Tíminn - 09.03.1975, Page 13
Sunnudagur 9. marz 1975
TÍMINN
13
I
Tjöruhiís eöa beykishús. Byggt 1734.
TÍMI A fSAFIRÐI
ÞÓTT flestir séu á einu
máli um að islendingar
hafi á öllum öldum átt
byggingarlist/ og hana
eigi ómerka/ þá hefur
mikill meirihluti ís-
lenzkra húsa löngum ver-
ið gerður af efni/ sem illa
þoldi tímans tönn.
Moldarveggir sigu og
sukku að lokum í jörð/ og
törfþökin féllu niður í
tóftina. Hver kynslóð
þurfti að byggja sín hús,
viðhald og endur-
byggingar máttu heita
þrotlaust verk.
Þó er nú langt orðið
síðan farið var að byggja
hérá landi hús, sem betur
þoldu álag vatns og
vinda, og hingað og
þangað um landið má líta
byggingar, sem eiga
mikla sögu að baki og
kynnu frá mörgu að
segja, ef þær mættu
mæla. I þeirri tölu eru
gömlu húsin á isafirði,
sem hér birtast myndir
af. Vafalaust munu
sumir lesendur okkar
kannast mætavel við
þessar gömlu, virðulegu
byggingar, aðrir geta
leitað á náðir fmyndunar-
afls síns til þess sð setja
sér fyrir sjónir það líf,
sem lifað hefur verið
innan þessara veggja.
tbúöarhús i „Hæstakaupstað” byggt 1788. Þetta hefur þótt veglegt hús
á meðan það var ,,I blóma lifsins”, enda hefur það vafalaust tekið langt
fram öðrum húsum I grenndinni, um það leyti sem smiðirnir voru að
leggja á það siðustu hönd.
Faktorshús. Byggt 1765.
Söiubúð, eða krambúð, eins og það mun hafa verið kaliaö um það leyti, sem það reis af grunni, — og trú-
lega lengi siðan. Búðin er byggð 1757—1761.