Fréttablaðið - 30.12.2004, Blaðsíða 2
2 30. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Samtök verslunar og þjónustu:
Vara við evrópskri
svikamyllu
SVIKAMYLLA Samtök verslunar og
þjónustu vara fyrirtæki við því að
borga reikninga frá European City
Guide (ECG) ef þau telja sig ekki
hafa efnt til skuldarinnar. Sigurður
Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ,
segir fimm til sex íslensk fyrirtæki
hafa haft samband við SVÞ á
skömmum tíma vegna málsins.
European City Guide fær fyrir-
tæki til að samþykkja skráningu í
gagnabanka án endurgjalds. Síðan
fá fyrirtækin sendar upplýsingar til
að yfirfara og leiðrétta sem að lok-
um er staðfest með undirskrift.
Með smáu letri stendur hins vegar
að undirskriftin jafngildi pöntun á
skráningu í þrjú ár og hún kosti um
fimmtíu til sextíu þúsund krónur á
ári.
Sigurður segir ECG hafi í lengri
tíma aðstoðað tvö íslensk fyrirtæki.
Meðal annars hafi verið hringt heim
til eigendanna á kvöldin og þeim
hótað öllu illu borgi þeir ekki strax.
„Við höfum haft samband við inn-
heimtufyrirtæki og lögmannafélag-
ið og gert þeim grein fyrir málinu
og beðið þá um að taka ekki að sér
innheimtu,“ segir Sigurður. Hann
segir verstu leiðina vera að borga
inn á reikning því þá sé búið að við-
urkenna kröfuna. Engu að síður
verði að grípa strax til varna ef við-
komandi krafa fari í innheimtuferil.
- hrs
Líklega yfir hund-
rað þúsund látnir
Æ fleiri lík finnast á flóðasvæðunum við Indlandshaf og útlitið er svart. Rauði
krossinn býst við að rúmlega hundrað þúsund manns hafi dáið og kappkostar
að koma vistum til eftirlifenda og sporna við farsóttum.
BANDA AECH, AP Fátt gefur ástæðu
til bjartsýni við Indlandshaf, tala
látinna hélt áfram að hækka í gær
og var komin í 77 þúsund. Yfir-
völd á flóðasvæðunum búast við
að talan fari upp í hundrað þúsund
áður en langt um líður. Þá er vitað
um hálfa milljón manns sem hafa
slasast.
Eyjan Súmatra í Indónesíu sem
var hvað næst upptökum skjálft-
ans er nánast öll í rúst. Talið er að
um tíu þúsund hafi látist þar og er
þá áætluð tala fallinna í Indónesíu
komin upp í 55 þúsund. Þetta er
líklega mannskæðasta flóðbylgja
í sögunni. Tuga þúsunda er enn
saknað og Rauði krossinn telur að
mannfallið muni aukast. Pete
Ress, aðgerðastjóri Rauða kross-
ins, segir að það kæmi sér ekki á
óvart ef rúmlega hundrað þúsund
manns hefðu fallið í valinn.
„Við eygjum ekki mikla von,
fyrir utan kannski einstök krafta-
verk,“ segir Jean-Marc Espalioux,
formaður hótelkeðjunnar Accor,
um þær þúsundir ferðamanna
sem leitað er að meðfram strönd-
um Taílands. Þar af eru um tvö
þúsund Norðurlandabúar. Frétta-
menn flugu yfir Súmötru og sáu
lítið lífsmark nema á ströndinni
þar sem eftirlifendur leituðu að
einhverju ætilegu. Rúmlega þús-
und lík voru grafin í fjöldagröfum
víða á eyjunni en það skiptir sköp-
um að jarðsetja hina látnu sem
fyrst til að stemma stigu við far-
sóttum.
Á Indlandi hafa um sjö þúsund-
ir manna dáið og enn er átta þús-
unda saknað. Á Srí Lanka eru um
22.500 látnir og 1.800 í Taílandi.
