Tíminn - 24.02.1974, Blaðsíða 14

Tíminn - 24.02.1974, Blaðsíða 14
TÍMINN Sunnudagur 24. febrúar 1974. LEIKFÉLAG AKUREYRAR Átta fastráðnir leikarar og alls 12 starfsmenn hjá eina atvinnu leikhúsinu utan Reykjavíkur Stjórn Leikfélags Akureyrar. Sitjandi f.v. Guðmundur, Magnússon, gjaldkeri, Guðlaug H'ermannsdóttir, ritari, Jón Kristinsson, formaður. Standandi Magnús Jónsson, leikhússtjóri, Kristjana Jónsdóttir, meðstjórnandi, Þórhalla Þorsteinsdóttir, varaformaður, og Þráinn Karlsson, meðstjómandi. an tóku við ýmsar ákveðnar ættir, sem lögðu til áhuga og leikendur. Félagið hefur, eins og reyndar flest leikhús, sem ná einhverjum þroska, átt það að þakka vinsæl- um og góðum leikurum. Það er hægt að nefna ýms nöfn leikara, sem léku við miklar vinsældir á fyrstu áragutunum, og sem dæmi um ágæta leikkrafta má nefna Margréti Valdimarsdóttur, Har- ald Björnsson, Jón Norðfjörð, Svövu Jónsdóttur. Þetta voru allt saman sterkir leikkrafta^ og einnig Ágúst Kvaran og margir fleiri. L.A. og fjölmiðlar — Hafa leikararhjá L.A. leikið i útvarp, sjónvarp, eða starfa þeir við aðrar skemmtanir? — Við höfum flutt leikrit i út- varp á hverju ári og nú verður senn byrjað á upptöku á barna- leikriti i útvarp. Það eru átta þættir, en þó verður að telja; að við séum nokkuð afskipt. Þó vil ég taka það fram, að útvarpið hefur verið hlynnt þvi, að við fengjum meira rúm i leikflutningi hjá þvi. Má þvi búast við þvi;að meira fari að heyrast frá L.A. en verið hef- ur. Upptökusalur er ófullkominn og þyrfti að gera stórátak i þvi, ef auka á upptökur hér á Akureyri. Réðu rithöfund til að skrifa íeíkrit — Leikfélag Akpreyrar tók upp á þvi nýmæli að fá rithöfunda til að semja fyrir sig leikrit. A sinum tima skrifaði Jökull Jakobsson, KLUKKUSTRENGI. Hvað er nú i undirbúningi? • — Vésteinn Lúöviksson kemur hingað norður i febrúar og hann mun ljúka við nýtt leikrit, sem skrifað er á vegum leikfélagsins. Segja má, að þessi starfsemi hafi byrjað fyrir nokkra tilviljun. Fyrir nokkrum árum reyndum við að fá Jökul til þess að skrifa fyrir okkur leikrit, en af þvi varð þó ekki þá, en svo i fyrra, þegar allt fór að verða stærra i sniðum hjá okkur, þá töluðum við saman, og Jökull var tilkippi.legur og kom norður og skrifaði KLUKKUSTRENGI. Núna var hins vegar auglýst eftir leikritahöfundi, og a.m.k. þrir höfundar sendu okkur drög að leikjum og Vésteinn varð fyrir valinu. — Hvernig greiðið þið þessum höfundum. — Við höfum nú ekki sérstaka fjárveitingu til þess, og má þvi segja að við greiðum þeim af þeim styrkjum, sem við höfum yfir að ráða. — Hvað með sjónvarpið? .Hafið þið unnið fyrir það? — Nei.