Fréttablaðið - 20.11.2004, Page 73
61LAUGARDAGUR 20. nóvember 2004
■ TÓNLEIKAR
■ LISTSÝNING
Útgáfutónleikar á Nasa í kvöld, kl. 22:00
Miðaverð 1,500 krónur
Spilabandið Runólfur kyndir upp stemninguna
Jagúar djamma í nýju Smekkleysu plötubúðinni
í dag, klukkan 15.00
■ ■ LISTOPNANIR
13.30 Sýning á myndskreytingum
úr íslenskum barnabókum verður
opnuð í Gerðubergi. Einnig lesa
höfundar barnabóka úr verkum
sínum. Kynnir verður Benedikt
búálfur og ballerínur sýna dans.
14.00 Hjörtur Marteinsson opnar
sjöttu einkasýningu sína á lág-
myndum og þrívíðum verkum í
Galleríi Sævars Karls í Reykjavík.
Yfirskrift sýningarinnar er Ókyrrar
kyrralífsmyndir.
16.00 Níu listamenn opna sýningu
í Gallerí Tukt. Sýningin ber heitið
Illgresi eins og hópurinn og
stendur hún til 4. desember.
16.00 Anna Richardsdóttir opnar
sýningu í Ketilhúsinu á Akureyri á
verkum samstarfslistamanna
hennar víðs vegar að úr heimin-
um, sem taka þátt í tíu ára al-
heimshreingjörningi með henni.
19.00 Þýska myndlistarkonan Anke
Sievers opnar einkasýningu í
Gallerí Dverg, sem er staðsett í
kjallara að Grundarstíg 21, Reykja-
vk. Sýning hennar ber heitið
"Songs of St. Anthony and Other
Nice Tries" og verður opin
fimmtudaga til sunnudags klukk-
an 18-20 og stendur til 5. desem-
ber.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Hljómsveitin Úlfarnir halda
uppi stemmningu í Vélsmiðjunni,
Akureyri.
Hljómsveitin Dúr-X skemmtir á
Dubliner.
Stuðmannasýningin Með næstum
allt á hreinu á Broadway. Á eftir
leikur hljómsveitin Í svörtum föt-
um fyrir dansi.
Dj Þröstur 3000 á Sólon.
Eyjólfur Kristjáns-
son og Íslands eina
von með stórdansleik í
Klúbbnum við Gullin-
brú.
Geirmundur Valtýsson og hljóm-
sveit skemmta gestum Kringlukrá-
arinnar.
Hljómsveitin Æði skemmtir í Classic
Rock við Ármúla.
■ ■ ÚTIVIST
13.30 Í tilefni af 100 ára afmæli
rafmagns í Hafnarfirði verður lagt
upp í göngu frá Hafnarborg upp
Læknum og upp í Lækjarbotna. Á
leiðini verða afhjúpuð fjögur skilti.
Rúta ekur göngufólki til baka í
Hafnarborg, þar sem boðið verður
upp á kaffi.
■ ■ FUNDIR
10.00 Elfa Ýr Gylfadóttir, Guð-
mundur Heiðar Frímannsson og
Þorbjörn Broddason verða frum-
mælendur á málþingi um fjar-
skipta- og fjölmiðlasamsteypur,
sem haldið verður í húsakynnum
Reykjavikurakademíunnar við
Hringbraut.
10.00 Alþjóðahúsið efnir til ráð-
stefnu um íslenskukennslu fyrir
innflytjendur í Versölum við Hall-
veigarstíg. Frummælendur verða
Bjarni Benediktsson, Noureddi-
ne Erradi, Sólrún Björg Kristins-
dóttir, Hanna Ragnarsdóttir og
Sólborg Jónsdóttir.
12.00 Sturla Gunnarsson, Li Ping
meistaranemi, Helga Stephen-
son, Jannike Ahlund og Þorfinn-
ur Ómarsson flytja erindi á mál-
þingi um kvikmyndir og samfélag,
sem haldið verður í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, á vegum
alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík. Leikstjórar hátiðarinnar
sitja fyrir svörum, og fjöldi fagfólks
og áhugafólks um kvikmyndir tek-
ur þátt í pallborðsumræðum.
13.00 Dr. Ragnhildur Sigurðar-
dóttir umhverfisfræðingur fjallar
um virkjanir, umhverfismál og
upplýsingar til almennings og
Styrmir Gunnarsson ritstjóri ræð-
ir umfjöllum Morgunblaðsins um
Kárahnjúkavirkjun og hugleiðir
hlutverk fjölmiðla á fundi Reykja-
víkurakademíunnar um Virkjun
lands og þjóðar, sem haldinn er í
húsakynnum Reykjavíkurakademí-
unnar við Hringbraut.
■ ■ SAMKOMUR
11.00 Bókaforlagið Bjartur efnir til
jólabókahátíðar í versluninni Iðu
þar sem lesið verður upp úr nýj-
um bókum á 15 mínútna fresti til
klukkan 17.
15.00 Í tilefni af útkomu bókarinn-
ar Á vængjum söngsins, Sögu
Jónasar Ingimundarsonar eftir
Gylfa Gröndal, býður JPV útgáfa til
samkomu í Salnum í Kópavogi
þar sem Jónas flytur nokkur lög
og kynnir bókina.
