Tíminn - 07.07.1974, Page 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 7. júli 1974
Sunnudagur 7. júlí 1974
Vatnsberinn: (20. jaa-18. febr.)
Þú skalt sýna þinum nánustu i dag, að þú sért
maður fyrir þinn hátt. Það er alltaf verið að
reyna að hafa vit fyrir þér, segja þér til og ráð-
leggja þér, með móðgunartilburðum, ef ekki er
eftir farið.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Það getur veriö, að ýmis atriði, seu ekki eins ljós
og skyldi i sambandi við sum mál, sem liggja
fyrir núna, en engu að siður ættir þú að huga að
tilboði, sem þú hefur fengið, jafnvel taka þvi.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Ef þér verður boðið með i eitthvert ferðalag I
dag, ættir þú að hugsa þig vel um, jafnvel af-
þakka það, en hæversklega, þvi að þetta er ekki
þaö, sem þú átt aö stunda i dag. Það kemur upp
á dagfnn.
Nautið: (20. april-20. mai)
Það gæti farið svo, að þú þyrftir að leita til vina
þinna og kunningja i dag, og þá ættir þú að gera
þér ljóst, hversu gott það er að eiga trausta og
góða vini, þvi að þeir eru sannarlega ómetanleg-
Tviburamerkið: (21. maí-20. júni)
Það þýðir ekkert að vera að setja það fyrir sig,
þó að veröldin sé ekki nákvæmlega eins og mað-
ur vill hafa hana, — það gæti vel verið að þér
tækist að hafa einhver áhrif i sterkum samtök-
um, en eins og er svekkir þú bara sjálfan þig.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Þú hefur veriö að brjóta heilann um eitthvað,
sem þú ættir ekki að slá á frest að framkvæma.
Það er alveg óþarfi að vera að láta kostnaðinn
vaxa sér I augum, — og þú skalt ekki missa von-
ina um feröalagið.
Ljónið: (22. júli-23. ágúst)
Þú skalt forðast allt ósæmi, hvar sem það kemur
fyrir, og þaö er aldrei að vita nema einhver af-
skipti af stjórnmálum kunni að veikja aöstööu
þlna eða skemma álit þitt. Hafðu hægt um þig I
dag.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Þetta er svolítiö einkennilegur dagur, og þá
einna mest fyrir einhvern kulda umhverfis þig.
Að visu dregur úr honum meö kvöldinu, en engu
að slöur setur hann svip sinn á þennan dag og
kvöldiö.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Það eru ýmsar blikur á lofti I dag, og það má vel
búast viö sviptingum, sem gætu orðið alvarleg-
ar, sérstaklega þegar llða fer á daginn, nema þú
gætir þin alveg sérstaklega. Þess vegna skaltu
fara varlega I dag.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Þú skalt búa þig undir alls konar sviptingar I dag
og gæta þess að láta ekki koma þér úr jafnvægi.
Það kunna að verða ýmsar breytingar á hög-
um þlnum og jafnvel á þann hátt, sem þig
grunar sizt.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Það má alveg eins búast við þvi, að hvildardag-
ur verði þetta ekki, nema þá einna helzt fyrir
hédegið, en engu að siður getur hann oröið
skemmtilegur, þvi að hann er heldur hagstæður
þrátt fyrir allt.
Steingeitin: (22. des.-19. jan).
Þú ættir ekki að gera nokkurn skapaðan hlut til
þess að draga úr mæðunni. Þú ættir bara að
halda þig heima við, safna kröftum og slappa af.
Þetta er nefnilega enginn átakadagur, en
afskaplega góður til h Ildar.
AUSTUR-
FERÐiR
Um Grimsnes — Laugarvatn — Geysi —
Gullfoss
Um Selfoss — Skeiðaveg — Ilreppa —
Gullfoss.
Um Selfoss — Skálholt — Gullfoss — Geysi.
Daglega frá BSÍ —- Sími 2-23-00 — Ólafur
Ketilsson.
Samfelldur skólatími
í Reykjavík kostar
249 milljónir króna
Nefnd, sem starfað hef-
ur á vegum menntamála-
ráðuneytisins og borgar-
yfirvalda í Reykjavík skil-
aði í apríl s.l. álitsgerð,
sem fjallar um skipulag
skólahalds í Reykjavík
með tilliti til nýrra laga um
skólakerfi og grunnskóla,
og breyttra viðhorfa i þeim
efnum.
Menntamálaráðuneytið
og borgaryfirvöld Reykja-
víkur hafa ákveðið að fall-
ast á meginatriði þeirra
tillagna, sem fram koma r
álitsgerðinni. Samkvæmt
því mun verða gerð
heildaráætlun um skóla-
byggingar i Reykjavík,
sem reistar verða af ríki
og borg, og nái sú áætlun til
grunnskóla, ásamt for-
skóla fyrir 6 ára börn, og
alls almenns framhalds-
náms, þ.e. þess náms að
loknum grunnskóla, sem
námsefnislega og skipu-
lagslega getur myndað
samfellda heild.
Miðað verður við, að
nám að loknum grunnskóla
sé skipulagt sem fjöl-
brautakerfi. Annars vegar
verði um að ræða fjöl-
brautaskóla, sem byggðir
verða sem slíkir f rá grunni
og hins vegar samhæfing
þeirra skóla, sem fyrir
eru, og verkaskipting
þeirra á milli á grundvelli
f jölbrautakerf isins.
Gerð hefur verið frumáætlun
um skipulag og skólabyggingar i
samræmi við framangreinda
stefnumörkun og byggir sú frum-
áætlun að öðru leyti á þeim
forsendum sem hér eru raktar:
I. Reykjavikurborg er skipt i 7
grunnskólasvæði, sem mynda
siðan eitt eða fleiri skólasvæði
fjölbrautaskóla, sem hvert
um sig mun i öiium meginat-
riðum ná yfir allar almennar
námsbrautir framhaldsskóla-
stigsins. Þó mun nokkur sam-
vinna þeirra á milli vera
nauðsynleg, svo sem i kennslu
verklegra greina á sviði iðn-
menntunar o.fl.
II. Miðað er við, að skólar séu á
næstu árum tvisettir nemend-
um á forskólastigi og fyrstu 6
ár grunnskólans, en einsettir
eftir það. Siðar er gert ráð
fyrir, að einsett verði einnig i
4., 5. og 6 bekk grunnskólans.
III. Gert er ráð fyrir, að skóla-
dvöl nemenda verði samfelld
og verði i þvi skyni komið upp
aðstöðu til að nemendur geti
neytt máltiðar I skólanum,
byggt það kennsluhúsnæði
fyrir almenna kennslu,
kennslu I sérgreinum og sund-
kennslu hagað á þann hátt, að
svo megi verða.
IV. Gert er ráð fyrir, að á hverju
skólasvæði fyrir sig, verði af-
notum af skólahúsnæði breytt
sem nauðsyn krefurtil þess að
það komi að sem beztum not-
um og unnt sé að uppfylla þau
skilyrði, sem að öðru leyti eru
sett, með sem minnstum
tilkostnaði. A það fyrst og
fremst við eldri borgarsvæð-
in, þar sem ibúum og nemend-
um hefur fækkað verulega á
undanförnum árum.
Nýbyggingar verða þvl sam-
kvæmt þessu, fyrst og fremst
á þeim skólasvæðum þar sem
mest skortir á skólahúsnæði i
heild.
í frumáætlun er gert ráð fyrir,
að þeim framkvæmdum, sem
nauðsynlegar eru til að ná hinum
settu markmiðum, geti verið lok-
ið um 1980.
Menntamálaráðuneytið og
Reykjavikurborg munu i samein-
ingu vinna að framhaldi þessarar
áætlunargerðar og leggja hana til
grundvallar ákvarðana um fram-
kvæmdir við skólabyggingar og
áætlana um fjárveitingu, til
þeirra.
Nemendur fái matarpakka
og mjólk
I álits'gerð nefndarinnar, sem
fjallaði um skipulag skólahalds i
Reykjavik, er lagt til að nemend-
ur neyti matarpakka og mjólkur i
sérstökum matsal. Aætlaður
kostnaður við slikar skólamáltlð-
ir i barna- og gagnfræðaskólum
Reykjavikur yfir skólaárið er 123
millj. kr. miðað við verðlag 1. jan.
1973. Aætlaður kostnaður við að
börn og ungiingar fengju heitan
rétt og mjólk er hins vegar mun
meiri eða 271 millj. kr. Þriðji
kosturinn er sá að börnin fengju
matarpakka og mjólk, en neyttu i
skólastofunum. Kostnaður við
slikar máltiðir yrði 118 millj. kr.
Þeim fylgdu hins vegar verulegir
ókostir. Varzla yrði t.d. að vera i
höndum kennara, og yrði það
bæði dýrt, og sennilega óvinsælt
af kennurum.
Matsalur gæti einnig þjónað
öðrum hlutverkum I skólanum,
m.a. félagsstarfsemi.
Nefndin bendir á að ekki væri ó-
eðlilegt að opinberir aðilar
greiddu þau laun, sem til falla við
framleiðslu máltiðarinnar, þ.e
laun við afgreiðslu og gæzlu, en
foreldrar beri kostnað af máltlð-
inni, þ.e. efni og vinnu við hana.
Jafnframl yrði það val foreldra
að nesta börn sin að heiman i
stað kaupa á matarpakka I
skólanum.
Nýjar byggingar fyrir 139
milljónir
Annar aðalkostnaðarþáttur við
að koma á samfelldni i skóladegi
nemenda er aukning húsnæðist til
almennrar kennslu og sérgreina-
kennslu, sérstaklega leikfimi-
kennslu. Eftir þvi sem næst
verður komist er fjárfestingar-
þörf i öðru húsnæði en matsölum
um 499 milljónir króna á grunn-
skólastigi, sbr . fskj. II. Hluti af
þessari fjárfestingu er vegna
ófullgerðra bygginga og
óhjákvæmilegur hvort sem stefnt
er að samfelldni eða ekki. Þannig
eru u.þ.b. 213 milljónir vegna
leikfimisala við þá skóla, sem að-
eins hafa einskiptan litinn sal
eða alls engan Einnig er meðtal
in fjárfestingiLangholtsskóla og
Vogaskóla, vegna breytinga á
starfsemi skólanna, að upphæð
u.þ.b. 69milljónirkr. Þá er inni i
tölum þessum áætluð fjárfesting
vegna nýrra áfanga við skóla,
sem eru á framkvæmdaáætlun i
ár (Hliða-, Hvassaleitis- og Foss-
vogsskóla) samtals 78 millj. kr.
Mismunur sem ótvirætt er, að
stafar af þvi að koma á sam-
felldni i skólasókn, er þvi u.þ.b.
139 millj. kr.
Sund kennt á námskeiðum
Nefndin hefur athugað sérstak-
lega hvernig sundnámi yrði fyrir
komið með þeim hætti, að það ryfi
ekki samfelldni i skóladvöl nem-
enda. Ef sundnám á að vera á
stundaskrá nemenda með sama
eða svipuðum hætti og aðrar
námsgreinar, verður óhjákvæmi-
legt að byggja kennslulaugar við
flesta skóla. Almenningssund-
laugar myndu þá ekki nýtast til
sundkennslu nema við þá skóla,
lÍlÚTBOÐf
Tilboð óskast i lagningu Reykjaæðar II, 3. áfanga, fyrir
Ilitaveitu Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent i skrifstofu vorri, gegn 5000 króna
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 17. júli kl.
11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800