdeburg Ásgeir Örn Hallgrímsson Haukar Dagur Sigurðsson Bregenz Einar Hólmgeirsson Grosswallstadt Jaliesky Garcia Padron Göppingen Markús Máni Michaelsson Düsseldorf Snorri Steinn Guðjónsson Grosswallstadt VIGGÓ SIGURÐSSON Mætti ákveðinn og vel klæddur til blaðamannafundarins í gær þar sem hann tilkynnti sinn fyrsta landsliðshóp. Fréttablaðið/Pjetur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.