Tíminn - 09.03.1975, Síða 17
Sunnudagur 9. marz 1975
TÍMINN
17
Menntaskólinn á
ísafirði:
Sólrisu-
hótíð
— framlag
menntskælinga
til menningarlífs
í bænum
DAGANA 10.-16. marz n.k. veröur
haldin á isafirði svonefnd sólrisu-
hátíð á vegum listafélags
Menntaskólans. Er- þetta i annað
sinn, sem slik hátið er haidin.
Á dagskrá hátiðarinnar er fjöl-
breytt efni, að mestu tengt bók-
menntum og listum. Má þar m.a.
nefna grafiksýningu, skáídavöku,
tónlistarkvöld og kynningu á
verkum Halldórs Laxness. Einnig
munu Rut Magnússon og Jónas
Ingimundarson skemmta. Þá
verður brúðuleiksýning, auk þess
sem sýndar verða tvær úrvals
kvikmyndir.
Fyrirhugað er, að listafélagið
standi fyrir pianótónleikum og
myndlistarkynningu seinna i
þessum mánuði.
Stefnt er að þvi, að sólrisuhá-
tiðin verði árlegur viðburður i is-
firzku bæjarlifi. Hún á að vera
framlag menntaskólanema til
menningarlifs i bænum. Hátiðin
hlaut mjög góðar viðtökur i fyrra,
og er það von menntskælinga, aö
svo verði einnig nú.
Sovézkir listamenn skemmta hér
— 25 ór fró stofnun
Menningartengsla íslands
og Ráðstjórnarríkjanna
UM miðjan marz eru
liðin 25 ár frá stofnun fé-
lagsins MÍR, Menning-
artengsla íslands og
Ráðstjórnarrikjanna.
Félagið stendur fyrir af-
mælistónleikum og fleiri
samkomum af þessu til-
efni, en einnig munu
aðrir aðilar gangast
fyrir sýningum, fyrir-
lestrahaldi, tónleikum
og fleii'a.
Þann 10. marz verður kvik-
mynd Andrei Tarkovskis, „Solar-
is”, sýnd i Háskólabiói, og hefur
tveimur af aðalleikendunum i
myndinni, þeim Natölju Bondart-
sjúk og Donatas Banionis verið
boðið hingað til lands i tilefni sýn-
ingarinnar. Sovézk bókasýning
verðuropnuð 10. marz á baðstofu-
loftinu i Bókaverzlun Isafoldar,
en þar verða sýndar tvö til þrjú
hundruð bækur, útgefnar i Sovét-
rikjunum á siðustu árum, og eru
þær af ýmsu tagi. Sýningin stend-
ur i viku.
13. marz er væntanleg átta
manna sendinefnd frá Sambandi
sovézkra vináttufélaga og félag-
inu Sovétrikin-lsland, til þátttöku
I afmælishátiðahöldum MIR. 1
nefndinni eru, meðal annarra,
Stúdentetski, aðstoðarsjávarút-
veesráðherra Sovétrikjanna,
ásamt hljóðfæraleikurum, söngv-
ara og þjóðdansaparinu V.P.
Vibornof og G. D. Sjein.
15. marz verður sovézk grafik-
sýning opnuð i sýningarsal Lista-
safns ASt, en sú sýning kemur frá
Danmörku, þar sem hún var m.a.
opin i Kaupmannahöfn. Sunnu-
daginn 16. marz verður afmæiis-
fundur MIR i Menntaskólanum
við Hamrahlið, en þar koma
sovézku listamennirnir fram,
ásamt islenzkum listamönnum,
og ávörp flytja Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra, Stúdentski aðstoðar-
sjávarútvegsráðherra og Mar-
grét Guðnadóttir prófessor.
Fyrirlestur heldur Stéblin-
Kamenski i Árnagarði i boði
heimspekideildar Háskóla Is-
lands 17. marz.
Sovézka þjóðdansaparið Galina Sjein og Vladimir Vibornov.
koma fram I afmælisfundi MtR og MH.
AUQLYSINGASTOFA KRISTlNAfl 62.8
GagnkvæmtM
mcrkir:
að hafi iðgjaldið
sem þú greiddir
í fyrra reynst hærra
en nauðsyn bar til,
færð þú endurgreiðslu í ár.
Er það ekki ærin ástæða
til að þú tryggir hjá okkur ?