Tíminn - 09.03.1975, Blaðsíða 11
Sunnudagur 9. marz 1975
TÍMINN
11
AAörg mikilvæg mál rædd
á náttúruverndarþingi
Mánudagsmynd Háskólabíós:
Náttúruverndarþing, hið annað i
röðinni, verður haldið dagana 26.
og 27. april næstkomandi. t
náttúruverndarlögum, sem i gildi
gengu vorið 1971, eru ákvæði um
að náttúruverndarþing skuli
haldið þriðja hvert ár, og var
fyrsta þingið háð I Reykjavik i
april 1972.
A náttúruverndarþingi er fjall-
að um náttúruvernd landsins og
gerðar tillögur um röðun þeirra
fbúð ad vardmæti
MUNIÐ
Ibúðarhappdrætti H.S.I.
2ja herb. íbúð að
verðmæti kr. 3.500.000.-
Verð miða kr. 250.
V J
verkefna, sem þingið telur brýn-
ast að leysa. Skýrsla Náttúru-
verndarráðs er lögð fram og
rædd. Þá kýs þingið 6 menn i
Náttúruverndarráð og 6 menn til
vara, en formann og varafor-
mann skipar menntamálaráð-
herra.
Rétt til setu á náttúruverndar-
þingi eiga fulltrúar allra náttúru-
verndarnefnda, en þær starfa I
hverri sýslu og kaupstað. Auk
þess fulltrúar allmargra sam-
taka, sem tiltekin eru i lögum,
þrir sérfræðingar frá Náttúru-
fræðistofnun Islands, fulltrúar
allra þingflokka á Alþingi og
Náttúruverndarráðsmenn. Loks
sitja á þinginu embættismenn,
sem fara með mál, er snerta
náttúruvernd.
Þingið verður haldið á Hótel
Loftleiðum i Reykjavik.
A náttúruverndarþinginu i vor
má vænta þess að ýmis mikilvæg
mál verði tekin til meðferðar.
Þar á meðal má nefna þjóðgarða
og friðlýsingu einstakra svæða,
jarðrask, orkumál og hönnun
mannvirkja, votlendismál, um-
ferðarrétt, löggjöf og stjórn um-
hverfismála.
Náttúruverndarráð undirbýr
þingið, og veitir skrifstofa ráðsins
allar nánari upplýsingar.
„Solaris"
— sovézkt
geimferðaæ vintýri
,,Sá, sem lærir ekki af eigin ævi
og reynslu, neyðist til að endur-
taka hvort tveggja.”
Þetta forna spakmæli virðist
vera undirstaðan i þeirri ,,vis-
indaskáldsögumynd” SOLARIS,
sem Háskólabió mun kynna
almenningi næsta mánudag. Er
myndin gerð af hinum þekkta og
umdeilda leikstjóra Andrei Tar-
kovski, en byggð á framtlðarsögu
eftir annan Rússa, Stanislaw Lem
að nafni. Hvort myndin er byggð
á þeim orðum, sem getið er hér að
ofan, skal ósagt látið, en hinu
vilja ýmsir halda fram, að hún sé
eins konar svar Sovétmanna við
amerisku geimferðamyndinni
,,2001”, sem Stanley Kubrick
gerði á sinum tima og sýnd hefur
verið hér á landi.
Efni myndarinnar er i stuttu
máli það, að uppgötvuð heíur
verið st jarna, Solaris, sem er með
öllu hulin hafi, en hér er ekki um
dautt haf að ræða — það er lifandi
Natalia Bondarchuk leikur hlut-
verk Hari I Solaris, hinnar látnu
eiginkonu eðlisfræðingsins, sem
vakin hefur verið til lífs á ný.
Natalia útskrifaðist úr kvik-
myndaskólanum i Moskvu fyrir 3
árum og hefur ieikið veigamikil
hlutverk i nokkrum sovézkum
kvikmyndum.
og gætt furðulegum eiginleikum.
Þekktur eölisfræðingur er sendur
til stjörnunnar I könnunarferð, en
þar eru fyrir 3 visindamenn, sem
eru á mörkum þess að verða vit-
stola.
Aðalhlutverkin i myndinni leika
Natalia Bondarchuk og Donatas
Banionis, sem koma hingað til
lands á vegum félagsins Menn-
ingartengsl tslands og Ráðstjórn-
arrikjanna, en félagið á 25 ára af-
mæli um þessar mundir. Einnig
fara Nikolai Grinko og Yri Yarvet
með stór hlutverk i myndinni, en
allir þessir leikarar eru I hópi
beztu leikara Sovétrikjanna.
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR 62.10
Átt þú von á
tekjuafgangi frá þínu
tryggingafélagi ?
er vel hugsanlegt,
ef þú tryggir hjá gagnkvæmu
tryggingafelagi. Verði hagnaður
af þeirri grein trygginga, sem þú
kaupir hjá Samvinnutryggmgum,
mátt þú eiga von á tekjuafgangi
til þín.
Samvinnutryggingar hafa þegar endurgreitt
til viðskiptamanna sinna
yfir 500 milljónir króna
á verðgildi dagsins í dag.
Att þú von á tekjuafgangi frá þínu tryggingafelagi ?
SAMVIINIMJTRYGGirVGAR GT.
ÁRMÚLA 3
SÍMI 38500