Fréttablaðið - 20.11.2004, Blaðsíða 56
Ódýrar jólagjafir!
Barna myndbönd (Disney ofl.)
Fótboltatreyjur barna. Verð 1.400,-
Spiderman 2 bolir. Verð 1.000,-
Flíspeysur (fullorðins). Verð 990,-
Geisladiskar frá kr. 300,-
DVD myndir, úrval af nýjum og gömlum myndum
PC tölvuleikir frá kr. 400,-
Bolir: 50 Cent og Metallica. Verð 1.000,-
Fjarstýrðir Formula bílar. Verð 3.990,-
Yu-Gi-Oh kort. Verð frá kr. 390,-
Einnig, úrasett, laser (2 virkur), kerti á leiði, úlpur,
Leigumyndbönd á 500 kr. og margt fleira.
Jólamarkaðurinn í Glæsibæ.
(Álfheimum 74)
Opið 10 – 18 virka daga og 10-16 laugardaga .
Uppl. í síma 659-9945. Sendum í póstkröfu.
Heilsuhæli Manns lokað
Töfrafjallið er frægasta verk þýska Nóbelsverðlaunahaf-
ans, Thomasar Mann. Bókin gerist á heilsuhælinu Val-
bella í Davos í Sviss. Mann heimsótti Davos árið 1912
og eiginkona hans Katja dvaldi þar í hálft ár í lækninga-
skyni. Davos og Valbella komust á bókmenntakortið
eftir útkomu Töfrafjallsins og aðdáendur skáldsins hafa
gjarnan brugðið sér þangað í heimsókn. Nú stendur til
að loka þessu fræga heilsuhæli vegna skorts á sjúkling-
um. Bæjarstjórinn í Davos segist hafa lesið Töfrafjallið,
en sagði að það væri „erfið bók“.
44 20. nóvember 2004 LAUGARDAGUR
AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
DAUÐANS ÓVISSI TÍMI
Þráinn Bertelsson
ENGLAR OG DJÖFLAR
Dan Brown
ARABÍUKONUR
Jóhanna Kristjónsdóttir
SAKLEYSINGJARNIR
Ólafur Jóhann Ólafsson
ÍSLENSKI HESTURINN
Gísli B. Björnss. og Hjalti Jón Sveins.
BARN AÐ EILÍFU
Sigmundur Ernir Rúnarsson
ÚTKALL - TÝR ER AÐ SÖKKVA
Óttar Sveinsson
KARÍTAS ÁN TITILS
Kristín Marja Baldursdóttir
BARÓNINN
Þórarinn Eldjárn
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðaso
DAUÐANS ÓVISSI TÍMI
Þráinn Bertelsson
ENGLAR OG DJÖFLAR
Dan Brown
SAKLEYSINGJARNIR
Ólafur Jóhann Ólafsson
KARÍTAS ÁN TITILS
Kristín Marja Baldursdóttir
BARÓNINN
Þórarinn Eldjárn
BÍTLAÁVARPIÐ
Einar Már Guðmundsson
BÁTUR MEÐ SEGLI OG ALLT
Gerður Kristný
LÖMUÐU KENNSLUKONURNAR
Guðbergur Bergsson
KLISJUKENNDIR
Birna Anna Björnsdóttir
Listinn er gerður út frá sölu dagana
10.11.- 16.11. 2004 í Bókabúðum Máls og
menningar, Eymundssonar og Pennans.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Malarinn sem spangólaði
Malarinn sem spangólaði eftir Arto
Paasilinna. Paasilinna er höfundur
hinnar gríðarlega skemmtilegu bók-
ar Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð. Í þess-
ari bók er sögð saga Gunnars
Huttunen sem spangólar oft sér til
hugarléttis en við litla hrifningu ná-
granna sinna. Paasilinna hlýtur að
vera einn alfrumlegasti rithöfundur-
inn á Norðurlöndum og sömuleiðis
einn sá skemmtilegasti. Einstaklega
góð bók sem óhætt er að mæla
með.
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
[ METSÖLULISTI ]
Lömuðu kennslukonurnar erfyrsta skáldsaga GuðbergsBergssonar í tíu ár. „Ég las
einhvers staðar að tíu ár væru frá
því síðasta skáldsaga mín kom út.
Það hafði alveg farið framhjá
mér,“ segir Guðbergur. „Það er
ekki hægt að mæla tíma í sam-
bandi við skáldsögur. Ekki nema
maður skipuleggi allt fram í tím-
ann og hafi metnað. Þá man mað-
ur hvort maður fékk góða eða
vonda ritdóma og hversu margar
stjörnur voru gefnar. Ég man það
ekki. Ég hef engan metnað. Þegar
ég var að alast upp í Grindavík
höfðu kellingarnar mikinn metn-
að fyrir hönd sonarins. Þegar fólk
talar um að listamenn hafi metnað
hljómar það kellingalega í mín
eyru. Listin er algjörlega eðlileg
og byggist ekki á metnaði. En ef
menn ætla að vera í verslunar-
starfi þá verða þeir að hafa metn-
að til að koma verkinu á markað
og fá góð viðbrögð. Ég hugsa ekki
um það. Mér leiddist svo mikið á
sínum tíma að hlusta á kellingarn-
ar í Grindavík tala um metnað.“
Líf í það lamaða
Um efni nýju skáldsögunnar seg-
ir Guðbergur: „Þetta er saga um
mann sem fer út í heim vegna
þess að faðir hans hefur vissa
draumsýn sem byggist ekki á
raunveruleika. Þegar hann kemur
heim fær hann starf hjá lömuðum
kennslukonum og segir þeim sög-
ur. Hann skrifar sögu um það sem
er á vissan hátt draumur skálda
sem hafa metnað; að koma lífi í
það sem lamað er. En þegar hann
er búinn að koma lífi í það sem
lamað er verður hann að bera
ábyrgð á verkum sínum. Oft er
fjallað um það hvort fólk beri
ábyrgð á verkum sínum eða ekki.
