Fréttablaðið - 18.12.2004, Síða 94

Fréttablaðið - 18.12.2004, Síða 94
■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Kolgrafarfjörður. Tómas Már Sigurðsson. Islam Abduganievich Karimov. 78 18. desember 2004 LAUGARDAGUR Brettafélag Íslands stendur í dag fyrir snjóbrettaatburði í Vetrargarðinum í Smáralind. Um er að ræða fyrsta snjó- brettaatburð sem haldinn er inn- anlands á Íslandi. „Þarna verða samankomnir færustu bretta- menn landsins og sumir þeirra koma til landsins frá Svíþjóð. Keppt er í „Jibb session“ sem virkar þannig að komið er fyrir hlut sem brettamaðurinn stekk- ur yfir,“ segir Ásgeir Höskulds- son formaður Brettafélags Ís- lands. Til þess að geta haldið mótið er nauðsynlegt að flytja snjó inn í Smáralindina og segir Ásgeir það nú ekki vera svo mikið mál. „Fólk heldur oft að við þurfum meiri snjó en raunin er. Við þurf- um að koma fyrir plastdúk á gólfið, vörubretti, klaka ofan á það og snjó á klakann. Þetta er svo bundið með salti. Svo þurf- um við eina rennu, stökkpall og lendingu. Vonandi er þetta byrj- unin á því sem koma skal og planið er að reyna að halda ein- hvern tíma stökkmót innan- húss.“ Brettafélag Íslands hefur verið starfrækt frá árinu 2001. „Nýlega var skipuð ný stjórn og höfum við unnið hörðum hönd- um við að leggja drög að vetrin- um. Helsta markmið okkar er að bæta aðstöðu brettamanna, við vinnum náið með Bláfjallanefnd og Hlíðarfjalli, einnig höldum við fimleikanámskeið þar sem meðal annars er æft á trampólíni hvernig á að beita sér í stökkum. Í janúar verður svo snjóflóða- varnanámskeið og einnig höfum við verið með fullt af litlum at- burðum. Ásgeir segir vinsældir íþrótt- arinnar hafa farið ört vaxandi síðan hennar varð fyrst vart hér- lendis árið 1990. „Í dag byrja í rauninni fáir á skíðum. Óform- leg könnun sýndi að 70 prósent þeirra sem sækja fjöllin eru snjóbrettafólk. Skíða- og fjöl- skyldufólkið sést hér mestmegn- is á góðviðrisdögum og til dæm- is á páskunum en þegar allt árið er tekið með í dæmið er bretta- fólk í miklum meirihluta.“ „Jibb session“ í Smáralind byrjar klukkan átta og endar um tíu leytið og mega viðstaddir búast við glæsilegri sýningu þar sem margir af færustu bretta- mönnum landsins sýna listir sínar. hilda@frettabladid.is Dvergurinn Ólöf Sölvadóttir er að slá hressilega í gegn 69 árum eftir andlát sitt. Inga Dóra Björnsdóttir hefur skráð ævisögu þessarar merku konu sem þóttist vera eskimói og varð víðfræg í Bandaríkjunum á sínum tíma. Bókin Ólöf eskimói er tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár og það er óhætt að segja að hún sé ein af óvæntum sölubókum þessa árs. Saga Ólafar er með miklum ólíkindum og virðist höfða vel til fólks því sóst er eftir kvikmynda- réttinum á henni og undirbúning- ur er hafinn á sölu bókarinnar til bandarískra forlaga hjá umboðs- manni í New York. Inga Dóra sem sjálf er búsett í Santa Barbara í Kaliforníu skrif- aði bókina upphaflega á ensku en umritaði hana og aðlagaði á íslensku. Enska frumútgáfan er komin í umferð ytra og allar líkur á að saga Ólafar muni koma út á ensku enda varð þessi magnaði lygari hálfgerð poppstjarna í Bandaríkjunum þagar hún var upp á sitt