Fórnarlömb flóðbylgjunnar eru
um 300 í Malasíu, Mjanmar,
Bangladess, Maldív-eyjum,
Sómalíu, Tansaníu og Kenía.
Hjálparstarfsmenn gera hvað
þeir geta til að sporna við kóleru
og malaríu sem getur borist um í
óhreinu vatninu. 175 tonn af hrís-
grjónum bárust til Súmötru í gær
sem og hundrað læknar. Víða hef-
ur fólk þó þurft að stela öllu steini
léttara til að hafa í sig og á. Á suð-
urströnd Indlands er byrjað að
bólusetja 65 þúsund manns sem
komust lífs af og klór er dreift á
ströndum sem lík hafa verið fjar-
lægð af. ■
Þjóðarhreyfingin:
Takmarkið
að nást
SÖFNUN Einungis herslumuninn
vantar á að nægir peningar til
þess að borga fyrir auglýsingu
Þjóðarhreyfingarinnar í banda-
ríska dagblaðinu New York
Times hafi safnast, að sögn
Ólafs Hannibalssonar, eins for-
svarsmanna hreyfingarinnar. Í
auglýsingunni verður afstaða ís-
lenskra stjórnvalda til innrásar-
innar í Írak hörmuð.
Ólafur telur að söfnuninni
ljúki nú skömmu eftir áramót en
þegar hefur verið ákveðið að
auglýsingin birtist einhvern
daganna 17.-21. janúar næst-
komandi. ■
Sjómenn:
Greiða
atkvæði
KJARAMÁL Atkvæðagreiðsla um
kjarasamning sjómanna stendur
yfir og lýkur henni á gamlárs-
dag.
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambandsins, vonast
til að öll kjörgögn verði komin í
hús þriðjudaginn 4. janúar svo
að hægt verði að hefja talningu.
Mikið megi þó ekki út af bregða
til að það geti dregist en öll kjör-
gögn verða að hafa borist til að
talning geti farið fram.
Stefnt er að því að úrslit at-
kvæðagreiðslunnar liggi fyrir
að kvöldi 4. janúar.
- ghs
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
FRÁ KÆNUGARÐI
Um eitt þúsund mótmælendur söfnuðust
fyrir framan stjórnarráðið.
Stuðningsmenn Júsjenkós:
Janúkovitsj
gagnrýndur
KÆNUGARÐUR, AP Um eitt þúsund
mótmælendur skrýddir appelsínu-
gulum lit slógu skjaldborg um
stjórnarráð Úkraínu í gær og vörn-
uðu Viktor Janúkovitsj forsætisráð-
herra inngöngu og gat hann því ekki
kallað saman ráðuneytisfund. Mót-
mælendurnir segjast hafa gert
þetta til að fá Janúkovitsj til að sjá
að sér og viðurkenna sigur Viktors
Júsjenkó í kosningunum.
Janúkovitsj hefur sent hæsta-
rétti Úkraínu fjórar kærur vegna
kosninganna sem rétturinn á eftir
að fara yfir og taka afstöðu til. Mót-
mælendum fækkaði þegar ljóst
varð að Janúkovitsj myndi ekki
boða til ráðuneytisfundar í stjórnar-
ráðinu heldur utan Kænugarðs. ■
Söfnunarsíminn er 907 2020
Með því að hringja í söfnunarsímann leggur þú fram 1.000 kr. til hjálparstarfsins
í Asíu. Einnig er hægt að leggja fram fé með kreditkorti á www.redcross.is,
eða millifærslu á bankareikning 1151-26-000012, kt. 530269-2649.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
kostar birtingu auglýsingarinnar
Nei, Ég samgleðst honum af öllu
hjarta, hann á fyllilega skilið að
ganga vel.
Jón Sigurðsson sem varð í öðru sæti íslensku
Idol-keppninnar hefur selt 5.500 eintök af sinni
fyrstu plötu Our Love. Kalli Bjarni, sigurvegari Idol-
keppninnar hefur selt 2.000 eintök af sinni fyrstu
plötu.
