Fréttablaðið - 14.10.2004, Page 8
8 14. október 2004 FIMMTUDAGUR
Tony Blair:
Neitar að afsaka skýrslu
BRETLAND AP Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, neitaði því
staðfastlega á breska þinginu í
gær að ástæða væri til að bera
fram afsökunarbeiðni vegna þess
að rangar upplýsingar um vopna-
eign Íraka hefðu birst í skýrslu
sem yfirvöld studdust við þegar
ákveðið var að hefja innrás í Írak.
Blair játaði hins vegar að upp-
lýsingar í skýrslunni varðandi
efnavopna- og lífefnavopnaeign
Íraka hefðu ekki verið fullnægj-
andi, en hélt því fram að ákvörð-
unin um að styðja Bandaríkja-
menn í innrásinni hefði verið rétt-
mæt.
„Ég tek fulla ábyrgð á og biðst
afsökunar á upplýsingunum sem
gefnar voru upp í góðri trú þrátt
fyrir að í kjölfarið hafi komið í
ljós að þær voru rangar,“ sagði
Blair í heitum umræðum um
Íraksmálið á þinginu.
„Það er hins vegar alfarið
rangt að upplýsingar hafi vísvit-
andi verið rangar eða að nokkur
hafi viljandi verið blekktur. Ég
afsaka það ekki að Saddam
Hussein hafi verið komið af
valdastóli. Ég afsaka ekki átökin í
Írak. Ég trúi því að þau hafi verið
réttmæt þá, þau séu réttmæt nú
og nauðsynleg til þess að tryggja
öryggi í þessum heimshluta,“
sagði Blair. ■
Höfum verið
allillilega plataðir
Stjórnarformaður Sorpstöðvar Suðurlands segir stjórnina hafa verið allillilega plataða þegar
hún var fengin til að draga til baka kæru vegna milljóna króna dagsekta á hendur stöðinni.
Sveitarstjórn Ölfuss hefur hótað að segja sig úr Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.
UMHVERFISMÁL Sveitarstjórn Ölf-
uss hefur hótað að segja sig úr
Sambandi sunnlenskra sveitarfé-
laga ef önnur sveitarfélög á svæð-
inu styðji sig ekki í þeirri kröfu að
Sorpstöð Suðurlands fari að gild-
andi deiliskipulagi hvað varðar
hæð sorpfjallsins, að sögn Hjör-
leifs Brynjólfssonar, oddvita
sveitarstjórnar Ölfuss. Sveitar-
stjórnin hefur tilkynnti kjörnum
fulltrúum aðildarsveitarfélaga
stöðvarinnar að henni verði lokað
25. október og hafin innheimta
dagsekta upp á 42,6 milljónir
króna ef ekki náist samkomulag
um úrbætur.
„Sorpstöðin hefur fullgilt
starfsleyfi frá umhverfisráðu-
neytinu,“ sagði Einar Njálsson,
stjórnarformaður stöðvarinnar.
„Þegar það var gefið út á sínum
tíma gerði sveitarfélagið Ölfus þá
athugasemd að ekki væri til-
greind þar hæð urðunarreinanna.
Því svaraði umhverfisráðuneytið
þannig að þar sem hæð þeirra
væri ekki tilgreind í deiliskipu-
lagi sæi ráðuneytið ekki ástæðu
til að takmarka hæð þeirra í
starfsleyfinu. Í ljósi þessa teljum
við okkur alls ekki vera að brjóta
deiliskipulag.“
Einar sagði að stjórn sorp-
stöðvarinnar teldi sig hafa reynt
mjög mikið til þess að ná sam-
komulagi um hana, en það hefði
ekki gengið eftir.
„Hvað varðar innheimtu dag-
sektanna set ég spurningarmerki
við að þeir hafi möguleika á að
innheimta þær eftir að hafa í svo
langan tíma ekki sýnt neina til-
burði til þess. Á sínum tíma, er
þeir lögðu á þessar meintu dag-
sektir, kærðum við það til réttra
yfirvalda. Þegar við vorum búnir
að vera í viðræðum við þá um
lausn máls stöðvarinnar og höfð-
um kynnt fyrir þeim tillögu að út-
færslu á lögun reinanna, hæð
þeirra og frágangi öðrum, fengum
við þeirra umsögn þannig að þeir
væru búnir að fallast á þessar út-
færslur. Einungis væri formsat-
riði að ganga frá staðfestingu á
þeim. Í ljósi þess óskaði bæjar-
stjórinn, sem þá sat í stjórn stöðv-
arinnar, eftir því við okkur hina
sem þar sátum, að við drægjum
kæruna vegna dagsektanna til
baka. Við létum til leiðast til að
gera það í góðri trú. En við sjáum
nú að við höfum verið allillilega
plataðir í því máli.“
jss@frettabladid.is
Ráðstefna um matvælaöryggi:
Norrænar
áherslur lagðar
MATVÆLAÖRYGGI Í dag hefst á Hótel
Nordica ráðstefna um öryggi og
heilnæm matvæli og norrænar
áherslur í þeim efnum. Ráðstefnan
er haldin á vegum sjávarútvegs-,
landbúnaðar- og umhverfisráðu-
neytis í samvinnu við norrænu ráð-
herranefndina.
Að sögn Sigríðar Stefánsdóttur,
deildarstjóra matvælasviðs í um-
hverfisráðuneytinu, munu nokkrir
af virtustu sérfræðingum heims í
þessum málaflokki flytja erindi.
