Fréttablaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 53
Það er ljóst að það tilheyrir lönguliðnum tíma að hver fjölskyldaláti sér nægja sjónvarp í stof-unni og útvarpstæki í eldhús- inu. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá hagstofu Íslands eyðir meðalheimili um áttatíu og átta þúsund krónum á ári í sjónvörp, tölvur og myndbönd, og hef- ur sú tala verið á uppleið undanfarin ár. Gestur Hjaltason, framkvæmda- stjóri Elko, segir Íslendinga vera mjög snögga að tileinka og kaupa sér nýja tækni. „Sennilega með þeim fyrstu í heiminum,“ segir hann og bendir á að í þessu samhengi muni sjálfsagt mest um öra þróun í far- símatækninni hér á landi. „Í stað þess að vera eingöngu fjarskiptatæki eru símar í dag orðnar að tölvum og myndavélum.“ Og Gestur segir að Íslendingar séu mjög duglegir við að endurnýja símana sína. Kristinn Snorri, sem er starfsmaður hjá annarri vinsælli raftækjaverslun, Expert, tekur undir með Gesti. „Íslendingar eru tækjaóð þjóð,“ segir Kristinn í léttum dúr. „Kynslóðin sem er um þrítugt er mjög tæknilega sinnuð. Hún á fartölvu, er með þráðlaust net og á fullkomna síma.“ Hvað varðar vinsælustu tækin virðast mp3-spilararnir vinsælastir hjá ungu kynslóðinni en að sögn Kristins er það þó langt í frá bara unga fólkið sem er að taka upp stafræna tækni því fólk á öllum aldri er almennt að tæknivæðast af meiri móð en áður hefur þekkst. „Já, eldri kynslóðin er líka dugleg að kaupa sér tæki, þó hún séu ef til vill ekki að nota þau öll á réttan hátt,“ segir Kristinn og hlær. Að sögn Kristins er það þó ákveðin gerð af tækjum sem sker sig úr hvað varðar vinsældir og það eru staf- rænar myndavélar sem hafa náð mjög mikilli útbreiðslu. „Þrátt fyrir öll þau tæki sem er að finna á heimilum er litla stafræna myndavélin það sem fólk kann að nýta sér enda er þetta mjög þægileg tækni. Myndavél- arnar eru að verða minni og minni og upplausnin betri,“ segir hann. Og ekki er það verra að þjónustunni við þá sem eiga stafrænar myndavélar fer líka stöðugt fram. Nú er til dæmis hægt að nálgast forritið Fotowire (er til bæði fyrir PC tölvur og Macintosh) hjá flest- um framköllunarstofum. Með það að vopni er hægt að senda stafrænu mynd- irnar með heimilistölvunni um netið og láta prenta myndirnar út á ljósmynda- pappír. Gamaldags myndaalbúmin þurfa því aldeilis ekki að vera úr sögunni. Hvað varðar önnur tæki segir Kristinn að síð- asta ár hafi verið algjör sprengja í heimabíóum og að þau hafi ekki náð við- líka flugi á þessu ári.Nú eru það mp3-spilararnir sem eru tæki dagsins. Hvaða algjörlega ómissandi tæki lítur dagsins ljós á næsta ári á svo eftir að koma í ljós. ● Bond deyr ekki tækjalaus Tækni- undur Virka þau í alvörunni? Undanfarin sunnudagskvöld hef-ur Skjár einn sýnt gömlu JamesBond-myndirnar þar sem þeir Sean Connery, George Lazenby og Roger Moore þeysast heimsálfana á milli til þess að lúskra á ill- mennum sem ógna stöðugleika heimsins. Einn nánasti samstarfs- maður Bond er Q, sem Desmond Llewellyn lék svo snilld- arlega í rúma þrjá áratugi en John Cle- ese hefur nú leyst hann af hólmi. Q var óendanleg uppspretta margvíslegra tækja sem Bond nýtti sér á misjafnlega skynsaman hátt. En var eitthvert vit í þess- um tækjum? Röntgengleraugun The World Is not Enough (1995) Bond nýtti sér þessi gleraugu til þess að geta séð hvort andstæðingar hans væru vopnaðir og líka til þess að skoða nærföt kvenna. Vísindamenn segja að nánast ómögulegt sé að færa röntgen- tæknina yfir á lítil gleraugu. Hins veg- ar er hægt að nota nætursjónauka á upptökuvél í dagsbirtu, sem á víst að gera það sama... Neðansjávaröndunartæki á stærð við penna Thunderball (1965) Í kvikmyndinni Thunderball gaf Q Bond neðarsjávaröndunartæki sem var á stærð við penna. Með því átti Bond að geta verið í kafi í allt að fjórar mínútur. Þetta tæki bjargaði honum úr lífsháska eftir bardaga neðansjávar. Þrátt fyrir góða tilraun er ólíklegt að þetta tæki geti einhvern tíman orðið að veruleika. Minnsta kafaratækið er með hálfum lítra af lofti og er á stærð við drykkjar- könnu. Það endist í tvær mínútur. Flugbúnaður Thunderball (1965) Í sömu kvikmynd kemur einnig fyrir búnaður sem Bond festir á sig og flýgur burt, yfir í Aston Martin-bílinn sinn sem bíður eftir honum. Búnaður- inn er ekki stærri en svo að hann kemst fyrir í skottinu. Þessi búnaður er nú þekktur í dag, og var meðal annars notaður við setningarathöfn ÓL í Los Angeles 1984. Í dag getur þessi bún- aður farið upp í níu metra og náð sext- án km hraða. Hann getur þó einungis haldið manneskju á lofti í 30 sekúnd- ur. F219FIMMTUDAGUR 9. desember 2004 Q Tækjaóðir Íslendingar mp3-spilarar og stafrænar myndavélar vinsælastar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.