Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 3
Sunnudagur 9. marz 1975
TÍMINN
3
Þorlákur þreytti sýndur
í Skilmannahreppi
Leikflokkurinn sunnan
Skarðsheiðar hefur sýnt að
undanförnu gamanleikinn
Þorlák þreytta eftir Ncal og
Farmer i Fannahlið, Skil-
mannahrepi, Borgarfjarðar-
sýslu.
Frumsýnt var 21.
febrúar og hefur leikurinn
verið sýndur alls 7 sinnum fyr-
ir fullu húsi áhorfenda. Undir-
lektir áhorfenda hafa verið
sérlega góðar.
Leikstjóri er Brynja Kjerúlf
og leikendur eru: Anton Otte-
sen, Svandis Haraldsdóttir,
Anna Friðjónsdóttir, Elin-
björg Magnúsdóttir, Jón S.
Sigurðsson, Jón Sigurðsson,
Eiður Arnarson, Helgi Berg-
þórsson, Dúfa Stefánsdóttir,
Magnús Ólafsson, Guðmundur
Brynjólfsson, Guðfinna
Sveinsdóttir, og Hörður ólafs-
son. Leiks viösmenn eru:
Jónas Kjerúlf, Ólafur Hauks-
son, Arni Hjálmarsson og
Pálmi Hannesson.
Leikurinn hefur og verður
eingöngu sýndur i Fannahlið
Myndin sýnir leikendur
i Þorláki þreytta.
Thorvaldsensfélagið
safnar fé
til styrktar vangefnum
og vanheilum börnum
— bingó d þriðjudaginn
THOKVALDSENSFÉLAGID i
Reykjavik verður 100 ára þ.
19. nóvember á þessu ári. í til-
efni af þessum timamótum
hafa félagskonur ákveðið, að
allt það fé er þær geta aflað
skuli renna til vangefinna og
vanheilla barna.
Félagskonur afla sér fjár
með ýmsu móti, sölu jóla-
merkja, happadrættis og
siðast en ekki sist með rekstri
Thorvaldsensbazarsins i
Austurstræti 4, en hann hefur
verið þar i eigin húsnæði siðan
um aldamót. 011 vinna þar er
þegnskylduvinna og hefur
verið alla tið.
Nú hafa félagskonur i
hyggju, að hafa „bingó” að
Hótel Sögu þriðjudaginn þ. 11.
kl. 8.30. Thorvaldsensfélags-
konur heita þvi á bæjarbúa, að
koma til þeirra Qg skemmta
sér með þeim, um leið og þeir
styrkja gott og göfugt málefni.
Vinningar eru margir og mjög
glæsilegir.
Vonumst til að geta flutt
fleiri bíla í vor
— segir framkvæmdastjóri
Akraborgarinnar
SJ-Reykjavik. Verið er að útbúa
aðstöðu til út- og uppskipunar á
bílum i Akraborgina i Akraness-
höfn. Akraborgin hefur getað
tekið mest 10-11 bifreiðar i
flutning vegna þess að aðstöðu
hefur skort i landi, þ.e.a.s.
bryggjur, sem hægt er að hækka
og lækka. Þegar slík aðstaða er
komin bæði I Reykjavík og á
Akrancsi getur skipið tekið mun
fleiri bila, eða 50-60. Þórður
Hjálmsson franikvæmdastjóri
sagði í ' viðtali við Timann, að
hann vbnaðist til að þetta yrði
komið í kring á báðuin stöðunum i
vor.
Akraborgin hefur reynzt frá-
bærlega vel, að sögn. Rekstrar-
erfiðleikar eru þó töluverðir,
einkum nú um vetrartimann,
þegar farþegafjöldi er
„Eftirlátið
Norðmönnum
allt klabbið"
„EFTIRLATIÐ Norðmönnum
allt klabbiðþarna norður frá”.
Þessi orð lét Tor Oftedal, for-
maður utanrikismálanefndar
stórþingsins norska, falla i
ræðu, cr hann flutti á þriðju-
daginn var.
Tor Oftedal hét i þessari
ræðu á Bandarikjamenn og
aörar Atlantshafsbandalags-
þjóöir að styðja kröfu Norð-
mann til landgrunnsins
umhverfis Svalbarða. Hann
sagði:
,,Ég get ekki annað séð, en
að það sé áhættulaust og
heppilegast, ef það er metið
frá öryggissjónarmiði, að
eftirláta Norðmönnum allt
klabbið þar norður frá, þvi að
augljóst er, að afskipti Banda-
rikjamanna eða annarra vesl-
rænna stórvelda þar hefðu i
för með sér hættu á
árekstrum, sem geta haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar.”
Það voru hugsanlegar oliu-
lindir á þessum slóðum, sem
Oftedal hafði i huga. Lagði
hann mikla áherzlu á, að
Norðmenn, sem nú sæju
fram á, að olian myndi bæði
færa þeim auð og vald, yrðu að
gæta þess að láta aðra njóta
góös af.
Tor Oftedal sagði, að Norð-
menn yrðu sjálfir að vaka yfir
hagsmunum sinum á haf-
svæðum, er lúta munu yfir-
ráðum þeirra. „Hverjar verða
afleiðingarnar, þegar norsk
oliuvinnsla i Norðursjónum,
sem kallast má innhaf At-
lantshafsbandalagsrikja,
þenst út til nýrra og viðkvæm-
ari svæða i Noregshafi, svo að
við nefnum ekki Barentshaf og
hafið umhverfis Svalbarða?
