Fréttablaðið - 14.10.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 14.10.2004, Blaðsíða 14
14 14. október 2004 FIMMTUDAGUR HAMAS-FORINGI HANDTEKINN Ísraelskir hermenn handtóku í gær Emad Qawasmeh, leiðtoga Hamas, í Hebron á Vesturbakkanum. Qawasmeh er grunaður um að hafa sent fjölda manns til sjálfs- morðsárása í Ísrael. Hermennirnir tóku enga áhættu og fyrirskipuðu honum að af- klæðast öllu nema nærfötunum svo ljóst væri að hann væri ekki vopnaður. Kostir og gallar í heilbrigðiskerfinu: Teymisvinna getur verið tímasóun HEILBRIGÐISMÁL Teymisvinna í heil- brigðiskerfinu getur auðveldlega verið tímasóun, ef slíkar aðstæð- ur eru fyrir hendi, segir Lárus Steinþór Guðmundsson, formaður Samtaka heilbrigðisstétta. Teymisvinna á ýmsum sviðum heilbrigðismála hefur farið mjög vaxandi á síðari árum. Lárus seg- ir að vel þurfi að halda á spilum í þeim efnum ef tími eigi ekki að fara til spillis. „Tökum sem dæmi verkja- teymi,“ segir hann. „Sjö heil- brigðisstarfsmenn hittast til þess að fjalla um tíu einstak- linga. Ef einungis hluti þessara heilbrigðisstarfsmanna þekkja sögu og aðstæður þeirra sem á að meðhöndla, þá þarf að eyða tíma í að kynna aðstæður hvers viðfangsefnis. Samkomulag þarf að vera gott og heilbrigðisstarfs- mennirnir þurfa að tala sama „tungumálið“. Ef bakgrunnur þeirra er misjafn, getur þurft að fara yfir skilgreiningar og sam- ræma túlkun og skilning á þeim. Þá getur verið ágreiningur í teyminu um hvernig eigi að taka eigi á málum og farið umtals- verður tími í að leysa hann.“ Heilbrigðisstarfsmenn frá ólíkum sviðum innan heilbrigðis- kerfisins ætla að tjá skoðanir sín- ar á þessu viðfangsefni á málþingi í dag klukkan 16.15 í Setrinu á Grand Hótel. ■ Námið brýtur ein- angrunarmúrinn Þess eru dæmi að fólk hafi útskrifast úr háskóla með aðstoð samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Geðhjálpar. Einn nemenda segir að námið sé svo mikils virði fyrir sig, að án þess væri hann kominn „sjö fet ofan í jörðina“. MENNTAMÁL Menntun geðsjúkra miðar fyrst og fremst að því að rjúfa þann einangrunarmúr sem þeir hafa lifað í. Það byggir upp sjálfsmynd þeirra og hjálpar hverjum og einum að finna sinn styrkleika. Eða eins og einn nem- endanna í Geðhjálparhúsinu orðaði það við Fréttablaðið í gær: „Ég væri kominn sjö fet ofan í jörðina ef ég hefði ekki námið hérna.“ Það var verið að kenna í þremur rýmum í Geðhjálparhúsinu, þegar blaðið leit þangað í heimsókn í gær. Námið er á vegum samstarfsverk- efnis Fjölmenntar og Geðhjálpar. Þá stundina var verið að kenna ensku, íslensku og myndlist. Nem- endurnir voru á ýmsum aldri, en allir áttu þeir eitt sameiginlegt, brennandi áhuga á náminu. Þeir sem eiga möguleika á að stunda nám á haustönn eru um 90 talsins, að sögn Helga Jósepssonar verk- efnisstjóra. „Um 10 prósent þeirra taka áfangabær próf,“ sagði hann. „Námið hér miðar meðal annars að því að hjálpa fólki til að brjóta niður múrinn, stíga yfir þröskuld- inn og koma fram,“ sagði Guðný Svava Strandberg kennari, sem kennir myndlist og ljóðagreiningu, ásamt fleiru. „Skólinn hefur bjarg- að lífi þessa fólks. Þetta er það sem heldur því gangandi og sem það lif- ir fyrir, að taka þátt í náminu, legg- ja eitthvað af mörkum og sjá eitt- hvað eftir sig. Fólk hefur útskrifast úr háskóla með okkar hjálp. Sumir hafa dottið út úr skóla, til að mynda vegna ein- eltis, en fundið sig aftur hér.