Fréttablaðið - 14.10.2004, Page 57
Vondir menn ræna vesalings Kim
Basinger og koma henni fyrir á
afskekktu háalofti fyrir utan bæ-
inn. Þar kemst hún að því að ill-
mennin ætli sér að ræna syni
hennar og eiginmanni líka þar
sem húsbóndinn hefur eitthvað í
fórum sínum sem skúrkarnir vilja
koma höndum yfir. Kim er skörp
kona og áttar sig á því að um leið
og glæpamennirnir hafa fengið
það sem þeir vilja muni þeir
drepa fjölskylduna.
Í örvæntingu tekst henni að
hringja úr ónýtum síma og nær
sambandi við Chris Evans sem
leikur ungan sjálfumglaðan
spjátrung sem er nýbúinn að
ákveða að sanna það fyrir fyrr-
verandi kærustunni að hann geti
verið góður gæi sem lætur sér
annt um aðra. Hann ákveður því
að reyna að hálpa Kim í stað þess
að skella umsvifalaust á.
Okkar maður keyrir svo ýmist
eða hleypur eins og óður maður um
borg og bý til þess að reyna að eyði-
leggja áform vondu kallanna. Það
gengur þó frekar brösuglega enda
skúrkarnir milku klókari en ung-
lingspilturinn sem á þó eftir að sýna
óvænt tilþrif. Myndin nær ágætis
keyrslu og er vel yfir meðallagi í
hasarmyndadeildinni. Spennan
verður aldrei óbærileg en heldur
manni við efnið auk þess sem reyt-
ingur af bröndurum flýtur með.
Inn í eltingarleikinn blandast
gamalreynd, krúttleg lögga sem
William H. Macy fer létt með að
gera skil á sinn sjarmerandi hátt
en það eru ekki síst Macy og
töffarinn Jason Statham, í hlut-
verki aðal vonda kallsins, sem
lyfta myndinni upp. Þá er heldur
ekkert út á gömlu sexbombuna
Kim Basinger að setja þó það
reyni ekki mikið á leikhæfileik-
ana þegar kemur að túlkun tauga-
veikluðu konunnar í símanum.
Þórarinn Þórarinsson
FIMMTUDAGUR 14. október 2004
Símtal dauðans
CELLULAR
LEIKSTJÓRI: DAVID R. ELLIS
AÐALLHUTVERK: KIM BASINGER, CHRIS
EVANS, WILLIAM H. MACY
NIÐURSTAÐA: Cellular er spennumynd vel yfir
meðallagi. Keyrslan er hröð og manni leiðist
ekki yfir henni. Góðir aukaleikarar lyfta henni
svo á hærra plan.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Sterkur ástarhiti ríkti á milli Le-
onardo DiCaprio og Kate Winslet
í kvikmyndinni Titanic, að sögn
breskra vísindamanna í skólan-
um King College í London. Vís-
indamennirnir hafa fundið nýja
aðferð til að reikna út ástarbloss-
ann sem ríkir á mill leikara í
kvikmyndum. Fyrsta myndin
sem þeir prófuðu var fullnæging-
aratriðið úr When Harry Met
Sally. Niðurstaðan var sú að hit-
inn á milli Billy Crystal og Meg
Ryan hefði verið gríðarlegur. Því
næst reiknuðu þeir hitann á milli
Ingrid Bergman og Humphrey
Bogart í Casablanca og þar fór
hitinn upp úr öllu valdi. Hæst á
skalann komust þó Leo DiCaprio
og Kate Winslet í atriðinu þar
sem hann teiknar mynd af henni
naktri í bíómyndinni Titanic.
Vísindamennirnir styðjast
meðal annars við málróm leikara,
augnsamband, líkamstjáningu og
spenning til að finna út hversu
heitur ástarblossinn var.
„Í Titanic töluðu leikararnir
við hvor annan á eðlilegan hátt.
Það var enginn leikur,“ sagði sál-
fræðingurinn Stephanie Charters
sem rannsakað hefur myndirnar.
„Þegar Meg Ryan í hlutverki
Sallyar gerir sér upp fullnæg-
ingu í When Harry Met Sally lít-
ur Billy Crystal hana allt öðrum
augum en í öðrum senum mynd-
arinnar. ■
Reikna út ástarhita leikara
LEONARDO DICAPRIO Samkvæmt niðurstöðu vísindamanna var ástareldurinn sem ríkti
milli hans og Kate Winslet ekkert plat.
■ FÓLK
■ TÓNLIST
Breski raftónlistarmaðurinn Four
Tet, sem heitir réttu nafni Kieran
Hebden, spilar á Iceland Airwa-
ves-hátíðinni í Hafnarhúsinu
fimmtudagskvöldið 21. október.
