Fréttablaðið - 14.10.2004, Blaðsíða 35
Beint flug til Búdapest er nú bæði
vor og haust á vegum Heims-
ferða. Í annan tíma verða menn að
skipta um farartæki á miðri leið.
Jón Gunnar Gunnarsson hefur
dvalið að hluta til í Búdapest síð-
astliðinn áratug. Að hans sögn er
það að öllu leyti gott nema hvað
tunga landsmanna er heldur
strembin! Þótt Ungverjar séu nú
orðnir aðilar að Evrópusamband-
inu nota þeir enn gjaldmiðilinn
Forintu sem er um 0,35 krónur. Í
stuttri heimsókn gætu ferðalang-
ar kíkt í Budapest Guide til að
finna eitthvað við hæfi. Annars
eru hér nokkur góð ráð frá Jóni
Gunnari. ■
7FIMMTUDAGUR 14. október 2004
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Dubli
n
37.810 kr.
Dublin bíður þín
á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótelinu,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Netverð
4., 11., og 25. nóvember
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is
Fjörug kráarstemmning, freyðandi Guinness,
frábærar verslanir og einungis 2ja klst.
beint leiguflug. Vorum að fá í sölu nýtt hótel
á glæsilegu kynningarverði; ekta írskur pöbb,
fín herbergi og góð staðsetning.
Skoðaðu nánar á www.uu.is
netverð á mann í tvíb‡li á Grand Canal í 4 nætur.
Flugsæti: 29.900 kr. – skattar innifaldir.
39.910* kr.
* Innifali›: Beint flug, skattar, gisting
m/morgunver›i og íslensk fararstjórn.
Ekki innifali›: Ferðir til og frá flugvelli erlendis.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
61
28
1
0/
20
04
Dublin
28. okt.–2. nóv. • TILBOÐ
Búdapest:
Tunga landsmanna heldur strembin
BÚÐIR
Vöruhús með allt milli himins og
jarðar eru verslanakeðjurnar Auchan,
Cora, Tesco, OBI og fleiri. „Kringlur“
má nefna svo sem Mammut, MOM
Park, West End og Dunaplaza. Til að
fá endurgreiddan vask af innkaup-
um þarf einstök vara að vera yfir
50.000- forintur að verðmæti (en
spyrja í Tax free búðum).
ÚTI- OG FLÓAMARKAÐIR
Ecseri er flóamarkaður og einnig er
markaður á Fõvám tér 1-3 sem þó
er lokaður á sunnudögum. Hann er
stærsti og skemmtilegasti markaður-
inn (aðallega matvara samt).
VEITINGASTAÐIR
Að sönnu ættu ferðalangar að smak-
ka á Gulyás leves (frb. Gújass levess)
eða gúllassúpu. Ungverska gúllasið
er nefnilega ekki kássa heldur súpa.
Gundel er sennilega frægasta nafnið
í Budapest og verðið 3-8falt á við
það sem víða er. Annar góður er
Múzeum, rétt við Þjóðminjasafnið.
Minn staður er á Krisztina tér 3
(Búda) og kalla ég hann Puskás-
staðinn en nafnið er Horváth
restaurant.
SÖFN/ÁHUGAVERÐIR STAÐIR
Það eru um 223 söfn og gallerí af
ýmsu tagi í borginni. Opin frá 10-18,
lokuð á mánudögum. Nefna má:
Liszt Museum fyrir tónlistaráhuga-
fólkið, Nútímalistasafnið, Konungs-
höllina B, C, D, álmur, Budapest Hi-
storical Museum, Hungarian
National Gallery and National Library
eru í höllinni, Hryllingssafnið reynir
að sýna aðferðir kommúnista og
nasista gegn andstæðingunum eftir
handtöku. „Museums in Budapest“
er gott safnaupplýsingarit.
BÓKABÚÐIR
Bókabúðir má t.d. finna í „Kringlun-
um“. Enskar notaðar vasabrotsbækur
á Red Bus, Semmelweis u. 14 í mið-
bænum (V hverfi). Irok boltja (Bóka-
búð rithöfundanna) Andrássy út 45.
GÖNGULEIÐIR
Kastalahverfið með veitingastöðum,
sérverslunum. Matthíasarkirkjunni,
ungverska vínhúsinu og konungs-
höllinni. Skreppa upp á Gellért-hæð
og fá góða yfirsýn yfir ána og borg-
ina. Það eru um 100 heitavatnslindir
í borginni og um 2 milljónir gesta
líta við í Széchenyi-sundlaugunum
árlega. Váci útca er göngugata með
verslunum, kaffi- og veitingahúsum
og vasaþjófum! Svo er grjótupplagt
ef tími gefst að fara smábátsferð á
Dóná. Budapest-kort gefur afslátt á
ýmsu svo sem í almannasamgöngu-
tæki, söfn og fleira.
Jón Gunnar Gunnarsson kann vel við sig í Búdapest.
Hetjurtorgið eða Hosak tere.
Matthíasarkirkjan.
Búdapest-maraþonhlaupið hafa all-
margir Íslendingar þreytt á síðustu
tveimur árum. Sauðkrækingar héldu
uppi heiðri landans í haust. Þá má
nefna að nýkrýndur forsætisráðherra
skokkar það líka að sögn Jóns Gunnars.
Þinghúsið.
Frá „humarhátíð“ handverksmanna á
Kastalahæð í fyrrasumar.
Dömufrí til Lundúna í nóvember:
Síðdegiste
á Savoy,
mín kæra?
Iceland Express býður upp á fjögurra
daga dömufrí í London í nóvember.
Þrír dömuráðgjafar verða með í för,
þær Helga Braga, Edda Björgvinsdóttir
og Björk Jónsdóttir sem eru góð-
kunnar að kvenlegum yndisþokka.
Allar konur ættu að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi, hvort sem þær
kjósa að rölta um hippaslóðir, fara á
markaði, drekka síðdegiste á Savoy,
skoða listasöfn eða bara versla og
versla. Ferðin hefst í Leifsstöð 19.nóv-
ember og innifalið er flug, gisting á
fjögurra stjörnu hóteli, sérlegur
skemmtikvöldverður og fleira. Verð í
tveggja manna herbergi er 49.500
krónur á manninn í þrjár nætur en
aukagjald fyrir einsmannsherbergi er
16.000 krónur. Nánari upplýsingar er
að finna á icelandexpress.is. ■
Elísabet hlakkar til að fá íslensku vin-
konurnar sínar í heimsókn.
- mest lesna blað landsins
Á LAUGARDÖGUM
Hin hliðin á bílum
Stærsti bílamarkaður landsins
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
30/35 (06-07) Allt ferðir 13.10.2004 16:22 Page 3