SPURNING DAGSINS
Kalli Bjarni, var sárt að tapa fyrir 500
kallinum?
VALT RÉTT NEÐAN BRÖTTU-
BREKKU Ökumaður var flutt-
ur á sjúkrahús eftir að
bifreið hans valt rétt neðan
Bröttubrekku í Borgarfirði í
fyrrakvöld. Slæmt veður var
á slysstað, hálka og lélegt
skyggni. Maðurinn var einn í
bílnum og var talinn við-
beinsbrotinn.
FAUK Á LYFTARA Engan sak-
aði þegar bifreið fauk utan í
lyftara í glerhálku á Höfn í
Hornafirði í fyrrakvöld. Bif-
reiðinni var ekið á litlum
hraða þegar atvikið átti sér
stað. Bifreiðin er lítið
skemmd.
STÚLKA VARÐ FYRIR BÍL
Fimm ára stúlka varð fyrir
bíl á Seljalandsvegi á Ísafirði
í gærkvöld. Stúlkan fékk
heilahristing og gisti hún á
sjúkrahúsinu á Ísafirði í nótt.
Slysið varð þegar stúlkan
renndi sér á sleða niður
brekku og lenti á framhorni
bifreiðar sem ekið var á göt-
unni fyrir neðan.
FÓLK SAT FAST Í ÓVEÐRI Hjálpa
þurfti fólki ofan af Fjarðaheiði
og Jökuldalsheiði í gærkvöld.
Björgunarsveitir og lögregla á
Egilsstöðum og Seyðisfirði sáu
um að koma fólki í öruggt skjól
en mikil hálka, hvassviðri og
þæfingur var á heiðunum í gær.
SNJÓFLÓÐ LOKUÐU VEGUM Snjó-
flóð lokaði veginum um Ólafs-
fjarðarmúla í gær. Þá voru
Óshlíð og Súðavíkurhlíð rudd í
gær vegna snjóflóða sem þar
höfðu fallið. Ekkert manntjón
varð vegna flóðanna.
Skattrannsókn á fjármálum Baugs:
Ákvörðun fyrir áramót
SKATTAMÁL Skattayfirvöld þurfa að
taka ákvörðun um endurálagn-
ingu skatta á Baug í síðasta lagi á
morgun annars fyrnist hluti af
málinu sem snýr að ríkisskatt-
stjóra.
Hvorki Indriði Þorláksson rík-
isskattstjóri né Skúli Eggert Þórð-
arson skattrannsóknarstjóri vilja
tjá sig um mál Baugs. Skúli Eggert
segir hins vegar að samkvæmt lög-
um þurfi endurákvörðun skattayf-
irvalda fara fram innan sex ára frá
því að viðkomandi skattgreiðandi
sendir framtal. Ef slík endurá-
kvörðun náist ekki áður en þessi
tími sé liðinn falli skattkrafan nið-
ur. Það gerist sárasjaldan en hafi
þó komið fyrir.
Að frumkvæði skattayfirvalda
er ríkislögreglustjóri einnig með
ákveðin mál sem snerta fjármál
Baugs til skoðunar en þau fyrnast
ekki um áramótin. Skúli Eggert
segist ekki geta tjáð sig um rann-
sókn ríkislögreglustjóra. Hann
segir hins vegar að mál séu al-
mennt ekki send honum nema
hugsanleg brot séu talin varða
verulegum fjárhæðum eða að þau
nái yfir langan tíma. ■
SIGURÐUR JÓNSSON
Samtök verslunar og þjónustu hafa verið í
samstarfi við efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra vegna European City Guide.
HÖFUÐSTÖÐVAR BAUGS
Sá hluti sem gæti fyrnst um áramótin í skattamálum Baugs snýr að sköttum á árinu 1998.
FÓRNARLAMB FLÓÐANNA
Björgunarmenn bera lík konu sem fannst látin á Phuket í Taílandi. Hjálparstarfsmenn
reyna nú að sporna við því að farsóttir berist út.
M
YN
D
/A
B
02-03 29.12.2004 21:44 Page 2