Fréttablaðið - 21.12.2004, Blaðsíða 74
58 21. desember 2004 ÞRIÐJUDAGUR
FRÁBÆR SKEMMTUN
Sýnd kl. 5.40, 8.10 og 10
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 6, 8 & 10
kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i.14 Sýnd kl. 4
JÓLAKLÚÐUR KRANKS
Sýnd kl. 6 og 8 m/ísl. tali
HHH Ó.Ö.H DV
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 14
Sýnd í LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10
HHH kvikmyndir.com
HHH Balli / Sjáðu PoppTV
Kolsvört jólagrínmynd
HHH
S.V. Mbl
SÝND kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
OPEN WATER SÝND KL. 6, 8 & 10 b.i. 12
Jólamyndin 2004Jólamyndin 2004
WITHOUT A PADDLE KL. 4, 6 & 8 b.i. 12 THE GRUDGE KL. 10.30 b.i. 16
Hann er á toppnum...
og allir á eftir honum
Framleidd af Mel Gibson
Pottþéttur spennutryllir...
Sýnd kl. 8.20 og 10.30 Sýnd kl. 4, 6, 8 & 10.30
HHH1/2 kvikmyndir.is
HHH kvikmyndir.com
HHH
HL Mbl
Sama Bridget. Glæný dagbók.
HHH
S.V. Mbl
Sýnd kl. 5.30, 8 & 10.30
Sýnd í LÚXUS VIP kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.30
Jólamyndin 2004
Sýnd kl. 4 og 6.10 m/ísl. tali
kl. 4, 6.10, 8.20 & 10.30 m/ens. tali
HHH Ó.Ö.H DV
2 fyrir 1
á allar erlendar myndir
í dag ef greitt er með
Námukorti Landsbankans
MBL HHH Algjört augnayndi!
FBL Hressir ræningjar!
Kvikmyndir.com HHH
MBL HHH Algjört augnayndi!
FBL Hressir ræningjar!
Kvikmyndir.com HHH
Ragnheiður Gröndal hefur vak-
ið mikla athygli fyrir sína und-
urfögru flauelsmjúku rödd. Hún
á alla athyglina fyllilega skilið
og sannar það hér með þessari
plötu. Það er unun að hlusta á
hana syngja og einnig virðist
blunda í henni hinn fínasti laga-
höfundur sem fær aðeins að
kíkja út á þessari plötu.
Lögin sem hún á eru Land-
gangur, Gamlar vísur um blóm,
Jólakveðja og Vögguljóð – rituð
á jólakort. Landgangur er það
lag sem stendur upp úr á plöt-
unni og er að mínu mati lang-
besta lagið. Einnig vakti lagið
Vögguljóð – rituð á jólakort at-
hygli mína sem tregafullt og gíf-
urlega fallegt lag.
Ragnheiður er, eins og flestir
vita, mikill jassáhugamaður og
má heyra áhrif þess á plötunni.
Hljóðfæraleikur er að öllu leyti
glæsilegur og óaðfinnanlegur að
öllu leyi. Þau lög sem Ragnheið-
ur á ekki eru allflest mjög góð
en upp úr standa lögin Norður-
ljós, Húmar að, Vetrarsól og
Kærleikur.
Það sem er skrítið við plötuna
er að hún virðist vera blanda af
jólaplötu og „ekki“- jólaplötu.
Fjögur lög af þrettán eru jóla-
lög. Þessi fáu jólalög koma að
vissu leyti í veg fyrir að hægt sé
að skella plötunni á fóninn eftir
jól sem er hin hreinasta synd.
Þetta er hins vegar eini galli
plötunnar sem er ósköp ljúf og
sæt og rennur rólega í gegn.
Ekta plata til þess að skella á
fóninn á köldum vetrarkvöldum,
kúra sig undir sæng með tebolla
og góða bók. Ég hef það á tilfinn-
ingunni að Ragnheiður verði í
framtíðinni svolítið eins og tón-
listarmaðurinn KK er fyrir mig.
