Fréttablaðið - 11.04.2005, Page 8
8
SAMGÖNGUMÁL „Það verður
ákvörðun þess verktaka sem
verkið hlýtur hvenær hann vill
hefja framkvæmdir við Héðins-
fjarðargöngin,“ segir Sturla
Böðvarsson, samgönguráð-
herra.
Komið hefur fram að útboð á
verkinu fari fram síðla þessa árs
en þar sem ríkið leggur aðeins til
um 700 milljónir króna til verks-
ins 2006 er það í raun verktakans
að ákvarða hvenær hann telur
heppilegt að hefja framkvæmdir
með tilliti til þess fjármagns sem
í boði er það árið.
Samkvæmt samgönguáætlun
verður 1,2 milljarði króna varið til
gangagerðar á þessu ári, 700
milljónum á því næsta og alls tæp-
lega 5,4 milljörðum fram til ársins
2009. Einhver kostnaður er enn
eftir vegna Fáskrúðsfjarðarganga
sem einnig er gert ráð fyrir í
þessum tölum en áætlaður heild-
arkostnaður vegna Héðinsfjarðar-
ganga er um sex milljarðar króna.
- aöe
Héðinsfjarðargöng:
Verktaki ákveður
fyrstu skref
HÉÐINSFJARÐARGÖNG
Útboð hefst í haust og framkvæmdir gætu hafist ári seinna en það er þó að mestu leyti
ákvörðun verktaka.
Auglýsing Umferðarstofu:
Ekki til fyrirmyndar
UMFERÐARSTOFA Auglýsingar frá
Umferðarstofu hafa vakið mikla
athygli undanfarið og í nýrri her-
ferð er markmiðið að gera fólk
meðvitað um hegðun sína í umferð-
inni. Í auglýsingunum sjást börn
hafa eftir hegðun sem þau læra af
foreldrum sínum undir stýri. At-
hygli vekur að drengur sem eys
fúkyrðum yfir leiksystur sínar og
sést svo hlýða á umferðarorðræður
föður síns er ekki í barnabílstól.
„Mér skilst að barnið sé með
sessu undir sér þótt það sjáist ekki
enda er ekki verið að fræða fólk
sérstaklega um öryggi barna í bíl-
um þó setja megi út á hvernig belt-
ið liggur yfir maga barnsins. Aug-
lýsingin sýnir hegðun sem ekki er
til fyrirmyndar, hvort sem varðar
aksturslag eða öryggisþætti,“ segir
Einar Magnús Magnússon upplýs-
ingafulltrúi Umferðarstofu. „Best
hefði auðvitað verið að barnið væri
í bakvísandi bílstól.“
Hann segir viðbrögð við her-
ferðinni bæði jákvæð og neikvæð.
„Sumum finnst skiljanlega óþægi-
legt að heyra börn viðhafa slíkan
munnsöfnuð en hér er verið að
sýna framkomu sem því miður
mjög margir viðhafa í umferðinni.
Við erum að ala upp ökumenn
framtíðarinnar og þurfum að vera
þeim góð fyrirmynd.“
– bb
Slasaður sjómaður á sjúkrahús:
Fékk krók í öxlina
SLYS Skipverji á togaranum Snorra
Sturlusyni slasaðist illa í fyrrinótt
þegar hann fékk gilskrók í öxlina.
Þyrla frá varnarliðinu sótti mann-
inn, og flutti hann á Keflavíkur-
flugvöll, þar sem læknir tók á
móti honum og fylgdi honum á
sjúkrahúsið í Keflavík.
Togarinn var staddur um 50
mílur suður af Vestmannaeyjum
þegar slysið varð um klukkan eitt
í fyrrinótt. Meira en tveir tímar
liðu frá því maðurinn slasaðist
þangað til þyrla varnarliðsins fór
af stað til að sækja hann, en lækn-
ir Landhelgisgæslunnar gaf skip-
stjóra togarans ráðleggingar um
meðferð meðan á biðinni stóð.
Þyrluflugmenn Landhelgis-
gæslunnar gátu ekki sinnt þessu
vegna þess að þeir voru í hvíld
eftir að hafa verið á æfingum á
Austurlandi.
- gb
ÓSIÐIR Í UMFERÐINNI
Drengurinn í auglýsingum Umferðarstofu
er ekki í barnabílstól.
- mest lesna blað landsins
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Allt fyrir líkama og sál
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is