Fréttablaðið - 18.12.2004, Page 61
LAUGARDAGUR 18. desember 2004 45
jólagjöf
Hugmynd að
fyrir alla
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
20% afsláttur
af brettapökkum
Betti, bindingar og skór.
Sessions brettafatnaður
fæst í Útilíf Kringlunni.
Vertu viss
...veldu Rossignol snjóbretti
um gæðin...
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
66
32
12
/2
00
4
ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON
Stjórnarskráin endurskoðuð í heild
„Fyrst það á á annað borð að endurskoða stjórnarskrána, vil ég að
allt verði lagt undir og hún endurskoðuð í heild,“ segir Ágúst Ólafur
Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ágúst telur að brýnustu breytingarnar séu að landið verði gert að
einu kjördæmi, þjóðareign sameiginelgra auðlinda sé tryggð og eftirlitshlutverk
þingsins verði eflt. „‘Það er hægta að gera með því að virkja eftirlitsnefndir sem
eru þegar í stjórnarskránni, en óvirkar.“ Ágúst segir að tryggja
verði málskotsrétt forseta forseta Íslands því hann hafi sannað
gildi sitt síðastliðið sumar.
Ágúst er einnig þeirrar skoðunar að það megi skerpa á aðskiln-
aði framkvæmda- og lögggjafarvalds. „Ég er til dæmis spennt-
ur fyrir þeirri hugmynd að framkvæmdavaldið verði kosið
beinni kosningu Þetta er mín persónulega skoðun og hún er
ekkert endilega eftir flokkslínunni, en Alþingi er orðin hálfgerð
afgreiðslustofnun í núverandi mynd.“
PÉTUR BLÖNDAL
Gildislaus ákvæði felld út
„Mikilvægast er að skerpa á ákvæðum um dómstóla, sérstaklega
Hæstarétt því hann er ekki nefndur í stjórnarskránni. Það er brýnt
að skilgreina hlutverk hans sem stjórnlagadómstóls,“ segir Pétur
Blöndal, þingmaður Sjálftæðisflokksins.
Pétur telur að það megi einnig endurskoða hvernig Hæstaréttardómarar eru skip-
aðir og það séu og segir margar leiðir færar til þess. „Það er líka spurning hvort
hægt sé að skerpa betur á þrískiptingu ríkisvaldsins, því er reyndar nokkuð vel
skipt í stjórnarskránni, en framkvæmdin er ekki nógu hrein, til dæmis eru flest öll
lagafrumvörp samin utan Alþingis.“
Pétur segir að einnig megi taka til skoðunar hvort ráðherrar
skulu sitja á þingi og ennig sé tilvalið að skoða þau ákvæði í
stjórnarskránni sem eru merkingarlaus og henda þeim út.
„Orðalag stjórnarskránnar á að vera kristaltært, almenningur á
að geta skilið hana án lögfræðilegrar túlkunar, því stjórnar-
skránni er fyrst og fremst ætlað að vernda borgarana.“
Pétur segist eiga von á því að róttækar breytingar verði gerðar
á hlutverki forseta Íslands, en það þurfi að koma á ákvæðum
um þjóðaratkvæðagreiðslu í staðinn.
MARGRÉT SVERRISDÓTTIR
Ráðherrar sitji ekki beggja vegna borðs
„Það þarf að breyta kosningum til Alþingis og jafna út vægi atkvæða
með því að gera landið að einu kjördæmi, en mig grunar að það
verði ekki lögð áherlsa á það. Ég hef fengið á tilfinninguna að menn
líti svo á að það sé búið að því,“ segir Margrét Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Frjálslynda flokksins.
Margrét segir að það eðlilegt að hlutverk forseta Íslands verði endurskilgreint en
telur ekki þörf á að afnema málskotsréttinn. Þá verði að koma á ákvæðum um
þjóðaratkvæðagreiðslu og hvernig skuli efnt til hennar.
Síðast en ekki síst telur Margrét að það verði að skilja betur að
milli ráðherra og þingmanna. „Yfirgangur framkvæmdavaldsins
er orðinn mjög mikill og ég fellst ekki á rökin að svona sé það
alltaf þegar öflugar meirihlutastjórnir eru við völd. Það þarf líka
að endurvekja ákvæðið um ráðherraábyrgð og það er nauð-
synlegt að þingmenn láti af þingsetu ef þeir setjast ráðherra-
stól og varaþingmenn koma í þeirra stað. Ráðherra skortir að-
hald ef hann er beggja megin borðsins.“
ATLI GÍSLASON
Þrískipting ríkisvaldsins verði tryggð
„Það er brýnast að bæta úr og tryggja þrískiptingu ríkisvaldsins. Það
þarf að gera dómstólana og löggjafarvaldið sjálfstæðara en það er
gagnvart framkvæmdavaldinu“ , segir Atli Gíslason, varaþingmaður
Vinstri-grænna.
Atli er ekki sammála Ágústi Ólafi að það eigi að endurskoða stjórnarskrána í heild
sinni. „Mannréttindakaflinn var til dæmis tekinn í gegn árið 1994
og hann er í góðu lagi. Það eru kaflarnir um þrískiptinguna,
Alþingi og málskotsrétt forseta sem skipta mestu máli,“ segir Atli
og finnst það koma til greina að þingmenn sitji ekki sem ráð-
herrar.
Atli er þó uggandi yfir ráðist hafi verið í þessa endurskoðun af
röngu tilefni. „Það sækir að mér að áhrifin frá fjölmiðlafrum-
varpinu í sumar verði alltof mikil; að það sé verið að skoða
þetta að gefnu tilefni þess máls. Menn þurfa að hreinsa sig af
skugga þess annars er ver af stað farið en heima setið.“
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Málskotsrétturinn verði skýrður
„Það þarf að skoða skilin milli framkvæmdavalds, dómsvalds og
framkvæmdavalds,“ segir Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknar-
flokksins. „Ég hef flutt mál um meiri aðskilnað milli löggjafarvalds og
framkvæmdarvalds og tel að ráðherrar eigi að fara af þingi. Fram-
sóknarflokkurinn hefur ályktað um það og Samfylkingin líka,“ segir Siv og kveðst
telja ágætar líkar á að sátt náist um málið.
Siv segir að í kjölfar deilnanna sem áttu sér stað um málskotsrétt-
inn í sumar verði að endurskoða hann. Það kom mörgum þing-
mönnum í opna skjöldu þegar forsetinn beitti málskotsréttinum.
Það gerði enginn ráð fyrir því að þegar löggjafarvaldið hafði tekið
ákvörðun væri hægt að koma málinu í annað ferli.“
Þá er Siv á þeirr skoðun að það eigi að gera landið að einu
kjördæmi en hún viðurkennir að það hefur ekki verið mikill vilji
til þess innan Framsóknarflokksins. „Það hefur verið mín skoð-
un að þetta yrði til bóta og landsbyggðinni í hag.“
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ
60-61 (44-45) Stjórnarskrá 17.12.2004 14.43 Page 3