Fréttablaðið - 14.10.2004, Side 41

Fréttablaðið - 14.10.2004, Side 41
Stofnendur Google gera nú víð- reist í Indlandi þar sem þeir leita að hæfileikaríkum forriturum sem þeir hyggjast ráða til félags- ins. Nýjungar á Google-leitarvél- inni eru margar hverjar hannaðar í Banga- lore en þar hefur undan- farin ár risið mikill hugbúnaðar- iðnaður. Meðal nýjunga sem Google vinnur að er að gera notendum kleift að tala við leitarvélina og óska eftir leitarniðurstöðum í mæltu máli. Auk þess verður tungumálamögu- leikum fjölgað auk þess sem not- endur geta í sífellt meiri mæli sniðið viðmót leitarsíðunnar eftir eigin óskum og hentisemi. ■ Landsbankinn skoðar ýmsa fjárfestingarkosti í Bret- landi. Fullyrðingum um að fyrirtækið Numis væri með- al þeirra er neitað. Talsmaður Landsbankans segir að fréttir breskra fjölmiðla um að bankinn hyggist gera yfir- tökutilboð í fjármálafyrirtækið Numis í Bretlandi séu rangar. Hann staðfestir hins vegar að Landsbankinn hafi ráðið alþjóð- lega ráðgjafafyrirtækið HSBC til þess að aðstoða við leit að tæki- færum til fjárfestingar í bresk- um fjármálafyrirtækjum. Landsbankinn vísar því einnig á bug, sem fram kom í fréttum í Bretlandi, að tilraun hafi verið gerð til að kaupa verðbréfafyrir- tækið Evolution Group. Talsmaður Landsbankans úti- lokar hins vegar ekki að þessi tvö fyrirtæki hafi komið til at- hugunar hjá HSBC en hið sama geti gilt um tugi annarra fyrir- tækja sem hafi verið gaumgæfð. Forsvarsmenn Landsbankans hafa ítrekað lýst yfir að hugur þeirra standi til fjárfestinga í út- löndum og gerði bankinn tilraun til að kaupa danska bankann FIH. Sú tilraun mistókst og KB banki keypti bankana á um níutíu milljarða. Landsbankinn telur sig færan um að fjárfesta í útlöndum fyrir um hundrað milljarða króna og því væri fjárfesting í Numis ekki stór biti miðað við framtíðar- áform bankans. - þk Kaupa ekki Numis FIMMTUDAGUR 14. október 2004                  !  "  "# #$ #%  &#  #  $#  ' () * #   +  ,#  &  #  # &     &  - -#   &# ##&   &# # $ ! #  .     '  /'  #/0   1023//2   +  ,#   11  '    %  &$#   &#       %  4 & %   &#  # - &$#     ' 5 $# -#  # &     #    &#  2       &6$#6 7 8  '       # #&  $    #   # * 9       #!   2  !  # & # : &   ; $!    2       "  # #  &+   #*<$ '  ##! $!        " $  !&     #  =#> ,#<   %& & $!  #!                   5) >  ##    ?'   @0/0AB/ @0/0   HÖFUÐSTÖÐVAR YAHOO Netfyrirtæk- ið Yahoo er í Sunnyvale í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Þar skín sólin flesta daga og nú á bókhaldið hjá Yahoo. Yahoo græðir Internetfyrirtækið Yahoo sýndi betri afkomu en búist var við á síðasta ársfjórðungi. Hagnaður fyrirtækisins er fjórum sinnum meiri en hann var á sama tíma í fyrra. Alls græddi Yahoo 253 millj- ónir Bandaríkjadala (um átján milljarða króna). Stór hluti hagn- aðarins er vegna sölu á hlut fé- lagsins í Google en á þeim við- skiptum græddi Yahoo 191 millj- ón dali (um 13,5 milljarða króna). Verð á hlutafé í Yahoo hækk- aði á mörkuðum í gær. Bréf í fé- laginu kosta nú um 36 dali en fóru mest í 118 dali þegar netból- an reis sem hæst. Þetta var í árs- byrjun árið 2000. Lægst fóru bréfin í 4,05 dali haustið 2001 og hafa því nífaldast í verði síðan. ■ Á LEIÐ Í ÚTRÁS Landsbankinn hyggur á fjárfestingar en segir breska fjölmiðla vera á villigötum. STOFNENDUR GOOGLE Á Indlandi starfa margir hæf- ustu hugbúnaðarsérfræðingar heims. Stofnendur Google ferðast nú um landið í leit að starfsmönnum. Ráða fleiri í Indlandi Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is Við sækjum hraðsendingu til fyrirtækis og ökum henni beint til móttakanda, fyrirtækis eða einstaklings. Ekki bíða að óþörfu. Fáðu sendinguna samdægurs með Póstinum. Láttu ekki eins og þú getir beðið ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IS P 23 96 1 1 0/ 20 04 www.postur.is SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » 24-41 (24-25) Viðskipti 13.10.2004 19:56 Page 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.