Fréttablaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 74
Ópera fyrir bankaráðsmann
Íslandsbanki styrkir Óperustúdíó sem er samstarfs-
verkefni Íslensku Óperunnar og Listaháskóla Ís-
lands. Íslandsbanki mun kosta verkefnið í heild
sinni. Mikil gróska er í sönglífi landsmanna og
verður boðið upp á námskeið í óperuflutningi
í Listaháskólanum fyrir tólistarnemendur
innan Listaháskólans sem og utan.
Vinnan í óperustúdíóinu er góður undirbún-
ingur fyrir ungt tónlistarfólk og er víst að
Íslandsbanki er með þessu að fjárfesta vel
sem mun skila sér í góðri upp-
skeru á akri listanna.
Lokahnykkurinn er uppsetn-
ing á óperunni Apótekaran-
um eftir konung klassíska
tímabilsins, Joseph Haydn.
Verkefnavalið vekur athygli,
því einn stærsti eigandi
Íslandsbanka er Karl Wern-
ersson, bankaráðsmaður
sem er eigandi Lyf og
heilsu. Viðeigandi væri því að hann yrði heiðurs-
gestur á frumsýningu.
Allt í hag í bili
Hannes Smárason, aðaleigandi Flugleiða,
hlýtur að brosa út að eyrum þessa dag-
ana. Lækkandi dollar kemur sér vel fyrir
Flugleiðir þar sem stærri hluti kostnaðar
fyrirtækisins er í dollurum, en meirihluti
tekna í evrum. Þar við bætist að lækkandi
olíuverð hjálpar til við rekstur flugfélaga.
Haldist dollarinn lágur og olíuverð
heldur áfram að lækka eru það
verulega góð tíðindi fyrir Flug-
leiðir.
Hins vegar er líklegt að sterk
króna geti fælt einhverja frá
að ferðast til hins dýra Ís-
lands, þannig að líklegt er
að Flugleiðamenn óski sér
lækkandi krónu á næstu
mánuðum.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.382
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 310
Velta: 3.703milljónir
-0,48%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Ólafur Ólafsson, Guðmundur
Hjaltason og Jón Kristjánsson
hafa fært eignarhluta sinn í SÍF úr
Keri í Fjárfestingarfélagsið
Vendingu.
Vending er stærsti hluthafinn í
SÍF með 29,5 prósenta eignar-
hluta. KB banki á 24,9 prósent.
Sjöfn hf sem er félag í eigu
Baldurs Guðnasonar, forstjóra
Eimskips, og Steingríms Péturs-
sonar, framkvæmdastjóra Eim-
skips, hefur keypt hluti í Burðar-
ási fyrir 30 milljónir króna.
Olíuverð heldur áfram að
lækka á mörluðum og fór í um
41 dal í gær og hefur ekki verið
lægra síðan í lok júlí. Vegvísir
Landsbankans greindi frá þessu.
30 9. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Styrking íslensku krónunnar
hefur veruleg áhrif á afkomu
sjávarútvegsfyrirtækja. Sigur-
geir Brynjar Kristgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn-
ar í Vestmannaeyjum, telur að
hækkunin í ár muni kosta fyrir-
tæki sitt um tvö hundruð milljón-
ir í ár.
„Við höfum verið að flytja út
fyrir þrjá og hálfan milljarð á ári
og ef gengið styrkist um sex eða
sjö prósent þá er bara hægt að
reikna það beint út í tekjutapi hjá
okkur,“ segir Sigurgeir.
Jakob Sigurðsson, forstjóri SÍF,
segir að styrkingin hafi augljós
áhrif á samkeppnishæfni íslenskra
fiskframleiðenda gagnvart út-
lenskri samkeppni. Þótt fjárhagur
SÍF sé vel varinn gagnvart gengis-
sveiflum hefur afkoma íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja áhrif á
SÍF. „Við erum hluti af þessari
keðju,“ segir Jakob.
„Allir þeir sem við skiptum við
á Íslandi eru með allan sinn kostn-
að í krónum og eru að selja í er-
lendri mynt þannig að það gefur
auga leið að það er þrýstingur á
framlegðina í allri þessari keðju.
Á endanum kemur þetta niður á
samkeppnishæfni íslensks sjávar-
útvegs,“ segir Jakob.