það höfum við ekki gert, segir Jón Kristinsson að lokum. JG Heimilis ánægjan eykst með Tímanum EINS og getið hefur verið um hér i blaðinu, á Leikfélag Akureyrar sér langa og samfellda sögu. 1 hlaöinu var saga félagsins fyrstu áratugina rakin nokkuö. Nú hittum við að máli Jón Kristinsson, formann leikfélags Akureyrar, en hann er ekki ein- asta einn þeirra, sem lagt hafa á sig félagsmálastörf fyrir LA, heldur er hann einn af traustustu leikurum félagsins. Báöum við hann að segja okkur stuttlega frá starfi leikfélagsins um þessar mundir. LA 1917 — Leikfélag Akureyrar var stofnað 17. april árið 1917 og hefur starfað óslitið siðan,að heitið get- ut; og hefur haft sýningar á hverju ári, ef undanskilinn er einn vetur. Félagið hefur starfað með svip- uðum hætti öll þessi ár, þ.e. að leikarar hafa verið áhugamenn og allt starf reyndar hefur verið unniðisjálfboðavinnu, eða a.m.k. vinnu, sem litið hefur verið hægt að greiða fyrir. Nú hefur hins vegar orðið á þessu veruleg breyting, þvi að nú i vetur starfar i fyrsta skipti hópur, sem hefur verið fastráðinn. Rætt við Jón Kristinsson leikara og formann LA. Fastráðnir leikarar — Þetta eru átta leikarar, sem eru i hálfu starfi, auk þess er sér- stakur framkvæmdastjóri i hálfu starfi og svo var ráðinn sérstakur leikhússstjóri. Þá er ljósamaður hjá félaginu i hálfu starfi, svo það eru alls tólf manns á launum hjá félaginu. — Hvernig er með leiktjalda- smiði og sviðsbúnað? — t flestum tilfellum höfum við fengiö leikmyndasmiði úr Reykjavik. Þannig kom Magnús Pálsson hingað og gerði leik- myndir i tvö siðustu verkin, sem hér voru sviðsett. Með honum unnu að smiðinni tveir úr hópn- um, Arnar Jónsson og Þráinn Karlsson, og núna Guðmundur Magnússon. Þröngur fjárhagur L.A — Nú hefur þessi ráðstöfun i för með sér töluverðan kostnaðar- auka. Fær LA styrki frá þvi opin- bera? — Þetta er stórkostleg breyt- ing. Við höfum fengið siðan i fyrra eina og hálfa milljón króna frá rikissjóði og átta hundruð þúsund frá Akureyrarbæ. t ár munum við fá 2.5 milljónir króna frá rikinu og 1.5 milljónir frá Akureyrarbæ. Þó að þetta séu há- ar upphæðir, þannig séð, þá er fjárhagurinn þröngur, ,og það verður að lifa spart til þess að halda þessu gangandi. — Hvernig hefur aðsóknin ver- ið? — Við þurfum ekki að kvarta undan lélegri aðsókn að leikhús- inu. A siðasta ári vorum við t.d. með rúmlega 13.000 áhorfendui; og verður það að teljast góð að- sókn i 10.000 manna bæ, eins og Akureyri er. Með þessu er ég ekki endilega að segja,að þetta sé full- nægjandi. Leikfélagið gerir eitt og annað til að örva áhuga manna. Við höfum t.d. verið með sérstakar skólasýningar, þar sem nemendur fá aðgöngumiða með 40% afslætti. Við leggjum mikla áherzlu á það einmitt að ná til skólanna, til að reyna aö tengjast nýjum kynslóðum i bæjarfélaginu og vekja áhuga á leiklistinni. Ennfremur virðist okkur það vera i rökréttu framhaldi af þeim fjárstyrkjum, sem við höfum hlotið. Leikhefð á Akureyri — leikarar — Hvað með leikhefð. Eru það ákveðnir hópar i bæjarfélaginu, sem, auk leikenda og starfs- manna, halda leikhúsinu gang- andi? Það má segja að svo sé. Að visu verður slikt erfiðara að skil- greina, þegar bæjarfélagið stækkar, en á fyrstu árum leikfé- lagsins var það svo. Það voru Danir, sem hér störfuðu, sem stóðu að þessu fyrstu árin, en sið-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.