■ ■ DANSLIST
20.00 Magdanshús Josy Zareen
efnir til afmælissýningar í Tjarnar-
bíói.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
Prakkararnir Max og Moritz verða
áberandi á tónleikum Lúðrasveitar
verkalýðsins í Ráðhúsi Reykjavík-
ur í dag.
„Þetta er heldur betur ævintýra-
legt. Þeir eru þvílíkir prakkarar,
fara í gegnum hakkavél og hljóta
mjög dramatísk örlög,“ segir Linda
Ásgeirsdóttir leikkona, sem ætlar
að lesa texta við myndasögurnar
meðan lúðrasveitin leikur tónlist
sem þýska tónskáldið Hans Dörner
samdi sérstaklega við sögur og
myndir eftir Wilhelm Busch.
Lúðrasveit verkalýðsins hefur
haldið þeirri árlegu venju að halda
fjölskyldutónleika, þar sem brugðið
er á leik með einum eða öðrum
hætti.
Í ár fékk hún Lindu til að vera
sögumaður og kynnir á tónleikun-
um, en hún var sjálf í Lúðrasveit-
inni í eina tíð.
„Ég spilaði á flautu,“ segir
Linda, og bætir því við að hljóðfær-
in sem fólk spilar á segi heilmikið
um það hvers konar manngerð það
er.
Lúðrasveitin ætlar einnig að
flytja Kattadúettinn eftir Rossini
þar sem Örn Hafsteinsson og Jón
Óskar Guðlaugsson leika einleik á
trompeta.
Einnig verða flutt lög úr kvik-
myndinni Pirates of the Caribbean
eftir Klaus Badelt og svo fá allir
krakkarnir að spreyta sig á að
stjórna hljómsveitinni við að spila
Öxar við ána. ■
„Það er nóg að gera í skúringum
við að hreinsa heiminn,“ segir
spunadansarinn Anna Richards-
dóttir, sem undanfarin ár hefur
ferðast víða um heim til að gera
hreint. Eða öllu heldur til að
fremja svonefndan hreingjörn-
ing, þar sem hún drífur sig í skúr-
ingasloppinn og dregur upp skúr-
ingadótið til að þrífa götur, gang-
stéttir og hvaðeina sem fyrir
verður.
„Tíu ára alheimshreingjörn-
ingur“ er yfirskrift sýningar sem
hún opnar í Ketilhúsinu á Akur-
eyri í dag. Þar sýnir hún ljós-
myndir, vídeómyndir og aðrar
heimildir frá samverkafólki sínu
víðs vegar um heim, sem tók þátt
í því að gera heiminn ofurlítið
hreinni þann 10. október síðastlið-
inn.
„Ég byrjaði hér á götum Akur-
eyrar árið 1998, þegar ég gerði
þennan gjörning fyrst. Ég gerði
hann einu sinni í viku í heilt ár, og
það var einfaldlega mitt framlag
til þess að heimurinn verði örlítið
hreinni og línurnar skýrist.“
Að loknu þessu fyrsta ári hélt
Anna áfram hreingjörningum sín-
um og hefur framið hann í nokkr-
um Evrópulöndum, þar af öllum
skandinavísku löndunum, einu
sinni í Japan og tvisvar sinnum í
Suður-Afríku.
„Eftir þetta ár ákvað ég að
þrífa allan heiminn, og það er lífs-
tíðarverkefni. En síðan smám
saman fann ég fyrir því að mig
langaði til að aðrir myndu hjálpa
mér við þrifin.“
Fjörutíu manns frá ýmsum
þjóðlöndum hafa nú undirritað
samning, þar sem þeir skuldbinda
sig til að leggja sitt af mörkum til
að þrífa heiminn einu sinni á ári
næstu tíu árin. Þetta á að fara
fram 10. október ár hvert, en þá á
Anna afmæli og getur tekið sér
frí frá þrifunum þennan eina dag.
„Mig langar að virkja alls kyns
fólk að hjálpa mér að þrífa. Til
dæmis langar mig til að geim-
stöðvar úti í geimnum verði
þrifnar og fá myndir af því,
þannig að þetta verði sannkallað-
ur alheimshreingjörningur.
Einnig kom upp sú hugmynd að fá
kafara til að þrífa hafsbotninn.“
Anna hefur skuldbundið sig á
móti til að sýna afrakstur þessa
samstarfsfólks hennar einu sinni
á ári, og fyrsta sýningin hefst
sem sagt í dag í Ketilhúsinu á Ak-
ureyri. ■
Brugðið á leik í Ráðhúsinu
MAX OG MORITZ Í LÚÐRASVEIT VERKALÝÐSINS Linda Ásgeirsdóttir leikkona ætlar að lesa söguna af Max og Morits á tónleikum
Lúðrasveitar verkalýðsins í Ráðhúsi Reykjavíkur. Teiknimyndirnar verða sýndar á tjaldi á meðan og lúðrasveitin leikur undir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
LI
ANNA FREMUR HREINGJÖRNING Á ýmsu gengur þegar Anna Richardsdóttir fremur
hreingjörning. Í dag verður opnuð í Ketilhúsinu á Akureyri sýning þar sem getur að líta
myndir og aðrar heimildir um verk samstarfsfólks hennar, sem gaf henni frí í einn dag og
gerði hreint víða um heim.
Ákvað að þrífa allan heiminn