Tíminn - 17.03.1974, Page 17

Tíminn - 17.03.1974, Page 17
Sunnudagur 17. marz 1974. ,,t.;,TÍMINN 17 tbúðarhús I byggingu i Garðahverfi. setti á framkvæmdir í bænum siðastliðið ar, en þaö eru viðbrögð bæjaryfirvalda við neyðar- ástandinu er skapaðist. er gaus i Heimaey. Enginn bæjarstjóri eða bæjar- stjórn á landinu brugðust jafn fljótt við til aö rétta Vestmanna- eyingum hjálparhönd, og á ótrú- lega skömmum tima var upp komið i Keflavik ibúðarhúsa- hverfi til að leysa neyð þeirra. Æskulýðsheimiliö var iengiö skrifstofu þeirra til ráöstöfunar og hjálparstarf við þá hófst sam- stundis, er tekið var til við aö afla húsnæðis. Aldarfjóröungs afmæli Á þessu ári eru 25 ár liðin siðan Keflavik fékk kaupstaðarréttindi. og verður af þvi tilefni efnt til Keflavikurhátiðar um mánaöa- mótin mai-júni. Hefur veriö skip- uð sérstök nefnd til þess aö annast fyrirkomulag þessara hátiða- halda, en þau eru sniöin eftir til- lögu Lúðviks Jónssonar. meina- tæknis, sem unnið hefur gott starf að þvi að gera þessa hátiö sem til- komumesta. Þá hefur af sama tilefni starfað um nokkurra ára skeiö sögu- skráningarnefnd. og réði hún Þorstein Thorarensen rithöfund til þess aö annast ritun sögu Keflavikur. Mun þaö verk langt komið. Framtíðarvörijbíllínn Helmingi sterkari grind en áður, sem er samt fímm kg. léttari á hvern metra. Nýtt hús, sem gerir nýtingu framöxulþunga betri, - nú 6,5 tn. Minni fjarlægð frá pallenda til framöxuls gefur 600 mm. meira pallrými - dýrmætir mm. Talið við Jón Þ. Jónsson í Volvosalnum um yfir- burði Volvo N. Til solu strax VELTIR HF (iott samstarf við fóikiö Þann mikla árangur, sem náöst hefur ber fyrst og fremst aö þakka góðu samstarfi, sem áöur er getið. en allir fulltrúar Fram- sóknarmanna i bæjarstjórn lögöu á það sérstaka áherzlu. aö þá væri ekki siður mikilvægt hiö nána og góða samhand, sem þeir hefðu haft viö fólkiö i bænum, kjósendur almennt. Framsóknarfélögin hafa starf- að af miklum krafti á liðnu kjör- timabili, og bæjarmálin veriö rædd á fjölmörgum fundum. Nú nýveriö var f járhagsáætlun bæjarins til umræöu á fjölmenn- um fundi Framsóknarmanna. Fyrir sköfnmu lauk öllum aðal- fundum félaga og fulltrúaráös. og skipuö hefur veriö uppstillinga- nefnd, sem væntanlega skilar innan tiðar um þaö áliti. hvernig staðiö skuli aö lista Framsóknar- manna i næ’stu bæjarstjórnar- k :ngum. Þégar viö spyrjum þá bæjar- fulltrúa Framsóknarmanna, hver séu l'ramtiðarverkefni á sviði bæjarmála, stendur ekki á svar- inu, og það er stutt og laggott: — Að fylgja þcim málaflokkum i höfn, sem þegar liggur fyrir, og bregðast við óvænlum verkefnum af sama snarræöi og gert var á þessu kjörtimabili. Viö þökkum þeim upp- lýsingarnar. og viötaliö. Störf þeirra liafa sýnt okkur liinum, hvers mest er um vert til fram- gangs góðra mála: Aö ganga i samhug að lausn vandamálanna, meö sókndjarft lið aö baki. Þá mun vel farnast. —BH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.