Fréttablaðið - 14.10.2004, Side 12

Fréttablaðið - 14.10.2004, Side 12
12 14. október 2004 FIMMTUDAGUR STÖRF FRAMKVÆMDASTJÓRNAR GERÐ UPP Romano Prodi sagði stækkun Evrópusam- bandsins til austurs og friðvænlegri Balkanskaga vera helstu afrek fram- kvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem hann veitti forstöðu síðustu fimm árin en lætur nú af störfum. Áfengiskaupaaldur: 18 ára kaupi bjór, 20 ára sterk vín STJÓRNMÁL Tuttugu og þrír alþing- ismenn úr öllum stjórnmálaflokk- um hafa lagt fram frumvarp á Al- þingi þar sem lagt er til að áfeng- iskaupaaldur verði lækkaður úr 20 árum í 18 en þó aðeins þegar um léttvín eða bjór er að ræða. Áfram megi aðeins 20 ára og eldri kaupa áfengi 22 prósent eða meira að styrkleika. Í greinargerð með frumvarp- inu er bent á að lögræðisaldur hafi verið lækkaður í 18 ár fyrir aldarfjórðungi síðan og lágmarks- aldur til stofnunar hjúskapar hafi verið 18 ár í meira en þrjá ára- tugi. Frumvarpið sem nú er lagt fram er svipaðs eðlis og frumvarp sem rætt var á síðasta þingi. Þá mælti allsherjarnefnd með því að frumvarpið yrði samþykkt og rök- studdi meða því að það skyti skökku við að sjálfráða einstak- lingar sem mættu ganga í hjóna- band „gætu ekki tekið ákvörðun um kaup og neyslu léttvíns og bjórs“. Frumvarpið var hins vegar ekki tekið til 2. umræðu á síðasta þingi, heldur „sofnaði“ í þinginu eins og sagt er. - ás HERSKIP Fjögur af rússnesku her- skipunum sem eftir voru á Þistil- fjarðargrunni fóru ekki á brott í gær eins og til stóð heldur eru þau aftur orðin sjö talsins. Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytis- stjóri hjá utanríkisráðuneytinu, segir ráðuneytið ekki telja ástæðu til að gera of mikið úr veru her- skipanna. „Þeir hafa verið tiltölulega ná- lægt landi vegna flugvélanna sem fylgja flugmóðurskipinu því þeir vilja hafa möguleika á að lenda á landi ef eitthvað bjátar á. Þeir voru búnir að til- kynna okkur það í lok september og báðu um leiðbein- ingar um hvert vélarnar þeirra gætu leitað,“ seg- ir Gunnar Snorri og bætir við að f l u g u m f e r ð a r - þátturinn vegna veru herskipanna sé það sem þeir hafi haft mestar áhyggjur af og leggi mesta áherslu á að sé í lagi. Hann segir rússneska flotann vera á æfingum og að þær hafi dregist. „ Við höfum ekki talið að okkur stafi ógn af þeim en höfum lagt áherslu á að fylgst sé með þeim og öllu þeirra háttalagi,“ segir Gunnar Snorri. Aðspurður hverjir sjái um að fylgjast með skipunum svarar Gunnar Snorri að Landhelgisgæslan og aðrir bandamenn hafi augun á skipun- um. Utanríkisráðuneytið hefur verið í sambandi við rússneska sendiráðið en Landhelgisgæslan við skipin sjálf. Gunnar Snorri segir að ekki hafi verið settar end- anlegar dagsetningar á dvöl flot- ans og viðveru. Þeir séu fyrir utan landhelgi og séu ekki að aðhafast neitt við fiskveiðar eða rannsókn- ir og því í sjálfu sér ekkert ólög- legt við veru þeirra innan fisk- veiðilögsögunnar. Skipin voru upphaflega sjö en á mánudag hélt flugmóðurskipið Kúsnetsov aðmíráll á brott frá landinu sem og tvö önnur skip úr flotanum. Um miðnætti á þriðju- dag var flugmóðurskipið ásamt skipunum tveimur aftur komin í hópinn ásamt Pétri mikla, einu birgðaskipi og tveimur dráttar- skipum. Í gærmorgun fékk Land- helgisgæslan upplýsingar frá skip- unum um að þau ætluðu að vera á svæðinu í fjóra daga til viðbótar. hrs@frettabladid.is Umferðarhelgi: Tugir létust í bílslysum SPÁNN, AP Á annað hundrað manns létust eða slösuðust í umferðar- slysum á Spáni frá síðasta föstu- degi og fram að miðnætti að- faranætur miðvikudags. Helgin er ein af mestu ferðahelgum árs- ins en á þriðjudag minntust Spán- verjar þess að Kristófer Kól- umbus fann Ameríku og héldu hátíðlegan dag jómfrúarinnar af Pilar. Alls létust 64 í 48 bílslysum frá föstudegi til þriðjudags, 55 til við- bótar slösuðust. Dánartalan var litlu lægri á sama tímabili í fyrra, þá létust 58. ■ ■ BANDARÍKIN ,,Við höf- um ekki talið að okkur stafi ógn af þeim en höfum lagt áherslu á að fylgst sé með þeim og öllu þeirra háttalagi. TOGARAVEIÐAR Írskur sjómaður heldur því fram að dag- lega falsi Írar skýrslur til þess að fela kvóta- svindl. Írland: Kvótasvindl rannsakað ÍRLAND, AP Grunur leikur á að írsk- ir togarasjómenn brjóti ítrekað lög Evrópusambandsins um fisk- veiðikvóta í kjölfar uppljóstrunar frá írskum sjómanni. Sjávarútvegsráðherra Íra, Noel Dempsey, skipaði fyrir um það í gær að rannsókn yrði látin fara fram. „Það væri stóralvar- legt mál fyrir landið að hafa á sér þann stimpil að við förum ekki eftir lögum sambandsins,“ sagði hann. Sjómaðurinn Pat Cannon sagði í bréfi til sjávarútvegsráðuneytis- ins, sem sent var 26. júlí, að hann hefði sannanir fyrir því að nær daglega væri veitt meira magn en reglugerðir Evrópusambandsins gerðu ráð fyrir. ■ STJÓRNMÁL Ráðuneytisstjóri utan- ríkisráðuneytisins skýrði frá því á fundi utanríkismálanefndar í gær að rússnesk stjórnvöld hefðu sagt íslenskum stjórnvöldum frá því að rússnesk skip yrðu á heræfingum undan Íslandsströndum. Sólveig Pétursdóttir, formaður utanríkis- málanefndar, segir að skipin hafi verið á alþjóðlegu hafsvæði og erfitt að amast við þeim: „Rússar létu vita af komu skipanna, þau eru að æfingum utan lögsögu okk- ar og svo fremi sem þau séu ekki að veiðum, rannsóknum eða fram- kvæmdum er ekki hægt að amast við þeim. Það liggja heldur engar upplýsingar um að kjarnorkuvopn séu um borð,“ segir hún. Sólveig Pétursdóttir segir að utanríkismálanefnd muni fylgjast með málinu og embættismenn hafi skýrt frá því að íslensk stjórnvöld, þar með talin Land- helgisgæslan hafi auga með skip- unum. „Þau eru hins vegar sögð fara eftir nokkra daga“ segir Sól- veig. - ás ÁFENGISKAUP Lagt er til í nýju frumvarpi að kaupa megi bjór og léttvín við átján ára aldur, en sterk vín þegar fólk hefur náð tvítugu. SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR „Rússar létu vita af skipunum,“ segir Sólveig, sem er formaður utanríkismálanefndar. Utanríkismálanefnd: Rússar sagðir hafa tilkynnt æfingarnar EITT HERSKIPANNA Flugmóðurskipið Kúsnetsov snéri frá landi en er aftur komið á Þistilfjarðargrunn. M YN D /L AN D H EL G IS G Æ SL AN Nálægt landi vegna flugæfinga Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins segir rússneska flotann vera ná- lægt landi vegna flugæfinga. Þeir hefðu tilkynnt um komu sína í lok september og fengið leiðbeiningar um hvar þeir gætu lent flugvélum. BLOGGSÍÐAN Tæplega þrjátíu nöfn er að finna á listan- um yfir meinta eiturlyfjasala sem settur hefur verið upp á netinu. Sumir eru nefnd- ir að fullu en aðrir með gælunafni. Bloggsíður: Meintir dópsalar á internetinu UNDIRHEIMAR Vefsíða með lista yfir nöfn meintra eiturlyfjasala hefur verið sett upp á netinu. Fyr- ir síðunni stendur Björn Sigurðs- son og lýsir hann þar ástæðum þess að hún var sett upp. Björn lýsir því hvernig syni hans var rænt af handrukkurum og stungið í farangursgeymslu á bíl. Þaðan tókst honum að hringja í föður sinn og láta vita af því hvað gekk á. Hann kallaði til lög- reglu og hélt svo á eftir handrukk- urunum. Í kjölfarið segir Björn að hann hafi verið lagður í einelti af „íslensku mafíunni“ í um hálft ár en látið hafi verið af ofsóknunum þegar hann hótaði að láta af hendi til lögreglu listann sem hann hef- ur nú tekið að birta á netinu. ■ ÁGÚST EINARSSON Ágúst segir að með því að hækka skrán- ingargjöld í Háskólanum sé verið að lauma inn skólagjöldum í grunnám og velta kostnaði yfir á nemendur. Prófessor við HÍ: Ósáttur við hærri gjöld SKÓLAMÁL Ágúst Einarsson, pró- fessor við viðskiptafræðiskor Háskóla Íslands, gagnrýnir harð- lega fyrirætlanir þær sem fram koma í fjárlagafrumvarpi næsta árs um að skrásetningargjöld við háskólann hækki í 45 þúsund krónur. Gjöldin eru nú 32.500 krónur. „Þarna er verið að tala um næstum því 40 prósenta hækkun,“ segir Ágúst og telur að þarna sé verið að skapa mikinn óróa og óánægju meðal nemenda fyrir lítinn ávinning. „Þetta á ekki að gefa nema um 100 millj- ónir, sem er náttúrlega bara brot í rekstri skólans,“ segir hann og bendir á að háskólinn eigi millj- arða í hlutabréfum í Eimskipafé- laginu sem sáralítið hafi fengist fyrir. „Þarna er greinilega verið að lauma inn skólagjöldum bak- dyramegin inn í grunnámið. Mér finnst að menn eigi þá bara að kalla hlutina sínum réttu nöfn- um.“ ■ BYSSUEIGENDUR VILJA BUSH Samtök bandarískra byssueig- enda, National Rifle Associaton, hafa yfir lýst stuðningi við George W. Bush Bandaríkjafor- seta í forsetakosningunum í nóv- ember. Þeir segja Bush besta kostinn til að verja hagsmuni byssueigenda og sporna við tak- mörkunum við byssueign. 12-13 13.10.2004 22:12 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.