besta. Hér heima hafa svo nokkur helstu framleiðslufyrirtæki í kvikmyndabransanum ámálgað að kaupa réttinn á bókinni og bæði Friðrik Þór Friðriksson og Baltasar Kormákur hafa leitað hófanna en höfundur vill sjá hvort fleiri fiskar séu í sjónum og enn er ekkert ráðið um kvikmyndun. Það er því ljóst að Ólöf hefur spunnið sinn heillandi lygavef langt út fyrir gröf og dauða. ■ Lygadvergurinn eftirsóttur BRETTAFÉLAG ÍSLANDS: STENDUR FYRIR HELJARINNAR SÝNINGU Í DAG Snjóbrettastökk í Smáralind 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 HRÓSIÐ SNJÓBRETTI „Jibb Session“ verður haldið í dag en í því felst að stökkva yfir hlut. Hér sést Eiríkur Helgason snjóbrettakappi stökkva yfir bíl. Undirgefinn móður sinni Stúfur! Tvímæla- laust – það er eitt- hvað svo ómót- stæðilegt við dvergvaxinn rauð- klæddan skeggj- aðan karlmann sem gefur manni gjafir og syngur fyrir mann og er undirgefinn móður sinni. Segir það okkur eitthvað stelp- ur??? Alltaf soldið gaman að stinga í stúf...! Stúf í stofuna Stúfur ...af því hann er mesta dúllan! Mann langar til að taka hann með sér heim, gefa honum að borða og aldrei skila honum. Gott að eiga eitt stykki Stúf í stofunni hjá sér svona til að létta lundina. Allir nema Stekkjastaur Eiginlega eru þeir allir í uppáhaldi hjá mér, nema STEKKJASTAUR það er ýmis- legt í fari þessa einfætta jólasveins sem ég kann ekki við. Að vera að ryðjast inn í fjárhús þegar enginn sér til og fara að rembast við að sjúga ærnar – eða eins og segir í ljóði Jó- hannesar í Kötlum: Stekkjastaur kom fyrstur - stinnur eins og tré - hann laum- aðist í fjárhúsin og lék á bóndans fé - hann vildi sjúga ærnar - o.s.frv., mér finnst þetta eitthvað spúkí. En kannske er það bara minn „dirty” hugsunarháttur. Skyrjarmur sexý Ekki nokkur spurning; Skyrgámur! Eða Skyrámur eða jafnvel Skyrjarmur; fer einhverjum sögum af því hvað hann heitir kallinn. Hann er að minnsta kosti hreystin upp- máluð, smart mynd af honum í bókinni í gamla daga og svo er hann bara soldið sexý. Stærri gjafir Björk: Kertasníkir því þá eru jólin alveg að koma...Hann gefur líka stærri gjafir í skóinn. | 5STELPUR SPURÐAR | Uppáhalds jólasveinninn? EDDA GUÐLAUG BJÖRK UNNUR GUÐRÚN Lárétt: 1 snæðir, 6 hraða, 7 í röð, 8 tveir eins, 9 kvæðis, 10 kærleikur, 12 veitingastaður, 14 á potti, 15 tímamælir, 16 hæð, 17 kostur, 18 dreifa. Lóðrétt: 1 betrun, 2 mjólkurafurð, 3 sólguð, 4 trúgjarn, 5 víma, 9 konunafn, 11 val, 13 snemma, 14 loka, 17 hætta. Lausn: Lárétt: 1 borðar, 6 asa, 7 uú, 8 tt, 9 óðs, 10 ást, 12 krá, 14 lok, 15 úr, 16 ás, 17 val, 18 strá. Lóðrétt: 1 bati, 2 ost, 3 ra, 4 auðtrúa, 5 rús, 9 ósk, 11 kost, 13 árla, 14 lás, 17 vá. ÓLÖF ESKIMÓI Saga þessa magnaða lygadvergs hefur vakið athygli í Bandaríkj- unum og á Íslandi hafa kvikmyndagerðar- menn mikinn áhuga á að festa ævi falseskimóans á filmu. ...fær plötuútgáfan Smekkleysa fyrir að hjálpa tónlistarmönnum að koma sér á framfæri með því að leyfa þeim hvað eftir annað að leika lifandi tónlist í nýju Smekkleysubúðinni. Búðin er staðsett í gamla Kjörgarði á Laugavegi 59. 94-95 (78-79) MYND Fólk 17.12.2004 20:07 Page 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.