Margar kenningar eru til um það
að snillingurinn beri ekki ábyrgð
á verkum sínum, hann beri bara
fram verk sín. Í þessari sögu ber
maðurinn ábyrgð á verki sínu en
þá er það verkið sem vill ekkert
með hann hafa. Verkið verður
semsagt sjálfstætt.
Þessi maður fer út fyrir sitt
eigið starf, sem er hin skipulagða
hugsun. Hann verður fórnarlamb
þess sem hann er í raun og veru
andsnúinn. Hann reynir að bera
fram hina sígildu sögu, Grimm-
sævintýri og annað því um líkt, en
lömuðu kennslukonurnar vilja
það ekki. Þær vilja sögur sem er
svo mikill kraftur í að þær fái líf í
limina. Þær eru tvíburasystur en
þegar önnur fær meiri mátt en
hin eru þær ekki lengur systur
því samkenndin hverfur.“
Forðast eftirlíkingar
Bókin kemur út skömmu eftir
harðvítugt kennaraverkfall.
„Lömuðu kennslukonurnar hafa
tekið völdin,“ segir Guðbergur.
„Þegar þær hafa tekið völdin bera
þær enga ábyrgð á verkum sín-
um, þær hafa breytt sögunni. Þær
geta brotið lög vegna þess að þær
eru konur og voru eitt sinn lamað-
ar en hafa fengið máttinn. Um
leið verða þær ábyrgðarlausar. Ef
karlmenn væru í meirihluta í
kennarastétt væri skellt lögum á
þá og síðan yrðu þeir sóttir til
saka. Þeir karlmenn sem eru
kennarar kvarta og kveina eins og
konur: Æ, ég er alveg í rusli, þetta
er agalegt. Það liggur við að kenn-
arar þurfi áfallahjálp. Verkalýðs-
hreyfingin hegðaði sér ekki
þannig meðan hún var verkalýðs-
hreyfing. Þá barðist fólk fyrir
rétti sínum.
Lömuðu kennslukonurnar er
sérkennileg bók en Guðbergur
segir hana vera mjög raunsæja.
„Þegar maður skrifar svona bók
verður maður að vara sig á því að
láta hana ekki líkjast öðrum sög-
um. Höfuðvandamál frumlegs rit-
höfundar er að hann verður að
vara sig á því sem áður hefur ver-
ið gert, nema hann vilji vera eftir-
bátur annarra og fá til dæmis
þann stimpil að vera Marilyn
Monroe Íslands, eða eitthvað í
þeim dúr. Smáþjóðir gera ekki
hærri kröfur til sín en að vera
þokkaleg eftirlíking. Það er
skelfilegt hlutskipti að vera eftir-
líking og segja það sem aðrir hafa
sagt. Þá er eins gott að þegja.“
kolla@frettabladid.is
[ BÓK VIKUNNAR ]
Á þessum degi árið 1875 var gefin út fyrsta skáldsaga rithöfundarins Henry James,
Roderick Hudson. Fyrr á árinu hafði James sent frá sér bók með ferðasögum og smá-
sagnasafn. James fæddist í New York árið 1843 og byrjaði að skrifa á unglingsárum.
Hann skrifaði margar fínar skáldsögur en meistaraverk hans er The Portrait of a Lady.
Líkt og mörg önnur verk hans fjallar bókin um unga og óreynda Ameríkumenn innan
um veraldarvanari Evrópubúa.
National Book verðlaunin afhent
Skáldsagan The News from Paragvæ eftir Lily Tuck
fékk bandarísku National Book verðlaunin. Þetta er
mikil söguleg skáldsaga sem gerist á 19. öld í Suður-
Ameríku og segir frá konu og sambandi hennar við
einræðisherra. Í þakkarræðu sinni sagði Tuck að hún
hefði aldrei komið til Paragvæ og hefði engar áætlan-
ir um að fara þangað. Verðlaunabókin er fjórða skáld-
saga hennar.
Í flokknum bækur almenns eðlis fékk Kevin Boyle verðlaunin fyrir Arc of Just-
ice en þar er sögð saga blökkumannsins Ossian Sweet sem keypti sér hús í
Detroit í hverfi þar sem eingöngu bjuggu hvítir menn. Kaup hans á húsinu
leiddu til uppþota og morðákæru.
Sá sem elst upp iðjulaus, hann er
næst því að deyja ærulaus.
Jón Vidalín
GUÐBERGUR BERGSSON „Það er skelfilegt hlutskipti vera eftirlíking og segja það sem
aðrir hafa sagt. Þá er eins gott að þegja.“
LÖMUÐU KENNSLUKONURNAR:
NÝ SKÁLDSAGA EFTIR GUÐBERG BERGSSON
BÓKASKÁPURINN
THOMAS MANN
LILY TUCK
Það er skelfilegt
hlutskipti að vera
eftirlíking og segja það sem
aðrir hafa sagt. Þá er eins
gott að þegja.
,,
Ég hef engan
metnað