...Getum við ekki með þvi að
hleypa Atlantshafsbandalag-
inu inn á norska landgrunnið
hrundið af stað þeirri atburða-
rás, sem við höfum einmitt
viljað koma i veg fyrir með
herstöðva- og utanrikispólitik
okkar og takmörkunum á
hernaðarviðbúnaði á Finn-
mörk? Getur ekki afleiðingin
orðið sú, að við komum i veg
fyrir skynsamlega nýtingu
auðæfa okkar á norðlægum
hafsvæðum? Eða svo við litum
á málið frá öðrum sjónarhóli:
Getum við fylgt einni stefnu á
Norðursjávarsvæðinu og ann-
arri, þegar norðar kemur?”.
Tor Oftedal sagði, að Norð-
menn yrðu að taka i sinar
hendur öll yfirráð og allar
skyldur á þessum hafsvæðum.
Hann sagðist ekki vera
reiðubúinn til þess að kveða
upp úr með, hvernig þessu
skyldi háttað. „Aftur á móti
hef ég minar skoðanir á þvi,
hverju við getum ekki haldið
áfram, sem sé að fylgja þvi
fyrirkomulagi, sem nú er”.
Um Svalbarða sagði hann:
„Vilji valdamenn i Washing-
ton halda áfram að draga úr
spennu i Evrópu, liggja til
þess gild rök, að þeir eiga að
styðja kröfu' Norðmanna um
landgrunnið þar norður frá”.
takmarkaður. Kvaðst Þórður
vona að úr rættist með hækkandi
sólogþegar farið verður að flytja
bila i stærri stil en verið hefur.
Fargjald fyrir bil með einum
farþega er nú 800 kr., en 1200 kr.
fyrir bil með tveim farþegum.
Fargjald fyrir farþega án bils er
500 kr. og 250 kr. fyrir börn.
Ekki er farið að byggja
bryggjurnar fyrir Akraborgina i
Reykjavik, en Þórður kvaðst
vona að það yrði gert á næstunni,
og gera mætti ráð fyrir að verkið
sæktist fljótt þegar hafið yrði.
Akraneshöfn sér um fram-
kvæmdirnar á Akranesi og
stendur straum af kostnaði.
Blómin okkar
eftir Ingólf Davíðsson
ÚT ER KOMIN hjá Rikisútgáfu
námsbóka ný bók, er nefnist
Blómin okkar. Höfundur er Ing-
ólfur Daviðsson grasafræðingur.
Bókinni er einkum ætlað að kynna
sæmilega læsum 8-10 ára börnum
undur hins græna gróðurs, I von
um að þeim verði Ijóst að hann cr
undirstaða lifsins á jörðinni.
Bókin er að miklu leyti i sam-
talsformi barna, foreldra og
kennara. Rætt er um ýmsar
jurtir, sem flestir þekkja, og enn
fremur um garða og algeng
gróðurlendi og lifverur I þeim.
Vakin er athygli á samfélagi
jurta og dýra, sýnt fram á,
hvernig hvert er öðru háð og
hvernig ein lifveran lifir á ann-
arri og tekin dæmi um ýmsar
fæðukeðjur þessu til skýringar.
Bent er á nauðsyn náttúruvernd-
ar og góðrar umgengni úti i
náttúrunni. Blómin okkar er 96
bls. að stærð, prýdd fjölda mynda
eftir Halldór Pétursson list-
málara, auk 8 litprentaðra siðna
með ljósmyndum og teikningum
af ýmsum jurtum.
Káputeikning er eftir Þröst
Magnússon teiknara. Setningu,
prentun og bókband annaðist Isa-
foldarprentsmiðja hf„ en kápu og
litprentun Litbrá hf.
Blómin okkar er þriðja bókin i
flokki lesbóka um ýmis efni. Aður
hafa komið út Sagan okkar,
lesbók með efni úr Islandssögu og
Landið okkar, lesbók um land-
fræðileg efni.
5UMUKT0LD
Ferðakynning!
FEGURÐARSAMKEPPNI
Valdir fulltrúar á alþjóðlegar fegurðarsam-
keppnir að Hótel Sögu sunnudagskvöld 9. marz.
1. Ferðakynning: Sagtfrá hinum fjölbreyttu og ódýru ferðamögu-
leikum á vegum Sunnu.
2. Bingó: Þrjár utanlandsferðir.
3. Brezku sjónvarpsstjörnurnar The Settlers syngja.
4. Fegurðarsamkeppni: Valdir fulltrúar íslands á alþjóðlegu feg-
urðarsamkeppnirnar Miss Europe i Beirut 30. mai og Miss Uni-
verse i San Salvador 6. júli.
5. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi til kl. 01.00.
Matargestir! Pantið borð hjá yfirþjóni timanlega vegna fyrir-
sjáanlegrar mikillar aðsóknar — Enginn aðgangseyrir nema
rúllugjald.
í SÓLSKINSSKAPI NED SUNNU
FERflASKRIFSTOFAN SUNNA ICKJARGÖTU 2 SlMAR 16400 12070