Fréttablaðið - 09.12.2004, Page 27

Fréttablaðið - 09.12.2004, Page 27
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 6 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 69 stk. Keypt & selt 43 stk. Þjónusta 34 stk. Heilsa 10 stk. Heimilið 15 stk. Tómstundir & ferðir 4 stk. Húsnæði 25 stk. Atvinna 22 stk. Tilkynningar 4 stk. Góðan dag! Í dag er fimmtudagurinn 9. des., 344. dagur ársins 2004. Reykjavík 11.06 13.20 15.35 Akureyri 11.18 13.05 14.52 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Skjöldur Sigurjónsson veitingamaður hef- ur í fórum sínum forláta, upptrekkta klukku sem prýddi stofu alþýðuheimilis í byrjun síðustu aldar. Gripinn fékk hann í arf eftir ömmu sína og afa og hefur hún elt hann allar götur frá því að hann hóf bú- skap fyrir einum tuttugu árum. „Klukkan er tengd mínum allra fyrstu minningum á heimili ömmu og afa en þetta var fyrir þá tíð þegar videótæki og tölvur prýddu hvert heimili. Í þá daga hreyfðist ekkert nema klukkan yfir miðjan daginn og gaf hún þá frá sér þessi fallegu hljóð í þokka- bót. Þessu fylgdist maður auðvitað með sem lítill patti og þótti mikið til koma.“ Eftir daga ömmu Skjaldar og afa féll klukkan í hendur Skjaldar og trónir hún í heiðurssæti á hillu í stofu húsbóndans í dag, þar sem hún blasir við öllum þeim sem inn um þær dyr ganga. „Einhvern tím- ann átti ég nú lykil sem ég hef reyndar týnt núna. Hér áður trekkti ég hana gjarna upp og þótti mikið um vert að heyra tikk- takkið sem hún gefur frá sér. Hljóðið í henni boðar ákveðinn frið og svo slær hún auðvitað inn stundirnar á hálftíma fresti. Við hvern heilan tíma slær hún tímana.“ Og í ár ætlar Skjöldur að láta verða af því að kaupa nýjan lykil. „Ég lét gera hana upp um árið og fékk til þess úrsmið á Ingólfs- torgi sem á lykla í klukkur sem þessar. Nú ætla ég hins vegar að verða mér úti um nýjan lykil og ætla í ár að leyfa klukkunni að hringja inn jólin á aðfangadag.“ ■ Hringir inn jólin með virðuleika og reisn Klukkan hefur elt Skjöld Sigurjónsson í tuttugu ár. Gistibæklingurinn Áning er kominn út ellefta árið í röð en hann er gefinn út í fimmtíu þúsund eintökum á íslensku, ensku og þýsku. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um næstum því þrjú hundruð gisti- staði, 104 tjaldsvæði og 74 sundlaugar og staðsetningu þeirra á landinu. Áningu er dreift á alla helstu ferðamanna- staði innanlands, á upplýsinga- miðstöðvar, hótel- og gisti- heimili og víðar. Áningu er ein- nig dreift á meginlandi Evrópu frá skrifstofu Ferðamálaráðs í Frankfurt og frá dreifingarmið- stöð þeirra í Frakklandi. Þá er Áningu einnig dreift um borð í Norrænu. Netútgáfa bæklings- ins er að finna á heim- ur.is/world. Farþegum um Keflavíkurflug- völl í nóvember fjölgaði um rúmlega tuttugu prósent miðað við sama mánuð í fyrra. Alls fóru 107.274 farþegar um völl- inn í nóvember á þessu ári samanborið við 89.088 farþega í nóvember á síðasta ári. Á leið frá landinu voru nú 44.879 far- þegar en 46.492 voru að koma til landsins. Áfram- og skiptifar- þegar voru tæplega sextán þús- und. Farþegum á leið til lands- ins hefur fjölgað um rúm nítján prósent en farþegum á leið frá land- inu um 17,4 prósent. Skjöldur Sigurjónsson ætlar að hefja klukkuna sína til vegs og virðingar. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í ferðum Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Þegar þú segir að smáatriðin skipti máli, áttu þá líka við freknur? Jólamarkaður Sólheima BLS. 2 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL JÓLIN KOMA NEYTENDUR o.fl. FRÉTTAB LAÐ IÐ /E.Ó L. ferdir@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.