Fréttablaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 9. desember 2004
LISTASMIÐJAN KERAMIK
OG GLERGALLERÍ
MIKIÐ ÚRVAL AF JÓLAKERAMIKI
OG FÖNDURVÖRUM
OPIÐ ALLA DAGA TIL JÓLA
Opið föndurkvöld alla fimmtudaga frá kl. 18-22
t.d. fyrir keramikmálun, korta- og lampagerð
Kothúsum, Garði
Kjúklingamánar er nýjung í fullunninni matvöru
frá Matfugli. Þeir eru með ljúffengri fyllingu úr
6 mismunandi ostum og öðru góðgæti. Þá þarf
aðeins að hita í ofni eða á pönnu og því auðvelt
að reiða fram sælkeramáltíð á svipstundu. – Lostæti með lítilli fyrirhöfn
Með ljúffengri fyllingu
úr ostum og öðru góðgæti
Kringlunni - sími : 533 1322
Svuntur og pottaleppar
verð frá 1990.-
Vandaðar heimilis og gjafavörur
Sendum í póstkröfu
Skúlptúrar, skálar
og myndverk
Úr flotgleri og eðalmálmum.
Nýtt glergallerí var opnað nú um
helgina að Auðbrekku 7 í Kópavogi
og það heitir einfaldlega Glergallerí.
Það eru hjónin Catherine Dodd og
Jónas Bragi Jónasson sem að því
standa en þau eru með vinnustofu
sína við hliðina. Catherine og Jónas
eru bæði starfandi listamenn og
skapa handgerða
listmuni, skálar,
diska, vasa og
kertastjaka úr flot-
gleri og eðal-
málmum.
Einnig skúlp-
túra og
myndverk úr
ýmiss konar
gleri, kristal,
grjóti og
fleiru. Verk
þeirra þykja
sérstök,
meðal ann-
ars vegna
þeirrar
vinnsluaðferðar sem
þau hafa þróað á undanförnum ára-
tug. Glergalleríið er opið alla daga til
22. desember frá klukkan 12-18. ■
Danskar
keramikgínur
Gínur Nelly Gaskin í Tékk-kristal.
Tékk-kristall í Kringlunni hefur hafið
sölu á keramikgínum eftir dönsku
keramiklistakonuna Nelly Gaskin
ásamt englum sem hún einnig gerir.
Nelly Gaskin er þekkt listakona og
eru verk hennar þekkt víða á Norð-
urlöndunum og einnig í Bandaríkj-
unum. Hún vinnur bara með keram-
ik og gerir bæði skrautmuni og
nytjahluti. Gínurnar eru mjög
skemmtilegar, fallegar í laginu og
greina má skemmtilegan húmor þar
sem ein þeirra er til að mynda með
kaffikönnu á höfðinu. Aðeins ein
gína er af karlmanni, sem er í raun
bara jakki. Gínurnar eru talsvert stór-
ar og kostar hver þeirra 14.900 kr. ■
„Það er einhver sjarmi við ákveð-
ið horn í húsinu mínu. Þetta er í
eldhúsinu þar sem eldavélin, upp-
þvottavélin og kaffivélin mætast í
níutíu gráðu horni. Þetta er horn-
ið sem ég halla mér upp að og
sæki hitann úr eldavélinni og upp-
þvottavélinni sem yljar bakhlut-
anum á mér meðan ég teygi mig í
kaffisopann,“ segir Ilmur Stef-
ánsdóttir myndlistarkona, en eld-
húsið er í sérstöku uppáhaldi hjá
Ilmi og þá sérstaklega fyrrgreint
horn. „Við hjónin fengum í brúð-
kaupsgjöf á sínum tíma forláta
kaffivél sem kostaði formúu fjár
og þarna í horninu þykir mér gott
teygja mig í vélina og sötra kaffi-
sopann, sérstaklega þegar ég er
búin að elda, ganga frá og setja í
uppþvottavélina.“ Hugmyndir
segist Ilmur þó sækja annars
staðar í húsið, en þær fæðast
flestar þegar hún leggst með
börnum sínum og svæfir á kvöld-
in. „Sú stund hefur eitthvað með
friðsæld að gera og þá sérstak-
lega þá staðreynd að ekkert áreiti
er tengt þeirri stund. Þá vilja hug-
myndirnar hellast yfir mig.“ Ilm-
ur notar hornið góða til annarra
hluta en hugmyndaöflunar, sem
hún segir vera rými fyrir hvíld og
afslöppun. „Ég leita einfaldlega
bara í þetta horn og kann enga
sérstaka skýringu á því. Stellingin
er jú standandi en afskaplega
þægileg engu að síður. Í horninu
góða er bara rými fyrir einn og sú
staðreynd verður að vera fyllilega
á hreinu. Bak við mig tróna skáp-
ar, en í beinni sjónlínu gefur svo
að líta eldhúsglugga sem er gard-
ínulaus og gaman er að horfa
gegnum þegar ég heimsæki horn-
ið góða.“ ■
Sækir hitann í heimilis-
tækin yfir kaffibolla
Eldhúsið er í sérstöku uppáhaldi hjá Ilmi.
Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona leitar í ákveðið horn í eldhúsinu og kann enga
ákveðna skýringu á því.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA