Tíminn - 07.07.1974, Side 30
30
Tiiviir\i\
Sunnudagur 7. júll 1974
Hér heldur Edna á Steven I barnaherbergi fimmburanna
fyrir hana að hætta hjá okkur”,
segir Gene. „Kærastinn hennar
var farinn að halda, aö hún vildi
frekar vera með fimmburunum
en honum”. Jeffery er sá, sem
venjulega vekur þau fyrst með
nfstandi öskri, en hann hefur til-
hneigingu til magaverkja. Það er
þvf fyrst skipt á honum, og hann
fær einnig fyrsta pela dagsins, en
alls þarf Edna aö gefa pela tutt-
ugu sinnum á dag. Grænmeti,
grautar og ávextir eru nú einnig á
matseðli fimmburanna, en Stev-
en, sem er þeirra stærstur, finnst
það eiginlega enginn matur,
nemahannfái pelann sinn. Ekki
er látið meira eftir Catherine,
sem er eina stúlkan, en drengjun-
um. Bræðurnir eru ekkert sér-
staklega hrifnir af systur sinni, og
reyndar ekki heldur hver af öðr-
um.
Heppna stúlkan
„Allir telja hana heppna, af þvi
aö hún er eina stúlkan”, segir
Edna. „Þeir eru vissir um að
biðlar hennar muni aldrei valda
henni neinum vandræðum.... ekki
með alla þessa karlmenn, sem
verja hana”. „Og aö alast upp i
heimilislifi sem þessu, hlýtur að
gera hana að mjög sjálfstæðri
ungri konu”, bætir Gene við.
Nathan er minnstur og langróleg-
astur. „Hann er uppáhaldið
mitt”, segir Gregory stóri bróöir,
„eða það held ég. Hann hlær allt-
af, þegar ég lit á hann, en grenjar
ekki eins og Jeffery”. Gregory
segist elska öll litlu systkinin sln,
en það kemur fyrir að hann verð-
ur þreyttur á þeim og fer þá til
einhvers fulloröins og spyr:
„Viltu kaupa þetta barn? Ég get
alveg selt þér það!” Stundum
leiðist honum aö vera stóri bróðir,
og þá leikur hann lftið barn, sem
vill láta vagga sér og leika við sig,
enda er hann ekki nema sex ára.
Stanek-hjónin leita nú að hús-
hjálp, sem vill búa hjá þeim, en
það veröur án efa erfitt fyrir þau
að finna konu, sem er fús til að
llta eftir fimmburum. „Við aug-
CROWN -bílaviðtœkm
eru longdrœg og örugg
Verð er sem hér segir:
Car-100 kr. 4.980.00
Car-200 kr. 5.700.00
Car-300 kr. 7.350.00
Skipholti 19. Sími 23800
Klapparstíg 26. Sími 19800
Sólheimum 35. Sími 21999
Akureyri. Sími 21630
Stanek og Peter'faöir hans koma meö barnamatinn heim. Þaö þarf
ekkert smávegis i matinn handa fimmburunum.
lýstum eftir konu, sem þætti
mjög, mjög vænt um lltil börn”.
Skattar eru annað vandamál.
Gene, sem var vanur að vinna
aukavinnu við að ganga frá
skattamálum annars fólks, verð-
ur nú að eyða miklum tlma I að
sjá um sin eigin þetta árið.
Skyndilegur frádráttur
„Það er áreiðanlegt, að skatt-
heimtan mun rannsaka mál okk-
ar gaumgæfilega”, segir Gene.
„Þeir munu án efa halda, að við
séum aö reyna að svlkja undan
skatti, þegar allt I einu er bætt viö
fimm fjölskyldumeðlimum”.
Yfirmaður Gene hefur verið mjög
skilningsrlkur I sambandi viö
fjölskylduaðstæður hans, en það
getur nú llka verið vegna þess, að
vinnuveitandinn á sautján börn
sjálfur! „Og hann er alltaf að
spyrja okkur, hvenær við eigum
von á næsta barni!” segir Edna.
Þó að fimmburarnir þarfnist
ekki eins mikillar eftirtektar for-
eldra sinna og þegar þeir voru
minni, koma samt þeir timar, að
Gene og Edna vita ekki hvernig
þau eiga að snúa sér. Þegar loks-
ins er búiö að koma slðasta barn-
inu I rúmið á kvöldin, geta hinir
dauðþreyttu foreldrar, sem bæði
eru gefin fyrir góðan mat, setzt
niöur og rætt saman I rólegheit-
um yfir gómsætum kvöldverði og
dreypt á heimabruggaða vlninu
hans Gene. „Við gátum ekki
slappað svona af I byrjun”, segir
Gene. „Þegar Edna kom fyrst
heim frá sjúkrahúsinu, stoppaöi
slminn ekki. Flestir hringdu til að
óska okkur til hamingju, en svo
hringdu líka geðsjúklingar, sem
llktu fimmburunum viö nýgotna
hvolpa og annað állka brjálæðis-
legt. Dultrúarfólk bauðst til aö
hjálpa læknunum við aö halda
börnunum hraustum. Og við
fengum meira að segja bréf frá
Hvlta húsinu, frá Nixon forseta,
sém var mjög ánægjulegt, sér-
staklega af þvl að viö kusum hann
ekki”.
Foreldrar skiptast
á upplýsingum
Edna og Gene eiga bréfaskipti
við foreldra annarra fimmbura,
eins og Kienasts-hjónin I New
Jersey, sem eiga fjögurra ára
gamla fimmbura, og Baer-fjöl-
skylduna I Chicago, en þeirra
börn eru nlu mánuðum eldri en
Stanek-börnin. „Þau hafa sagt
okkur heilmikið um, við hverju
við megum búast”, segir Gene,
„og hvatt okkur mikið”. Einu
sinni fengu þeir, sem eignuðust
fimmbura heilmikið af gjöfum
alls staðar frá, en sú framkoma
hefur breytzt. Edna og Gene
verða að nurla saman öllu þvl
sem þau geta, en þau fá samt föt
og mat mikið til frítt frá stóru
vöruhúsi. Kaþólskt dagblað stofn-
aði til knattspyrnuleiks þar semá-
góðinn var 1800 dollarar og var
hann gefinn fimmburunum. For-
eldrar Gene héldu dansleik I
heimabæ sliium, og söfnuðust þar
2000 dollarar. Þetta er þó aðeins
dropi I hafið, þvl að kostar mikið
að ala upp eitt barn, hvað þá
fimmbura.
Traust hjónaband
Hjónaband Stanek-hjónanna
stendur á traustum grunni. Skýr-
ingin er ef til vill fólgin i eftirfar-
andi orðum Ednu: „Þótt ég
skemmti mér vel og færi oft út
með karlmönnum, var ég ekkert
að flýta mér i hjónabandiö. En
þegar ég hitti Gene I fyrsta sinn,
hugsaði ég með sjálfri mér, að
hann' yroi áreiðanlega góður
heimilisfaðir. Ó já, ekki duttu
mér fimmburar i hug þá!”
(Lausl. þýttgb)
Gregory reynir að skemmta John litla bróöur.