Tíminn - 17.03.1974, Blaðsíða 4

Tíminn - 17.03.1974, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Sunnudagur 17. marz 1974. AAenning í „verksmiðju" Fyrir alllöngu var þetta hús- næ&i, sem þiö sjáið hér á myndinni, notað til skotfæra- framleiðslu. en i dag er þessi gamla verksmiðja í Hamborg- Altona fristundastaður, sem fjöldi fólks sækir og nýtur þess aðkoma saman á og skemmta sér á ýmsan hátt. Málarinn Horst Dietrich og arkitektinn Friedhelm Zeuner fengu verk- smiðjubygginguna til eigin ráð- stafana árið 1971. Verksmiðju- byggingin var hresst viö og gerð mjög aðlaðandi fyrir fólk á öllum aldri. barna eru nú haldnar leiksýningar, hljóm- leikar og hvað eina, og alltaf er fullt út úr dyrum. Kannski við eigutn einhvers staðar gamla verksmiðju, sem mætti breyta á svipaðan hátt. Jörðin hægir á sér Vfsindamenn fullyrða, að jörðin sé farin aö hægja á sér, hefur hraði hennar minnkað um einn tiunda úr sekúndu frá þvi i april 1962, sem okkur finnst vist ekki mikið, sem ekki höfum vit á visindum. Kjarnorkuklukkur, sem eru nær nakvæmustu i heimi, hafa sýnt fram á þessa hraðabreytingu, en þetta gerir vist ekkert til, þvi að alls hefur jörðin hægt á sér um 35 sekúnd- ur frá þvi "m siðustu aldamót. Pýramídar á hvolfi. Nýjasta tízka í húsagerð Pýramidarnir egypzku hafa iöngum verið taldir hreint furðuverk i byggingarlist þeirra tima. Nokkrir bygginga- verkfræðingar i Odessa eru samt þeirrar skoðunar að það hefði jafnvei verið enn snjall- ara. hefðu Forn-Egyptar fundið uppá þvi að hafa endaskipti á pýramidunum. Það sem kemur þeim til að segja þetta er reynsla þeirra af nýjum aðferðum, sem notaðar hafa verið við byggingu háhýsa i sovézku hafnarborginni Odessa við Svartahaf. 1 stað þess að reisa húsin á hinum venjulegu háu, beinu stöplum nota þeir sem undirstöðu pýramida, er höfð hafa verið endáskjpt'i á betta er fljótlegri aðferð og byggingarkostnaöurinn er mun lægri 60 hús hafa þegar verið reist með þessum hætti, og virð- ast þau engu óstöðugri en hin. ★ Og hver var hin seki? Um klukkan fjögur að nóttu i júni siðast liðnum kom velklæddur maður inn i Pipi- strello-næturklúbbinn i Róm. ★ 48 dra aldursmunur á brúðhjónunum! ,,Ég er ungur eftir aldri”, sagði brúðguminn brosandi. Brúð- guminn var enginn annar en Avery Brundage, fyrrum formaður i Alþjóðlegu Olympiu nefndinni, margmilljónamær- Hann gekk að pianóinu og fór að reyna að leika lag, sem hann virtist ekki muna fullkomlega. Fólkið i klúbbnum var of önnum kafið við að drekka og skemmta sér tii þess að það tæki eftir þvi sem fram fór. Þegar maðurinn hélt svo áfram að spila sama lagstúfinn aftur og aftur fór það að fara i taugarnar á hópi manna, sem sat skammt frá hljóðfærinu. Einhver kallaði til mannsins að hætta, en hann lét það ekki á sig fá, heldur hélt áfram að spila. Skyndilega stóð maður nokkur á fætur og spark- aði pianóstólnum með spilaran- um á I burtu frá hljóðfærinu. Pianóleikarinn stóð á fætur og æpti til mannsins, að hann hefði eyðilagt fyrir sér lagið sitt. Sið- an stakk hann hendinni inn und- ur jakkabarminn og dró fram skammbyssu og skaut. Þrir klúbbgestir féllu til jarðar mikið meiddir. Allir reyndu að kom- ast út hið skjótasta, en pianó- leikarinn stakk rólega á sig byssunni og gekk sjáifur til dyra. Þegar lögreglan kom var henni sagt að ekkerl hefði gerzt, þrátt fyrir það að greinilega mætti sjá skotgöt, blóð og skemmd húsgögn út um allt. Lögreglan greip þá til þess ráðs að handtaka eiganda nætur- klúbbsins, yfirþjóninn og dyra- vörðinn. Þeir voru sakaðir um að reyna að halda glæp ieynd- um. ★ ingur og hress og glaður, — en hann var að kvænast 37 ára gamalli þýzkri prinsessu, sem heitir Mariann Reuss. Avery Brundage sjálfur er nýlega orð- inn 85 ára gamall, og er þvi aldursmunur þeirra hjóna 48 ár. — Við erum hamingjusöm og ég er mjög hress eftir aldri og ég sé ekki neina ástæðu til að býsnast yfir þessu, sagði brúðguminn, þegar þau höfðu varla frið fyrir ljósmyndurum og blaðamönn- um.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.