Tíminn - 17.03.1974, Page 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 17. marz 1974.
III Alice greifynja af Salisbury
missti sokkabandiö sitt i
fjörugum dansi.
Edward konungur beygöi sig
snöggt niður og tók þaö upp, en
einhverjir á dansgólfinu höföu
tekið eftir þessu og striddu
konunginum mjög á þessum litil-
fjörlega atviki. Konungurinn,
sem var mjög ástfanginn af Alice,
svaraði styggleg'a á frönsku:
„Honni soit qui mal y pense”
,,vei þeim sem hugsar saurugt
um þetta”. Ungu aðalsmennirnir
héldu áfram að striða konung-
inum og þeir hrifsuðu sokka-
bandið af honum og létu það
ganga manna á milli. Þegar
Edward konungur fékk það aftur,
hrópaði hann: ,,,,Innan skamms
verður sokkabandið svo eftir-
sóknarveröur hiutur, að þið
megið prisa ykkur sæla að fá að
bera það”. Þar með var stofnað
til heimsins viröulegustu
orðunafnbótar: ,,The Order of
the Garter”, þ.e. sokkabands-
orðunnar.
Fimm konur af
!)00 riddurum
Þegar 600 ár voru liöin frá
upphafi sokkabandsorðunnar, en
það var árið 1948, höfðu 900
sokkabandsriddarar verið
útnefndir. Flestir þeirra voru
evrópskir aðalsmenn. Af þeim,
sem fengu orðuna, voru aðeins 25,
sem voru ekki brezkir rikis-
borgarar.
Ar hvert i júnimánuði, þegar
enska konungsfjölskyldan býr á
Windsor, er haldin hin hefð-
bundna sokkabandsorðuathöfn.
Allir þeir sokkabandsorðu-
riddarar, sem eru á lifi, eru
viðstaddir meö fjaðurskrýdda
flauelshatta og þunga gullkeðju
sokkabandsorðunnar og St.
Georges krossinn um hálsinn.
Eftir stutta athöfn i ,,The
Garter Throne Iloom”, sem er
mjög glæsilegur salur, skreyttur
málverkum i likamsstærðum af
enskum konungum i einkennis-
búningum sokkabandsorðunnar,
fara menn til sérstakrar
guðsþjónustu i St. Georges kapell
unni. Hún var reist á 14. öld með
það fyrir augum að vera kirkja
hinnar nýju riddaraorðu.
Einn af glæsilegustu sölum
Windsor hallar er einnig tengdur
sokkabandsoröunni. Það er St.
Georges Hall. Þar eru skjaldar-
merki ýmissa orðuriddara siðan
1348 greipt i eikarþilin.
Bak við hásætin tvö aftast i
salnum, hangir málverk af
núverandi Englandsdrottningu,
Elisabetu II. Hún og hinar látnu
drottningar, Alexanderina,
Maria og Wilhelmina af Niöur-
löndum eru einu konurnar, sem
hafa fengið sokkabandsorðuna.
Hve langan tima Windsor
Siðan Vilhjálmur
sigursæli rejsti fyrsta
turn Windscr hallar-
innar við Tdmsá árið
1078, hefur fyún verið
bústaður ensku
konungsfjölskýldunnar.
42 kynslóðif ensku
konungsættarifmar hafa
mótað andvúmsloft
hallarinnar, sem er nú
stærsta konungshöll
veraldar, sem enn er
búið i.
Kvöld eitt i vorbyrjun árið 1348
var haldin veizla i Windsor
kastala og þar var saman
kominn allur göfugasti aðall
Englands. Þetta var ekkert
óvenjuleg veizla, en samt fékk
kvöldið sinn sess i sögu Englands,
þvi að vinkona Edwards konungs
A veggjunum i St. Georges Hall, sem svo mjög er tengdur hinni viröu-
legu sokkabandsorðu, hanga skjaldarmcrki alira orðuriddara i niu ald-
ir.
kastali hefur veriö bústaður
konunga, er ekki vitað. Þegar eitt
sinn var grafiö i garð drottningar
skammt frá Windsor höll, fundust
rómverskir gullpeningar með
merki Dómitianusar keisara.
Þeir voru taldir frá árinu 88.
Óhagganlegt
Alveg siðan Egbert af Wessen
var krýndur sem fyrsti konungur
yfir öllu Englandi árið 825, hafa
engilsaxneskir konungar haft
bústaði sina á bökkum Temsár,
Vitað er með vissu, að franski
Normannakóngurinn Vilhjálmur
sigursæli, hóf fyrst að reisa
byggingu á hæöinni þar sem
Windsor kastali stendur. Það var
fáum árum eftir orrustuna við
Hastings árið 1066. Sennilega
hefur verið byrjað að reisa
höllina sama ár og Tower of
London, en þaö var árið 1078.
Það fyrsta af Windsor kastal-
anum var byggt úr digrum eikar-
bjálkum. Þar voru glæsilegir
salir, herbergi fyrir hermennina,
hesthús fyrir hesta kóngsins,
einnig sérstök byrgi fyrir veiði-
hundana hans og sérstök bygging
fyrir veiðifálka konungs.
Barnabarnabarn Vilhjálms
sigursæla, Henrik II byggöi
traustlega steinmúra i stað gömlu
eikarbygginganna og reisti
„Round Tower”, stóra turninn.
sem enn þann dag i dag gnæfir
yfir Windsor höllinni.
Eftir þvi sem aldirnar liðu, óx
höllin að styrk og verðmætum.
Hún varð sterkasti staður
Englands, svo sterk og óvinnandi
að enski aðallin, eftir árangurs
laust umsátur árið 1215, lét
kastalann i friði i rúm 400 ár. En
umsátrið leiddi til þess, aö
Jóhann konungur undirritaði
skjalið Magna Carta á litlu eyj-
unni Runnymede i Tems fáum
kilómetrum frá Windsor höll.
Magna Carta hefur fengiö orð
fyrir að vera fyrsta réttindaskjal
heimsins, en þaö er orðum aukið.
Alþýðan fékk engin réttindi, en
aftur á móti fékk aðallinn aukið
vald gagnvart konungi. Einveldið
lék eftir sem áður alþýðuna grátt.
Margar konunglegar persónur
hafa sett svip sinn á Windsor á
umliðnum öldum. Einn af þeim
grimmlyndustu og nautna-
sjúkustu var Hinrik VIII (1509-
1547). Konungurinn er frægastur
fyrir að hafa átt sex drottningar
sem hann losaði sig við, þegar
þær urðu honum leiðigjarnar.
Eins og hann var réttlátur
grannvaxinn. og gáfaður sem
ungur maður, varð hann feitur,
skammsýnn og grimmur sem
konungur. Á aðeins fimm árum
varð ungi prinsinn að gömlum,
útblásnum einræðisherra og
mittismál hans hafði aukizt um 42
sm. Hin geysistóru herklæði hans
eru geymd i Windsor höll.
Aheyrnarherbergi drottningar er prýtt iæsiiegum málverkum eftir
Verro og góbelinsvefnaöi frá vefnaðarstofu i Frakklandi frá um 1780.