Fréttablaðið - 19.02.2005, Page 42
19. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
Það er alltaf gam-
an að fólki sem er til-
búið til að hrista upp í
hlutunum með mis-
viturlegum ummæl-
um um það sem því
liggur á hjarta. Sumir
skjóta sig í fótinn en
aðrir standa uppi kok-
hraustir og svalir á eftir.
Svona fólk lífgar upp á tilveruna því
ef enginn þyrði að segja neitt yrði
nú lítið gaman að hlutunum.
Russel Crowe, sem sló í gegn í
Óskarsverðlaunamyndinni Gladi-
ator, er einn af þeim sem eru
ófeimnir við að tjá sig. Hann hefur
verið áberandi í fjölmiðlum upp á
síðkastið, enn meira en vanalega.
Fyrst tjáði hann sig um Joseph
Fiennes, aðalleikara annarrar verð-
launamyndar, Shakespeare in Love,
og sagði hann hafa verið eins og
teprulegur og sætur strákur í hlut-
verkinu og engan veginn verið rétti
maðurinn í starfið. Skömmu síðar
gerði Crowe lítið út stórstjörnunum
Robert De Niro, Harrison Ford og
George Clooney þegar hann gagn-
rýndi þá fyrir að leika í auglýsing-
um. Sagðist hann sjálfur aldrei not-
færa sér frægð sína á þennan hátt.
Clooney skaut á hann á móti og
sagði að það hefði Crowe samt gert
með því að kynna hljómsveit sína 30
Odd Foot of Grunts. Gott hjá Cloon-
ey.
Ég sá nefnilega heimildarmynd
um sveitina ekki alls fyrir löngu og
fékk þá einmitt á tilfinninguna að
hún væri eingöngu þekkt vegna
Crowe. Greyið gat ekkert sungið og
tónlistin var ekki upp á marga fiska.
Líklega er hann með of marga já-
menn í kringum sig sem þora ekki
að segja hvað hann er lélegur.
Síðan las ég frétt í gær þar sem
Crowe var gagnrýndur fyrir að hafa
valdið töfum á myndinni Eucalypt-
us vegna stjörnustæla sinna. Var
uppblásið sjálfsálit hans sagt alltof
fyrirferðarmikið. Þetta hef ég líka
áður heyrt um Crowe. Þótt hann sé
góður leikari virðist mikilmennsku-
brjálæðið vera hans akkilesarhæll.
Ég þekki hann samt ekkert og
kannski er þetta bara ágætis ná-
ungi. Út á við virkar hann samt á
mig sem leiðindagaur, sem þó er
hægt að hafa gaman af. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
FREYR BJARNASON VELTIR FYRIR SÉR MISVITURLEGUM UMMÆLUM LEIKARANS RUSSELS CROWE.
Ummæli sem lífga upp á tilveruna
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
S M Á R A L I N D
Sími 517 7007
Vorlínan 2005
er komin
Full búð af nýjum vörum
Miðasala í síma 568 8000
www.HOUDINI.is
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Ááááiiiiii......þetta get ég
þolað! Það sem meiðir
hins vegar er að vita til
þess að ég á þetta allt
saman skilið.
Ég var búinn að gleyma
því að þið eruð að lesa
Ívan hlújárn saman... Hvernig
gengur?
Fínt!
Já, við lesum
tvo kafla í einu
og gerum svo
hlé til að ræða
um innihald
þeirra.
Mér fannst
kafli sjö vera
lengri en kafli
sex.
Já! Mér fannst
líka vera fleiri
bókstafir í
honum.
...þrír.... fjór-
ir...... fimm.......
sex! Ég má
gera aftur!
Nei, það
máttu ekki.
Ég á að gera!
Láttu þig
dreyma!
Ég er yngst svo
ég má gera eins
oft og ég vil.
Láttu mig fá
teningana!
Ég veit um fólk sem
þarf að vinna í því að
halda aftur af keppnis-
skapinu!
Allt í lagi,
en ég má
byrja!
44-45 (32-33) Skrípó 18.2.2005 19:09 Page 2