Fréttablaðið - 18.12.2004, Síða 37
37LAUGARDAGUR 18. desember 2004
Samband ungra sjálfstæðismanna
hefur sent Halldóri Ásgrímssyni
forsætisráðherra að gjöf bókina
„Sigmund sér til þín!” Með þessu
vilja ungir sjálfstæðismenn mót-
mæla þeirri ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar að kaupa allar teikningar
listamannsins fyrir 18 milljónir
króna af skattfé. Í yfirlýsingu
SUS segir að fjölmargir Íslend-
ingar hafi fest kaup á verkum
Sigmunds í gegnum árin og jafn-
framt séu þau aðgengileg almenn-
ingi á opinberum bókasöfnum.
„Þessi fjárfesting ríkisins á verk-
um Sigmund er því óþörf og sam-
ræmist hvorki hlutverki ríkis-
valdsins né stefnu Sjálfstæðis-
flokksins um minnkandi ríkisaf-
skipti.“
Skoðanabræður SUS-ara í
vefritinu Vefþjóðviljanum taka
undir þessi sjónarmið og tengja
það stuðningi hins opinbera við
menninguna: „Núna síðast var
Reykjavíkurborg að kaupa „til-
finningatorg” af rithöfundi einum
og gott ef rithöfundurinn er ekki
búinn að bjóðast til að verða
starfsmaður torgsins.“
Vefþjóðviljinn sakar listfræð-
inga sem mótmæltu kaupunum í
Fréttablaðinu í gær um hræsni:
„En svo þegar ríkið kaupir allar
frummyndir Sigmund, og eignast
til þeirra öll réttindi, myndir sem
þorri landsmanna kannast við og
margir hafa haft mjög gaman af,
þá er skyndilega látið eins og
kaupandinn hafi misst vitið...En
hvers vegna þessi viðbrögð ým-
issa annarra nú? Þykir menning-
arliðinu Sigmund kannski ekki
nægilega fínn? Óvenjulegur mað-
ur í Vestmannaeyjum, gott ef ekki
kunningi Árna Johnsen. Nei, þá
viljum við nú frekar kaupa dósa-
hrúgu og sýna hana í Listasafni Ís-
lands. Og fá opnunarhóf og
kampavín“, segir Vefþjóðviljinn.
- ás
Sigmund-kaupin:
Hægrimenn herja á Halldór
STJÓRN SUS Hafsteinn Þór Hauksson, formaður SUS, Ragnar Jónasson, formaður menn-
ingarnefndar SUS, og Jón Hákon Halldórsson, framkvæmdastjóri SUS, með jólagjöfina til
Halldórs Ásgrímssonar.
Laugardagur 4. desember: 44 dagajólafrí Alþingis Íslendinga hefst
Sunnudagur 5. desember Tilkynntum hækkun rafmagnsreikninga
vegna gildistöku nýrra raforkulaga
um áramótin.
Mánudagur 6. desember BragiGuðbrandsson krefst rökstuðn-
ings fyrir ráðningu Ingibjargar Rafnar
í stöðu umboðsmanns barna.
Þriðjudagur 7. desember Skýrt fráþví að 100 manns séu fastir á
Landsspítalanum þar sem hjúkrunar-
rými eða búsetuúrræði skorti fyrir þá.
Mi ð v i k u -dagur 8.
desember Ut-
anríkisráðu-
neytið til-
kynnir að
B o b b y
Fischer hafi
verið veitt
dvalarleyfi á
Íslandi. „Það
hefur aldrei
verið glæpur
að tefla skák,“
segir Guðfríð-
ur Lilja Grét-
arsdóttir forseti Skáksambands Ís-
lands.
Fimmtudagur 9. desember „Ég hefalltaf verið aðdáandi Davíðs Odds-
sonar fyrir greind og ákveðni sem
stjórnmálamanns, það minnkar ekki
við þetta,“ segir besti vinur Fischers,
Sæmundur Pálsson.
Föstudagur 10. desember Listfræð-ingar mótmæla kaupum forsætis-
ráðuneytisins á verkum Sigmund og
segja þau einsdæmi í íslenskri lista-
sögu enda nærri tvöfalt hærri en fjár-
veiting Listasafns Íslands til mál-
verkakaupa á hverju ári.
SJÖ DAGAR
36-37 Stjornmal 17.12.2004 14:46 Page 3