Fréttablaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 59
...ísfirska undrabarnið Mugison verð-
ur með tónleika á Grand Rokk í
kvöld. Mugison þykir með allra bestu
tónlistarmönnum landsins um þessar
mundir og vilja sumir meina að hann
sé á hinum fræga barmi heimsfrægðar.
Tónleikarnir hefjast klukkan 23.00.
...Sýning á verkum nema úr hönn-
unar- og arkitektúrdeild Listahá-
skólans og viðskiptadeild Háskól-
ans í Reykjavík opnar í Hafnarhúsi,
Listasafni Reykjavíkur, til sunnudags-
ins 12. desember. Sýningin opnar
klukkan 16.00.
Laugardagur...
....ekki er úr vegi
að skella sér til
Hafnarfjarðar og
sjá kvikmyndina
79 af stöðinni
(Pigeon Gogo)
sem Kvikmynda-
safn Íslands sýnir
í Bæjarbíói.
Myndin var gerð árið 1962 og er
byggð á samnefndri skáldsögu Ind-
riða G. Þorsteinssonar í leikstjórn
Danans Erik Balling. Leikarar í aðal-
hlutverkum eru Gunnar Eyjólfsson
og Kristbjörg Kjeld.
...laugardaginn er síðan hægt að enda
á stórdansleik Milljónamæringanna
í Klúbbnum við
Gullinbrú. Með
Millunum koma
fram Páll Óskar
Hjálmtýsson og
látúnsbarkinn
Bjarni Ara.
...fyrir þá sem
vilja komast í
annars konar
sveiflu en Millj-
ónamæringanna má benda á tónleika
hljómsveitanna Lokbrár og Hjálma.
Hjálmar er ein skemmtilegasta hljóm-
sveit landsins og leikur reggítónlist af
bestu gerð. Tónleikarnir hefjast klukk-
an 23.00.
F225FIMMTUDAGUR 9. desember 2004
Allir klárir í bátana
– stökkir að utan, mjúkir að innan!
ar
gu
s
04
-0
71
3
BÍÓ
Spennutryllirinn
Saw verður
frumsýnd á
föstudagskvöld.
Fyrir þá sem
höfðu gaman af
myndum á borð
við Seven ættu ekki að verða sviknir
af þessari. Hún fjallar um fjöldamorð-
ingja sem reynir að kenna fórnar-
lömbum sínum réttu lífsgildin. Hann
rænir fólki sem hegðar sér illa að hans
mati og þvingar það til að taka þátt í
hryllilegum leikjum til að bjarga eigin
lífi.
Leikstjóri: James Wan frá Ástralíu.
Þetta er fyrsta mynd þessa unga leik-
stjóra.
Leikarar: Cary Elwes, Leigh Whann-
ell, Danny Glover, Ken Leung, Mike
Butters og Dina Meyer.
Orðspor: Myndinni hefur verið líkt
við raunveruleikaþáttinn Fear Factor
sem gengur út í öfgar. Einhverjir
segja að hún sé fersk hryllingsmynd
sem sé alls ekki fyrir viðkvæmar sál-
ir. Þegar hefur verið ákveðið að búa
til framhaldið Saw 2.
Þeim sem vilja
meira léttmeti
en Paparazzi
eða Saw bjóða
upp á er bent
á jólamyndina
Surviving
Christmas sem verður frumsýnd á
föstudagskvöld. Fjallar hún hinn ein-
mana piparsvein Drew Latham (Ben
Affleck) sem ákveður að eyða jólun-
um á æskuheimili sínu. Hængurinn er
sá að fólkið sem býr í húsinu er ekki
fjölskylda hans. Hann lætur það ekki
á sig fá og ákveður að halda jólin þar
engu að síður.
Leikstjóri: Mike Mitchell sem síðast
leikstýrði gamanmyndinni Deuce Biga-
low, Male Gigolo.
Leikarar: Ben Affleck, Christina
Applegate, James Gandolfini og
Catherine O’Hara.
Orðspor: Myndin fær heldur dapr-
ar viðtökur erlendra gagnrýnenda
sem segja að Ben Affleck sé ekki
sannfærandi í aðalhlutverkinu.