Góður lagahöfundur, falleg rödd
og óhætt er að fjárfesta í plötum
hennar án nokkurrar áhættu.
Næst væri samt gaman að fá
plötu sem inniheldur aðeins lög
eftir Ragnheiði sjálfa.
Borghildur Gunnarsdóttir
Rennur ljúf-
lega í gegn
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL
VETRARLJÓÐ
NIÐURSTAÐA: Ekta plata til þess að skella á
fóninn á köldum vetrarkvöldum, kúra sig undir
sæng með tebolla og góða bók. Það er unun
að hlusta á Ragnheiði syngja og einnig virðist
blunda í henni hinn fínasti lagahöfundur sem
fær aðeins að kíkja út á þessari plötu.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Söngkonan Natasha Bedingfieldsegir bróður sinn og söngvarann
Daniel Bedingfield ennþá vera
með ör eftir að hafa slegist við hana
fyrir 12 árum. „Daniel er með ör á
bringunni eftir að ég klóraði hann
þegar ég var 12 ára. Það var honum
að kenna – hann sagði
eitthvað ljótt við mig,“
sagði hún. Hún segist
einnig hafa brotið
handlegginn á honum
þegar hún ýtti honum
út úr tréhúsinu þeirra.
Rokkekkjan Courtney Love ætlar
að leysa frá skjóðunni í nýrri
sjálfsævisögu. Margt hefur á
daga hennar drifið á þessu ári.
Hún barðist við heróínfíkn, missti
forræði yfir 12 ára dóttur sinni,
Frances Bean, og var handtekin
fyrir að ráðast á aðdáanda. Loks
var hún dæmd sek fyrir að hafa
lyfseðilskyld lyf í fórum sínum
sem hún hafði ekki leyfi fyrir.
„Það verður allt látið flakka, öll
mín myrkustu leyndarmál. Ef ein-
hver verður ósáttur verður bara
að hafa það,“ sagði Love, sem er
ekkja Kurts Cobain, fyrrverandi
forsprakka Nirvana. ■
Sjálfskipaður konungur poppsins,
Michael Jackson, kom aðdáendum
sínum skemmtilega á óvart þegar
hann mætti í veislu sem var hald-
in fyrir krakka á búgarði hans
Neverland.
Jackson brosti og veifaði til
krakkanna, sem voru 200 talsins,
en treysti sér þó ekki til að fara og
leika við þá. Jackson hefur verið
ákærður fyrir að misnota ungan
dreng kynferðislega. Réttarhöldin
hefjast á næsta ári. ■
■ TÓNLIST
MICHAEL JACKSON Michael Jackson er í
slæmum málum þessa dagana. Hann sá
engu að síður ástæðu til að brosa í Never-
land á dögunum.
Kom aðdáendum á óvart
Leysir frá skjóðunni
HJÁ JAY LENO Söngkonan Courtney Love
í spjallþætti Jays Leno. Hún ætlar að leysa
frá skjóðunni í nýrri sjálfsævisögu.
■ TÓNLIST ■ BORÐSPIL
Borðspilið 70 mínútur hefur selst
í 6000 eintökum og hefur því náð
gullsölu. Í spilinu geta þátttakend-
ur fetað í fótspor þeirra Audda,
Sveppa, Péturs og Huga í sjón-
varpsþættinum 70 mínútur á
Popptíví sem notið hefur mikilla
vinsælda. Á meðal þess sem spilið
býður upp á er að drekka ógeðis-
drykki auk þess sem þátttakendur
gætu þurft að sleikja tærnar á
næsta keppanda, alveg eins og
strákarnir hafa þurft að gera und-
anfarin fjögur ár. ■
70 MÍNÚTUR Borðspilið 70 mínútur hefur selst í 6.000 eintökum.
Borðspilið 70 mínútur í gull
FRÉTTIR AF FÓLKI
74-75 (58-59) Bíóhúsin 20.12.2004 19:04 Page 2