Ráðstefnunni lýkur á morgun en
í kjölfarið verður unnin skýrsla um
norrænar áherslur í þessum mála-
flokki. - bþe
■ EVRÓPA
SVONA ERUM VIÐ
SLYSATÍÐNI JEPPA EFTIR
DEKKJASTÆRÐ ÁRIÐ 2001:*
Talið er að um 300 lík sé að finna í fjöldagröf sem fannst í Írak:
Urðuðu börn og konur í fjöldagröf
ÍRAK, AP Talið er að um 300 lík
kúrdískra karla, kvenna og
barna sé að finna í fjöldagröf
sem fannst í norðurhluta Íraks.
Fórnarlömbin eru talin vera
fólk sem myrt var þegar
Saddam Hussein, fyrrum ein-
ræðisherra Íraks, fyrirskipaði
herferð gegn Kúrdum á árunum
1987 og 1988.
Að sögn Greg Kehoe, Banda-
ríkjamanns sem starfar á veg-
um dómstólsins sem á að rétta í
máli Saddams Hussein, hafa 120
lík þegar verið grafin upp úr
fjöldagröfinni. „Einhver notaði
þetta svæði við ákveðnar að-
stæður til að flytja lík hingað
eða til að koma með fólk hingað
og taka það af lífi,“ sagði hann
og sagði verksummerki benda
til þess að jarðýtur hefðu verið
notaðar til að urða líkin.
Meðal þess sem hefur fund-
ist í fjöldagröfinni er móðir sem
heldur á kornabarni. Barnið
virðist hafa verið skotið í bakið
og konan í andlitið.
„Þjóðarmorð er tilraun til að
útrýma eða fækka meðlimum
trúarhóps eða þjóðarbrots,“
sagði Kelho. „Kúrdar eru aug-
ljóslega af öðru þjóðerni en
Írakar. Gætu þetta verið þjóðar-
morð? Kannski.“ ■
UNDIRSKRIFTALISTAR
Á annað hundrað undirskriftir íbúa dreifbýlis og eigenda jarða í Ölfusi voru afhentar Hjörleifi Brynjólfssyni, oddvita sveitarstjórnar Ölfuss.
Þar var skorað á sveitarfélagið að sjá til þess að sorpstöðin fari nú þegar eftir gildandi deiliskipulagi við sorpurðun í Kirkjuferjuhjáleigu.
Jafnframt er þess krafist að sveitarfélagið nýti sér þau þvingunarúrræði og viðurlög sem það hefur yfir að ráða.
HUNDAR RÉÐUST Á FÓLK Í það
minnsta níu manns særðust al-
varlega þegar hópur um þrjátíu
hunda réðst á alla sem þeir sáu í
bænum Marras í Albaníu. Fleiri
íbúar særðust en sár þeirra voru
minniháttar. Fólkið þurfti að fara
um 40 kílómetra leið til að fá
bólusetningu gegn hundaæði.
MINNA ATVINNULEYSI Atvinnu-
leysi í Bretlandi á síðasta árs-
fjórðungi var minna en það hefur
verið frá því að farið var að
mæla atvinnuleysi með núver-
andi hætti fyrir tuttugu árum síð-
an. Atvinnulausum fækkaði um
51 þúsund og eru nú 1,4 milljónir
manna atvinnulausar.
ÁSAKANIR UM KOSNINGASVINDL
Raul Khadzhimba, fyrrum for-
sætisráðherra Abkasíu, hefur
farið þess á leit við saksóknara
að hann rannsaki kosningasvindl.
Khadzhimba bauð sig fram í for-
setakosningunum fyrr í mánuðin-
um en tapaði fyrir stjórnarand-
stæðingnum Sergei Bagapsh.
FÉKK NÝJAN VERJANDA Mikael
Nilsson hefur verið skipaður
verjandi Mijailo Mijailovic í stað
Per Althin. Mijailovic, sem var
fundinn sekur um að myrða Önnu
Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóð-
ar, sagði Althin ekkert ráðgast
við sig um vörn sína og vildi því
ekki hafa hann sem verjanda sinn
lengur.
Stálu fjölda
dvd-mynda
LÖGREGLA Brotist var inn í Bón-
usvideo við Geislagötu á Akureyri
í fyrrinótt og þaðan stolið fjölda
dvd mynda auk einhverra smá-
muna. Þjófurinn eða þjófarnir
tóku rúðu úr einum glugganum til
að komast inn og ekki uppgötvað-
ist um innbrotið fyrr en starfsfólk
mætti til vinnu í gærmorgun.
Ekki er vitað hverjir voru að
verki en málið er í rannsókn lög-
reglunnar á Akureyri. ■
VIÐ FJÖLDAGRÖFINA VIÐ HATRA
Fornleifafræðingurinn Michael Trimble virðir fyrir sér fjöldagröfina sem nú er verið að
grafa upp nærri Hatra í norðurhluta Íraks.
TONY BLAIR Á BRESKA ÞINGINU
„Ég afsaka það ekki að Saddam Hussein
hafi verið komið af valdastóli. Ég afsaka
ekki átökin í Írak. Ég trúi því að þau hafi
verið réttmæt þá, þau séu réttmæt nú og
nauðsynleg til þess að tryggja öryggi í
þessum heimshluta.“
Dekkja- Slysa- Fjöldi í
stærð hlutfall umferð
<33“ 6,14% 11.868
33“ 7,29% 576
35“ 6,57% 974
38“ 5,20% 577
44“ 6,82% 44
*Heimild: Slysatíðni breyttra jeppa -
Áfangaskýrsla II.
08-09 13.10.2004 20:27 Page 2