Er hann talinn einn sá efnilegasti
á sínu sviði í heiminum í dag.
Hebden, sem einnig er meðlim-
ur síðrokksveitarinnar Fridge,
hefur gefið út fjórar sólóplötur
undir nafninu Four Tet. Tónleikar
með kappanum þykja einstakir,
enda hefur hann hitað upp fyrir
ekki ómerkari bönd en Radiohead.
Tónlist hans má lýsa sem sam-
bræðingi af raf-, hip hop og þjóð-
lagatónlist. Svipar henni nokkuð
til þess sem íslenskir raftónlistar-
menn á borð við Múm og Mugison
búa til. Við þetta er að bæta að síð-
asta plata Four Tet, Rounds, var á
lista yfir bestu plötur síðasta árs
hjá virtum tónlistartímaritum á
borð við NME og Uncut. Það fylg-
ja honum því svo sannarlega ekki
slæm meðmæli fyrir komuna
hingað til lands.
Ánægður með nýju plötuna
Eftir stutt spjall við blaðamann
um Ísland og hljómsveitir á borð
við Sigur Rós, Slow Blow og Mug-
ison, segist Hebden vera hæstá-
nægður með sína síðustu plötu.
„Þetta er fyrsta platan sem nær
mínu sándi, sem hljómar eins og
ég. Ég er ánægður með fyrri plöt-
ur mínar en þar er stundum hægt
að heyra of auðveldlega hvaða
tónlist ég hafði verið að hlusta á,“
segir hann. „Sándið á nýju plöt-
unni er hins vegar nokkuð sér á
báti. Hún hljómar eins og tónlistin
hafi komið frá mér frekar en ein-
hverjum öðrum.“
Gaman með Radiohead
Tónleikar Four Tet hafa fengið
hæstu einkunn í gegnum tíðina.
Hebden segist leggja mikið upp
úr góðum tónleikum því þar geti
hann þróað lögin sín áfram eftir
að þau hafi komið út á plötu. Hann
segist hafa haft mjög gaman af
tónleikaferð sinni með Radiohead.
„Þeir eru mjög fínir strákar, kurt-
eisir og vingjarnlegir. Þeir eru
mjög athyglisverðar persónur og
það er gaman að horfa á þá búa til
tónlist,“ segir Hebden, sem hitaði
upp fyrir sveitina er hún var að
semja lög fyrir síðustu plötu sína,
Hail to the Thief. Hann bætir við:
„Sumt sem þeir gera, ja... ég bara
skil ekki hvernig þeir fara að því.
Það er ótrúlegt.“
Til Finnlands og svo í pásu
Eftir tónleikana hér á landi treður
Four Tet upp í Finnlandi en síðan
ætlar hann í langþráða pásu.
Hefst þá smám saman vinna við
næstu plötu. Hebden segist ekki
hafa hugmynd um hvernig hún
muni hljóma. „Hún verður örugg-
lega öðruvísi en það sem ég hef
áður gert,“ segir hann og á erfitt
með að tína til nýja áhrifavalda.
„Eftir því sem ég ferðast meira,
heyri ég sífellt fjölbreyttari tón-
list. Þegar ég spilaði í Brasilíu
keypti ég til dæmis mjög góða
brasilíska tónlist sem ég hef
hlustað mikið á. Ég hlusta á mjög
mismunandi hluti, stundum set ég
diskóplötu á fóninn, stundum
pönkplötu og stundum hip hop.“
Góðvinur Múm
Hebden er góður vinur íslensku
sveitarinnar Múm og hittir hana
af og til. Hann segist aftur á móti
ekki hafa uppi áform um að starfa
með henni á næstunni. „En þegar
ég kem vonast ég til að hitta
margar frábærar íslenskar sveit-
ir,“ segir hann og bætir við: „Ég
hef heyrt að Reykjavík sé lítil
borg og þar sé ekki mikið af fólki.
Þar sé samt mjög fallegt. Það
verður samt örugglega skrítið að
koma þangað því þar verður fullt
af fólki frá London alls staðar. Það
er það eina slæma við þessa ferð.
Kannski þarf ég að koma aftur
seinna þegar ég er bara einn.“
freyr@frettabladid.is
Skrítið að koma til Reykjavíkur
FOUR TET Þessi efnilegi raftónlistarmaður er á leiðinni hingað til lands. Tónleikar hans verða í Hafnarhúsinu fimmtudagskvöldið 21.
október.
56-57 (40-41) Fólk 13.10.2004 19:52 Page 3