Fréttablaðið - 21.12.2004, Page 69

Fréttablaðið - 21.12.2004, Page 69
UPPISTAND Á BROADWAY FIMMTUDAGINN 30. DESEMBER MI ASALA Í VERSLUNUM SKÍFUNNAR, BT Á AKUREYRI & SELFOSSI, Á SKIFAN.IS, EVENT.IS OG Í SÍMA 575 1522. MI AVER A EINS 3.500 KR. Vinningar verða afhendir hjá Office 1 Superstore, Skeifunni. Með ví að taka átt ertu kominn í SMS klúbb BT. SMS kostar 199 kr . VILTU MIÐA! Sendu SMS skeytið BTL JKF á númerið 1900 og þú gætir unnið. Vinningar eru Miðar á Jamie Kennedy, DVD myndir, CD ś og margt fleira. ÞRIÐJUDAGUR 21. desember 2004 53 Kammersveit Reykjavíkur hélt jólatónleika í Áskirkju sl. sunnudag. Á efnisskránni voru konsertar eftir Francesco Manfredini, Antonio Vivaldi og Johann Sebastian Bach. Einleik léku þau Ásgeir Steingríms- son og Eiríkur Örn Pálsson á trompet, Daði Kolbeinsson, Peter Tompkins og Eydís Franzdóttir á óbó, Einar Jóhannesson og Rúnar Óskars- son á klarinett, Rut Ingólfsdóttir og Unnur Marís Ingólfsdóttir á fiðlu, Inga Rós Ingólfsdóttir á selló, Jósef Ognibene og Emil Friðfinnsson á horn. Rut Ingólfsdóttir var konsert- meistari. Konsertinn var höfuðform hljóð- færatónlistar á barokktímanum, eins og kunnugt er. Til voru nokkrar gerð- ir konserta en sú varð algengust þar sem einleikara, einum eða fleiri, var stillt upp andspænis hljómsveit. Formið fékk á sig skýra mynd um aldamótin 1700 og er ítalinn Giuseppe Torelli talinn hafa haft þar mest áhrif á. Meðal einkenna þess eru reglubundin áköll og svör milli hljómsveitar og einleikara, auk þess sem kaflar eru yfirleitt þrír; hraður, hægur, hraður. Á tónleikunum gafst skemmtileg yfirsýn yfir hve fjölbreytt tónlist var samin í þessu formi í upphafi átj- ándu aldar. Í konsertinum í D dúr eftir Manfredini voru einleikshljóð- færin tveir trompetar, en tvær fiðlur og selló í jólakonsert hans í C dúr. Manfredini var nemandi Torellis og fyrrnefndi konsertinn er mjög í hans anda. Í síðari verkinu er brugðið frá reglunni að því leyti að fyrsti og ann- ar kafli eru báðir hægir. Þessi verk eru einföld, skýr og heillandi. Fyrsti kaflinn í jólakonsertinum er fallega ljóðrænn. Í konsert Vivaldis í C dúr fyrir 2 óbó, 2 klarinett og hljómsveit er þó töluvert meira kjöt á beinunum. Á ytra borði kann tónlist Vivaldis að virka hrá og formúlukennd. Einfaldir þríhljómar og tónstigar oft mjög ráð- andi. Þessi sýn víkur þegar við nánari kynni. Eins og hjá Mozart þjónar ein- faldleikinn markmiði. Það er að und- irstrika og skýra megintóntegundir svo að meira megi gera með frávik- um þar frá undir gangi leiksins. Hryn- rænum krafti í verkum Vivaldis er við brugðið. Í þessu verki fer hann á flug m.a. með skemmtilega notuðum tríólum og synkópum. Þá tekst þess- um ítalska meistara að skapa dramatíska spennu milli hljómsveit- ar og einleikara og jafnvel einleikar- anna á milli. Hápunktur þessara tónleika var fyrsti Brandenburgarkonsertinn eftir Bach. Hann var aðdáandi Vivaldis, lærði af honum og bætti heilmiklu við, eins og þarna gafst gott færi á að heyra. Hér er hljómsveitin stærri og vefurinn ríkari og kaflarnir fleiri. Með- ferð stefjaefnis er afar hugvitssamleg og skapar sterka heild. Þetta verk er ein af perlum tónbókmenntanna. Kammersveitin flutti þessi verk yf- irleitt mjög vel. Trompetleikararnir Ásgeir og Eiríkur Örn blésu af snöfur- leika í Manfredini og sama má segja um leik þeirra Einars, Rúnar, Daða og Peters í Vivaldi. Það eru ekki margar fjölskyldur sem bjóða upp á strengjaleik eins og þær systur og Ingólfsdætur, Rut, Unnur María og Inga Rós, sýndu í jólakonsert Man- fredinis, enda eins gott því á vara- mannabekk meðal áhorfenda í sal sátu ekki færri en þrír kórstjórar úr sömu fjölskyldu. Rut fór auk þess mjög á kostum í Bach. Hornleikar- arnir Jósef og Emil komu í því sama verki sínu mikilvæga hlutverki einnig vel til skila. Stuðtækið vinsæla F í t o n / S Í A F I 0 1 1 3 9 6 úr Popptíví 3.990 kr. KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR Jólakonsertar hjá Kammersveit TÓNLIST FINNUR TORFI STEFÁNSSON Kammersveit Reykjavíkur Áskirkja           !  "  #$%&' ( )  &'* ( '+    ,-./0-#12345%*(-657*-"888 8889:*-;*(*<<*55= 3*->?6-;#*@5*;@- <*@(*@<"  A   8   B :'! !  C>/)  5!)! '  D#$% ?  8'2!   BE'A  8 #!  +E  +    B=  D#$%&' @ FGF F H     >#02"#6>:J55@5= 7)E! ' K8L ! 7 E    B ,-./0-7:#1;=  >/2  2 ! :% @2/F8   , E !  &B' '    %?%M-GN E  &,-977 8OO8 ) 8OO8 8OO8 )G8OO8 FO8OO8 )K8OO8 K8OO8 ) 8OO8 O8OO8 )'FK8OO8 /& P<B)!  / ' B(  2  FK Q8 E'FF  1B 50>/9#*270;" RRR827*-78"2 (5@5*-793*- 23.-*#"5% -64 <1* 56 2/- *@7 68-69 (52-53) Menning 20.12.2004 21:10 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.