Tíminn - 17.03.1974, Page 1

Tíminn - 17.03.1974, Page 1
Auglýsingadeild TÍMANS Aðalstræti 7 KOPAVOGS P APÓTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga kl. 1 til 3 Sími' 40-102 Vísir að sveitaþorpi á Krossholtum á Barðaströnd: „Sættum okkur ekki við, að sveitin sé uppeldisstöð rv verkafólks handa öðrum, segir oddviti hreppsnefndar í SUMUM SVEITUM hafa menn mikinn hug á þvi aö koma upp smáþorpum, sem myndað geta þéttbýliskjarna og veitt viðtöku ungu fólki, sem annars hefði ekki svigrúm i heimabyggð sinni. Svo er þessu varið á Barðaströnd, þar sem sveitarstjórnin hefur sótt um heimild og fjárframlög til þess að reisa fjórar leiguibúðir, samkvæmt samningum rikis- stjornarinnar og Alþýðusam- bands íslands um byggingu þúsund slikra ibúða viðs vegar um landið. Á Krosshóltum, skammt frá Krossi á Barðaströnd, hafa að undanförnu verið að risa byggingar, sem gætu orðið fyrsti visir sliks sveitaþorps: Félags- heimili, sundlaug og tvær kennaraibúðir. Þar að auki er að hefjast bygging barna- og unglingaskóla, sem búið er að veita til um þrjár milljónir króna á fjárlögum i tveim áföngum, og iþróttasvæði er að komast þar i gagnið. — Kross er miðsvæðis á Barða- strönd, sagði Kristján Þórðarson, oddviti, er við ræddum við hann um þessa hugmynd, og hér höfum HHJ-Reykjavik. — Þriðja umræða Efri deildar um skatta- frumvarpið stóð lengur en búizt hafði verið við og lauk ekki fyrr en um miðnætti á föstudagskvöld. Atkvæðagreiðslu var frestað fram á mánudag sem og fundi Neðri deildar um málið og verður það tekið fyrir þá eins og Timinn skýrði frá i gær. Við þriðju umræðu i efri deild við laugar, og það er litill vafi á þvl, að hér fengist nægt heitt vatn, ef borað væri eftir þvi. Jarðhiti er i sveitinni á fjórum eða fimm stöðum bæði inni i Vatnsfirði, en þó einkum i Móru- dal, svo að við ættum að standa vel að vigi að þvi leyti. Hér á Barðaströnd, eru nú um tvö hundruð manns, og þetta er fjöl- mennasta byggðarlagið i sýslunni austan Kleifaheiðar, að Reykhólasveit undanskilinni. Og við búum hér i gjöfulli, fallegri og hlýlegri sveit, þar sem unga fólkið vill vera kyrrt, ef þess er nokkur kostur. Hér er fólk , sem biður eftir þvi að komast i þessar leiguibúðir, sem við höfum sótt um, ef við bara fáum þær - bæði burtfluttir sveitungar, sem vilja heim aftur, og ungt fólk, sem vill mynda sér heimili. Það mætti byggja mun fleiri ibúðir vegna þess — þær stæðu ekki auðar. Við viljum alls ekki sætta okkur við það lengur að sveitin okkar sé uppeldisstöð verkafólks handa- öðrum byggðarlögum, hélt Kristján áfram, og það er ófrá- vfkjanleg krafa okkar, að svo sé i haginn búið, að það geti verið hér lagði meirihluti fjárhagsnefndar fram breytingartillögu þess efnis, að lögin giltu aðeins til áramóta. Verði breytingartillagan samþykkt, merkir þaö, að verði ekki komist að nýju samkomulagi fyrir þann tima, fellur 5% sölu- skattshækkunin niður og tekju- skattur færist aftur til núgildandi horfs. Gengið verður til atkvæða um þetta á morgun kyrrt og við fáum að halda þvi, svo fremi, sem það vill vera hér. Það þarf ekki að skorta hér at- vinnu, ef rétt er á haldið. i fyrra voru gerðar héðan út tólf trillur, sem ýmist voru hafðar á Þræla- vogi skammt frá bryggunni á Brjánslæk, eða á Haukabergs- vaðli, þar sem að visu verður að sæta sjávarföllum. Þó að þessar trillur hafi mest verið n otaðar til grásleppuveiða, þá ber einnig að hafa það i huga, að fiskigengd hér inn á Breiðafjörð hefur aukizt siðan landhelgislinan var færð út, og héðan er nú ekki nema svo sem tveggja tima sigling á fiskimið fyrir skakbáta. Ég á sjálfur trillu, og hef greinilega fundið, hvaða breyting hefur orðið. Þar að auki er skelfiskur rétt úti fyrir, og jafnvel styttra héðan á slik mið heldur en úr Hólminum á þau, er þeir stunda. Loks hefur svo rækja verið veidd hér fyrir framan og flutt til Bildudals, og má vel vera, að rækjvon sé hér inni i fjörðunum, sem aldrei hafa verið rannsakaðir til hlitar. Þegar þess er gætt, að á mið, sem við eigum stutt