Sigurgeir segir að slakt aðhald
í fjármálum ríkis og sveitarfélaga
sé nú að koma í bakið á mönnum
og þar verði sjávarútvegurinn
fyrir barðinu á ástandinu. „Það er
augljóst mál að Seðlabankinn er
að verjast þenslunni og verðbólg-
unni. Ég sé ekki annað en að eðli
málsins samkvæmt verði opinber-
ir aðilar, ekki bara ríkið heldur
sveitarfélögin, að draga saman.
Það er því miður ekki að gerast
eins og sést í öllum þessum launa-
hækkunum,“ segir Sigurgeir.
Hann segir engin ráð önnur en
niðurskurð vera tiltæk. „Þetta er
mjög slæm staða og hefur versn-
að mikið. Kostnaður hjá okkur
hefur hækkað og við getum ekki
brugðist öðruvísi við en að skera
niður kostnað. Það bitnar á starfs-
fólki okkar og ekki er ríkið að
hjálpa okkur þegar það leggur
sérstakan skatt á sjávarútveg,“
segir Sigurgeir og vísar til auð-
lindaskattsins sem nú kemur til
framkvæmda í fyrsta sinn.
thkjart@frettabladid.is
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 39,70 +0,51% ... Bakkavör
24,00 -2,48% ... Burðarás 12,00 +0,42% ... Atorka 5,78 -1,20% ... HB
Grandi 7,90 - ... Íslandsbanki 11,35 - ... KB banki 444,50 -0,11% ...
Landsbankinn 12,10 +0,41% ... Marel 51,50 -4,28% ... Medcare 6,01 -
... Og fjarskipti 3,20 +1,59% ... Opin kerfi 27,60 - ... Samherji 11,40 -
2,15% ... Straumur 9,75 - ... Össur 78,50 -7,10%
Sjávarútvegin-
um blæðir
Styrking íslensku krónunnar setur þrýsting á sjávarútveginn.
Vinnslustöðin í Eyjum horfir fram á tvö hundruð milljóna tekjutap
og segir framkvæmdastjórinn að gengisstyrkingin kalli á niðurskurð.
Og fjarskipti 1,59%
Actavis 0,51%
Kögun 0,42%
Össur -7,10%
Marel -4,28%
Austurbakki -4,18%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Vegna árshátíðar starfsfólks
verða verslanir okkar lokaðar
föstudaginn 10. og laugardaginn 11.desember.
KB banki hefur selt hluta af
eign sinni í Baugi. Söluhagn-
aður hlutarins er milljarður
króna.
KB banki hefur selt 8,26 prósenta
hlut í Baugi Group. Fyrir söluna
átti bankinn 19,28 prósent í fyrir-
tækinu. Kaupendur eru félag í eigu
Sigurðar Bollasonar, Magnúsar Ár-
manns og Kevins Stanford. Sigurð-
ur og Magnús voru meðal eigenda
tískukeðjunnar Karen Millen sem
seld var til verslunarkeðjunnar
Mosaic. Baugur á Mosaic ásamt
Derek Lovelock forstjóra fyrir-
tækisins.
Söluhagnaður KB banka af
hlutnum í Baugi nemur um millj-
arði króna. Hreiðar Már Sigurðs-
son segir söluna í samræmi við
stefnu KB banka að eignast hlut í
fyrirtækjum sem þeir fylgja í út-
rás og þróun. Hlutirnir séu svo
seldir eftir því sem tækifærin gef-
ast. „Það er ekki útilokað að við
seljum meira á næstunni, en ég
reikna með að við munum eiga ein-
hvern hlut í fyrirtækinu áfram.“
Aðspurður hvort tímasetning
sölunnar tengist umræðu um eign-
arhald bankans í Baugi sem Berl-
ingske Tidende gerði að umtalsefni
segir Hreiðar svo ekki vera. Eign-
arhlutur KB banka í óskráðum fé-
lögum svo sem í Baugi er innan við
eitt prósent af heildareignum
bankans. - hh
Milljarður í söluhagnað
MEIRA SELT Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, segir hugsanlegt að bankinn selji
meira af eign sinni í Baugi á næstunni. Áfram hyggist bankinn þó eiga hlut í fyrirtækinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SIGURGEIR BRYNJAR KRISTGEIRSSON
Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar sér
fram á hundruð milljóna tekjutap vegna
sterks gengis.
JAKOB SIGURÐSSON Forstjóri SÍF segir
stöðuna í útflutningsatvinnuvegunum vera
áhyggjuefni.