“ Samstarfsverkefnið hefur átt erfitt uppdráttar í haust. Illa gekk að tryggja fjármuni til haustannar- innar og starfsfólki var sagt upp. Síðan fengust sex milljónir sem dugðu til 60 prósenta af þeirri kennslu, sem þörf var fyrir. Meðal annars þurfti að ýta út af borðinu kennslu fyrir þá sem eiga við lestr- ar- og skriftarörðugleika að etja. En nú horfir betur, að sögn Helga, því menntamálaráðuneytið hefur boðað til viðræðna um upp- töku samningsins. jss@frettabladid.is ■ ASÍA ODDUR BENEDIKTSSON Telur að hættuástand kunni að skapast á höfuðborgarsvæðinu vegna mengunar. Borgarstjóri: Kannar mengun UMHVERFISMÁL Þórólfur Árnason borgarstjóri hefur falið Umhverf- is- og heilbrigðisstofu borgarinn- ar að fjalla um opið bréf Odds Benediktssonar, prófessors, þar sem kemur fram að losun brenni- steinstvíildis á höfuðborgarsvæð- inu muni nær tvöfaldast á næstu árum. Munar þar mestu um fyrir- hugaða stækkun Norðuráls og Ál- versins í Straumsvík og byggingu rafskautaverksmiðju við Hval- fjörð. Ef svo fer fram sem horfir verður losunin orðin helmingur af heildarlosun Dana og gæti valdið hættuástandi á höfuðborgarsvæð- inu að mati Odds. ■ ÖNNUM KAFIN Jakob Bragi Hannesson var að kenna íslensku í Geðhjálpar- húsinu í gær. Hann kennir einnig rússnesku. ÞÝÐING NÁMS Guðný Svava Strandberg kennari segir marga eiga náminu líf sitt að þakka. ENSKUKENNSLA Enska er ein greinanna sem kennd er í Geðhjálparhúsinu. Hér er það Ágúst Þor- steinsson kennari sem stendur við töfluna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Helgireitur múslima: Takmarka fjölda gesta ÍSRAEL, AP Ísraelar ætla að tak- marka fjölda þeirra múslima sem fá að biðjast fyrir í helgireitnum Haram a-Sharif í Jerúsalem með- an á Ramadan, helgum mánuði múslima, stendur. Einungis 60 þúsund múslimar fá að heim- sækja reitinn en venjulega skipta þeir hundruðum þúsunda. Lögregla og Forngripastofnun Ísraels segja ekki hættandi á að hleypa fleirum að fyrr en endur- bætur hafa farið fram á Haram a- Sharif. Þessu hafa forystumenn múslima andmælt og segja enga hættu á ferðum. ■ BEIT TUNGU AF NAUÐGARA Lög- reglan í Bangkok leitar nú manns sem reyndi að nauðga sautján ára stúlku. Hún brást við með því að bíta af hluta af tungu hans og tókst þannig að sleppa frá hon- um. Beðið er eftir því að maður- inn leiti sér læknishjálpar. FJÓRIR LÉTUST Í HAND- SPRENGJUÁRÁS Fjórir létust og 35 særðust þegar handsprengju var kastað inn í hús í Jalal þorpi í Afganistan meðan brúðkaups- veisla stóð yfir. Gestirnir voru að hlusta á tónlist þegar árásin átti sér stað en íslamskir harðlínu- menn sem ráða miklu á þessum slóðum hafa bannað allan tónlist- arflutning. SIGURÐUR GUÐMUNDSSON Landlæknir er einn þeirra sem fjalla um kosti og ókosti teymisvinnu á málþinginu í dag. 14-15 13.10.2004 20:17 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.