á, sækja jafn- vel bátar vestan af ísafirði og sunnan frá Faxaflóa, virðist ekki óskynsamlegt, að hér væri komið upp hafnaraðstöðu og það þeim mun fremur sem höfn er engin hér á norðurströnd Breiða- fjarðar. Þess vegna fengum við i fyrra menn frá hafnarmála- stjórninni til þess að lita á Haukabergsvaðal, verkfræðing og verkstjóra, og mér skilst, að þeim hafi ekki litizt illa á staðinn til trillubátaútgerðar, þótt við hins vegar höfum ekki enn fengið frá þeim álitsgerð. En það sem viö viljum fá jafn- framt, er eins konar friðlýsing eða löghelgun á dálitlu svæði hér fyrir framan handa okkur, svo að þær nýtjar, sem hér gefast. veröi ekki að engu gerðar með of mikilli sókn. Við leggjum lika mikið kapp á, að hér verði komið upp nægu skólarými til þess, að börn og unglingar á Barðaströnd geti stundað allt sitt nám heima, og við sættum okkur ekki við það, að menntamálayfirvöldin virðast telja nægja að byggja hér skóla handa þrjátiu börnum, þegar hér eru fimmtiu unglingar á skóla- aldri. Við sættum okkur ekki við neinar fráfærur, og okkur finnst það bera vitni um takmarkaða þekkingu að treysta það. að vestfirzkar heiðar séu færar að vetrarlagi að staðaldri. Ég bendi lika á það, að inni i Vatnsfirði hef- ur verið komið upp mjög myndarlegum gististað, Flóka- lundi, þar sem fjöldi gistiher- bergja stendur auður átta mánuði ársins, og hér virðist næsta auðvelt að koma upp gagnfræða- skóla, þar sem framhaldsdeildir. þriðji og fjórði bekkir, nytu kennslu. Loks itreka ég það svo, sagði Kristján, að það ríkir hér brennandi áhugi á þvi að efla byggðina og treysta, og búa svo um hnútana, að fólk þurfi ekki lengur að hrökklast héðan nauðugt, og við skiljum ekki annað en við eigum fulla heimtingu á liðveizlu til þess, alveg eins og þau byggðarlög, sem eru annars staöar á landinu og nær miðstöðvum valdsins. LAGT TIL AÐ SKATTALÖGIN GILDI AÐEINS TIL ÁRAMÓTA Fyrirætlun Austur-Skaftfellinga: Jón Eiriksson, mynd Halldórs Péturssonar, teiknuð eftir andlitsmynd frá 18. öld Bautasteinn Jóns ferenzróðs rís að Eiríkssonar kon Skólafelli AUSTUR-SKAFTFELLINGAR liafa hug á þvi að reisa Jóni Eirikssyni konferenzráði minnis- varða að Skálafelli i Suðursveit, þar sem hann er borinn og barn- fæddur. Þykir þeim vel til fallið, að hrinda þessu áleiðis á þjóðarhátiðarárinu, og hafa þeir þegar ráðiö Sigurjón ólafsson myndhöggvara til þess að gera minnismerkið. Þrir Austur-Skaftfellingar, Guðmundur Jónsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, og séra Skarphéðinn Pétursson hafa sent Timanum svolátandi bréf: ,,Eins og kunnugt er hafa mörgum sonum islenzku þjóðarinnar verið reist minnis- merki. En einn þeirra hefur hingaðtil legiðhvað þetta snertir, óbættur hjá garði, en það er Jón Eiriksson, konferensráð, og hlýtur það þó að vera samróma dómur allra, sem vilja kynna sér sögu okkar. að fáum eigum viö meiri þakkir að gjalda. Nú er ætlunin að reisa þessum landa vorum verðugan bauta stein, er á aö risa hjá fæðingar- stað hans, Skálafelli i Suður- sveit. Er vænzt, að hann geti risið i sumar eða haust, ef þær áætlanir, sem gerðar hafa verið standast. Það eru tilmæli okkar til þeirra er þetta bréf lesa, að þeir leggi eitthvað af mörkum til þessa fyrirtækis, en forgöngu um það hefur Lionsklúbbur Horna- fjarðar. Minnismerkið verður gert af Sigurjóni Ólafssyni mynd- höggvara, og til þess að fram- kvæmdir geti hafizt, er mjög áriðandi, að fjárframlög eða lof orð um stuðning berist okkur, sem allra fyrst.” Eins og alþjóð veit, var Jón Eiriksson, konferenzráð einn sá af sonum þjóðarinnar, er hún á mest að þakka, og hefur vart nokkur maður átt meiri þátt en hann i þeim stefnuhvörfum. sem urðu i sögu okkar á átjándu öld, en einmitt hann, og þau urðu undanfari allra stakkaskipta, sem land og þjóð hefur siðan tekið. Án þess bakhjarls, sem Skúli fógeti og aðrir mætismenn þjóðarinnar á þessum tima áttu i Jóni Eirikssvni, hefðu þeir trúlega litils mátt sin meöal valdamanna i Kaupmannahöfn.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.