Tíminn - 24.02.1974, Síða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 24. febrúar 1974.
Jeppum hætta búin í París
Svo virðist, sem ekki sé óhætt að
skilja við sig jeppabila i Paris.
Brennuvargur nokkur gengur
nú laus þar i borg, og leggur
hann i vana sinn að kveikja i
bilum, sem skildir hafa verið
eftir á götum úti. Frá þvi 23.
desember sl. hefur verið kveikt
i 55 bilum i Paris, og þar af
voru tuttugu og sjö Meharis,
sem eru bilar frá Citroen, og
likjast einna helzt jeppum.
Lögreglan hefur aukið að mun
eftirlitá götum úti um nætur, en
þrátt fyrir það hefur ekki enn
tekizt að hafa hendur i hári
brennuvargsins. Lögreglan
heldur þvi fram, að ekki þurfi
hér að vera á ferðinni sami
maöurinn i öllum tilfellum,
heldur geti vel verið, að eftir að
fréttir fóru að birtast i
blöðunum hafi aðrir tekið sig til
og farið að apa eftir brennu-
varginum sjálfum. Þetta segir
lögreglan, þar sem hún telur, að
nokkuð mikið sé að ætla einum
og sama brennuvarginum að
hafa kveikt i samtals 55 bilum á
aðeins 6 vikum. Þar við bætist,
að það hlýtur að taka töluverðan
tima fyrir einn mann að leita
uppi alla þessa Meharis-bila.
☆ ☆☆☆☆☆☆
Framfærslu-
kostnaður eykst
Framfærslukostnaður i Frakk-
landi jókst um 8.5% á siðasta
ári, að þvi er segir i skýrslum
frá frönsku rikisstjórninni.
Fjármálaráðherrann, Valery
Giscard d’Estaing hefur lýst þvi
yfir, að hann telji að kostnaðar-
aukningin verði enn meiri i ár
vegna oliuverðhækkana. Mestar
urðu verðhækkanir á matvælum
siðasta ár, en þær munu hafa
numið 10.9%, en þar af hækkuðu
egg meira en nokkur önnur
matvara, eða um 32,9%.
Fatnaður og efni alls konar
hækkuðu um 8.6%. Það var
meira en meðalhækkunin varð á
iðnaðarvörum, en hún mun
hafa verið 6.7%.
Sumir halda þvi fram, að hér sé
á ferðinni sami brennuvargur-
inn og gekk um og kveikti i
einum sex verzlunarhúsum i
Paris á siðasta ári. Mestur varð
eldurinn og tjónið þegar
verzlunarhús á þremur hæðum
við Place de l’Opera brann.
Enginn meiddist i þeim bruna,
en skemmdir urðu mjög miklar.
☆ ☆☆☆☆☆☆
Pappírsskortur
framundan
Pappirsskortur vofir nú yfir
frönskum dagblöðum, og
ástæðurnar er að finna i þvi, að
Rússar hafa tvöfaldað verð á
viði. Rússar hafa meira að
segja látið i það skina við
Frakka, að þeir séu ekki
fáanlegir til þess að selja þeim
eins mikið af viðarkvoðu og þeir
vilja fá, meira að segja ekki þótt
þeir séu fúsir að greiða þetta
háa verð. Þeir fjórðu þessa
viðar, sem franskir pappirs-
framleiðendur nota, er upp-
runninn i Sovétrikjunum. Sem
betur fer kemur helmingur þess
pappirs, sem Frakkar nota frá
Norðurlöndunum, en er ekki
framleiddur i Frakklandi sjálfu.
Norðurlöndin eru bundin
samningum, sem gilda enn um
nokkurt skeið, hvað snertir
pappirssölur ti! Frakklands.
Franskir pappirsframleiðendur
munu reyna að fá eitthvað
meira af trjákvoðu i Frakk-
landi, en þeir hafa gert fram til
þessa, en talið er liklegt, að
nokkuð dragi úr framboði þar á
næstu mánuðum . Dagblöðin i
Frakklandi hafa nú verið að
kanna grundvöll fyrir minnkun
og um leið pappirssparnaði, og
sér i lagi, að dregið verði úr
prentun umframbiaða, sem
hingað til hafa kannski ekki
selzt. Fram til þessa hafa
frönsk blöð ekki orðið eins
alvarlega vör við pappirsskort-
inn i heiminum, eins og til
dæmis blöð i Bandarikjunum og
Bretlandi.
★ ★★★★★★★★★★★★★★
Heimsmeistarakeppni
í rúlluskautahlaupi
29 keppendur frá 16 löndum
voru meðal keppenda i heims-
meistarakeppninni i rúllu-
skautahlaupi. Keppnin var
haldin i Essen i Ruhr-héraðinu i
Vestur-Þýzkalandi. 2500 áhorf-
endur sáu keppnina um heims-
meistaratitilinn milli tveggja
vestur-þýzkra stúlkna. Til
vinstri er heimsmeistarinn,
Sigrid Múllenbach, og til hægri
Petra Hausler sem hreppti
annað sætið, en hún var áður
heimsmeÍBtari. Ann-Debra Pall
frá Bandarikjunum varð i
þriðja sæti.