Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.12.2004, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 09.12.2004, Qupperneq 38
Stoke fékk sannkallaðan happadrátt íenska bikarnum á dögunum þegarþað dróst gegn meistaraliði Arsenal. Gunnar Þór Gíslason, stjórnar- formaður Stoke, segir þá ekkert vera sér- staklega bjartsýna á úrslit leiksins. „Það eru engu að síður meiri líkur á því að Stoke vinni Arsenal á Higbury, en að vinna í lóttói.“ Þessi leikur gæti þó verið lóttóvinn- ingur fyrir fjárhag liðsins því ef aðsókn á leikinn verður góð, gæti hann skilað 400 þúsund pundum í kassannj hjá Stoke, en það gerir um 65 milljónir íslenskra króna. Stoke City er í raun eina knatt- spyrnufélagið á Englandi sem stendur undir því nafni að vera Íslendingafélag, enda á Stoke Holding, sem er í eigu tæplega 600 Íslendinga, sextíu prósent í knattspyrnufélaginu. Um hundrað manns eru starfandi hjá félaginu, sumir í hlutastörfum þegar leikir eru, en aðrir í fullu starfi. Að sögn Gunnars Þórs velt- ir félagið um átta milljónum punda á ári en það samsvarar 950 milljónum ís- lenskra króna. „Félagið stendur vel fjárhagslega ef miðað er við önnur félög í deildinni, en ef miða ætti við venjulegt fyritæki þá stendur félagið illa. Það hefur orðið tölu- verð rýrnun á fjárhagi félaga í neðri deildunum á Englandi og þróunin á fjármálunum hefur ekki verið eins og við vonuðumst eftir,“ segir Gunnar Þór. Stoke er núna í tíunda sæti 1. deild- arinnar en ef liðið kæmist í úrvalsdeild- ina er óhætt að segja að það myndi skip- ta miklu máli fyrir fjárhag þess. „Það hefur mikið verið rætt og ritað um það hvað gerist þegar lið fer í úrvals- deild. Fyrirtækið Deloitte gerði úttekt á Crystal Palace, síðasta liðinu sem fór upp í úrvalsdeildina á Englandi, og áætl- ar áhrif þess að fara upp á tekjur liðsins séu um 35 milljónir punda eða um fjór- um miljörðum íslenskra króna. Þar munar mest um auknar tekjur af sjón- varpsútsendinumg en einnig meiri að- sókn, hærra miðaverð, og meiri auglýs- ingatekjur.“ Gunnar segir Stoke City vera með mjög góðan leikvang á mælikvarða úr- valsdeildarinnar, en völlurinn tekur tutt- ugu og átta þúsund áhorfendur í sæti. Popppunksspil þeirra félaganna Dr.Gunna og Felix Bergssonarhefur vakið mikla lukku enda þyk- ir spilið skemmtilegt þó spurningarnar séu margar hverjar ansi þungar. Fimmtudaginn 9.desember ætlar Dr. Gunni að kvelja rithöfundi nútímans með þungarvigtarspurningunum úr spilinu á kaffihúsinu Súfistanum á Laugavegi. Þeir rithöfundar sem hafa boðað komu sína eru Auður Jónsdóttir, Huldar Breiðfjörð, Sindri Freysson, Þorsteinn Guðmundsson og Einar Már Guðmundsson. Spennandi verður að sjá hver er best að sér í popp- sögunni en fólk kemst náttúrlega ekki að því nema að mæta á staðinn. Dr. Gunni mun sjá til þess að enginn svindli og allir hafi sé sómasamlega. Á milli lota munu rithöfundarnir lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum. Eftir að spilamennskunni lýkur mun Baggalútur mæta á svæðið á flytja aðventulagið sem kom út á dög- unum. Uppákoman hefst kl. 20.00 og má enginn láta sig vanta á þennan æv- intýralega viðburð og ekki er verra að fá sér desemberkakó á meðan á stuðinu stendur. F2 4 9. desember 2004 FIMMTUDAGUR F2 er vikurit sem fylgir Fréttablaðinu á fimmtudög- um. Útgefandi Frétt hf. Ritstjórn Jón Kaldal Höfundar efnis í þessu hefti Borghildur Gunnarsdóttir, Freyr Gígja Gunnarsson, Kristján Hjálmarsson, Margrét Hugrún Gústavsdóttir, Marta María Jónasdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Hönnun Jón Óskar Hafsteinsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Aðalsími: 550 5000 Netfang: f2@frettabladid.is Auglýsingar Auglýsingadeild Frétta- blaðsins, Jón Laufdal, Einar Logi Vignis- son, Ólafur Brynjólfsson. Forsíðan Erpur Eyvindarson, sjá viðtal bls. 14 Ljósmynd: Teitur Þetta og margt fleira 06 Á Prikinu í 34 ár 08 Göturnar í lífi Elínar Eddu Árnadóttur 10 Börkur Sigþórsson ljósmyndari 14 Viðtal Byltingarsinni og romm- drykkjumaður Erpur Eyvindarson segir Margréti Hugrúnu Gústavs- dóttur ferðasögur frá Mið-Ameríku 16 Úttekt Skattaparadís hátekjufólks Sigríður D. Auðunsdóttir ber saman tekjuskatta hér og í tíu öðrum Evrópulöndum. 18 Hrokagikkirnir í Víðsjá 22 Kosher kjúklingur og annað gyðinglegt góðgæti 24 3 dagar: Það markverðasta á seyði um helgina 26 Heiðar snyrtir snýr aftur Útvarp Fyrst á morgnana slær ekkert út Árla dags með Vilhelmi G. Kristins- syni á Rás 1. CD Nouvelle Vague með samnefndri hljómsveit. Franskar elektró-djass-samba útgáfur af nokkrum þekktustu pönk- og ný- bylgjulögum sögunnar, þar á meðal: Love Will Tear Us Apart með Joy Division, This Is Not A Love Song með Public Image og Too Drunk To Fuck með Dead Kennedys. Sjónvarp Tveir nágrannaslagir af bestu gerð í enska boltanum: Everton gegn Liverpool á laugardaginn og Arsenal á móti Chelsea á sunnudag. Lesefni Blíðfinnur og Svörtu tening- arnir ef Þorvald Þorsteinsson. Frábær lokabók í bálknum um dáðadrenginn Blíðfinn. Lesefni 2 Tímarit Máls og menning- ar er vaknað til lífsins á nýjan leik undir stjórn Silju Aðalsteinsdóttur. Grein Páls Ásgeirs Ásgeirssonar um síðustu dagana fyrir gjaldþrot DV í fyrra er skyldulesning fyrir alla sem hafa áhuga á sambúð fjölmiðla og stjórnmála. Síðdegiskaffi Á Sólon. Enginn staður betri til að horfa á heiminn ganga hjá fyrir utan gluggann. Kvöldhressing Kamillute róar taug- arnar í desemberstressinu. Hádegismatur Réttur dagsins á Thor- valdsen við Austurvöll. Bregst ekki. Drykkur Bavaria bjór. Jafn- góður við budduna og bragðlaukana. Bíó Bad Santa. Bjúgna- krækir hvað? Billy Bob Thornton er illskeyttasti jólasveinn allra tíma. Skiljið börnin eftir heima. Skyndibiti Ein með öllu og kartöflusalati að auki í pylsuvagnum fyrir utan Laugardalslaugina. Heil mál- tíð í einu brauði. velurF2 Felix og Dr. Gunni Poppdoktor Íslands stjórnar keppni skáld- anna. Stuð á Súfistanum í kvöld Skáld keppa í Popppunkti FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Stoke á leiðinni á Highbury Fá 65 milljónir fyrir leik gegn Arsenal Gunnar Þór Gíslason „Meiri líkur á að við vinnumArsenal en að vinna í lóttói.“ Stoke City er í raun eina knattspyrnufélagið á Englandi sem stendur undir því nafni að vera Ís- lendingafélag... Öðruvísi jólamyndir Jólin taka á sig margar myndir og það sannast af framtaki Íþrótta- og tómstunda- ráðs Hafnarfjarðar, sem efnir til jólagraffitikeppni félagsmiðstöðva á laugardaginn. Andri Birgisson, annar skipuleggjenda keppninnar, segir þetta hafa verið gert í fyrsta skipti fyrir tveimur árum, en fallið niður í fyrra. „Við gátum endurtekið leikinn vegna þess að við fengum sextíu þúsund króna styrk frá Hafnar- fjarðarbæ.“ Andri segist vera nokkuð öruggur á því að færri komist að en vilja en auk keppninnar mun plötusnúður ylja keppendum með taktfastri tónlist og sigurvegarar úr Rímnaflæðiskepninni koma fram. Keppnin fer fram í porti fyrir framan verslunina Pennann á Strandgötunni og hefst klukkan eitt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.