Fréttablaðið - 11.04.2005, Side 10
BULLUTÖK ÆFÐ
Hollenskir lögreglumenn sjást hér ásamt
þýskum kollegum á sameiginlegri æfingu
á því hvernig taka skuli á fótboltabullum
fyrir heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu
sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári. Æf-
ingin fór fram í þýska bænum Gel-
senkirchen í gær.
10 11. apríl 2005 MÁNUDAGUR
KJARAMÁL Margir grunnskólakenn-
arar vilja skoða sérsamninga á
meðan aðrir telja þá ganga þvert
á niðurstöðu síðustu kjaravið-
ræðna, segir skólastjóri Sjálands-
skóla í Garðabæ.
Um hundrað kennarar mættu á
málstofu Kennarafélags Reykja-
víkur um bókun fimm í kjara-
samningnum sem gefur svigrúm
til sérsamninga í eitt ár.
Helgi Grímsson, skólastjóri
Sjálandsskóla með sérsamninga,
segir að hann telji kennara ekki
telja út í hött að gera tilraun til
eins árs í skóla og læra af þeirri
reynslu: „Þó svo að menn hafa all-
an fyrirvara í heimi um það, hvort
það skili einhverju.“
Helgi segir um þrjátíu um-
sóknir um starf í Sjálandsskóla
hafa borist. Hann komi til með að
ráða um fimm kennara fyrir þá
fjörutíu til sextíu nemendur sem
verði í skólanum. Samninganefnd
kennara og sveitarfélaga hafi enn
ekki gefið grænt ljós á sérsamn-
inginn.
„Þetta stendur í þeim og menn
vilja stíga varlega til jarðar, því
sérsamningurinn er það mikil
breyting á því sem menn hafa ver-
ið að vinna í áður,“ segir Helgi.
- gag
Feneyjatvíæringurinn:
Gabríela full-
trúi Íslands
MYNDLIST Myndlistarmaðurinn
Gabríela Friðriksdóttir hefur verið
valin sem fulltrúi Íslands á Fen-
eyjatvíæringnum, sem opnar 10.
júní. Gabríela, sem fædd er árið
1971, er yngsti fulltrúinn sem Ís-
lendingar hafa sent til þessa.
Gabríela mun sýna verkið
Versations/Tetralógía á Feneyjatví-
æringnum. Verkið er polýfónísk
innsetning sem samsett er úr mál-
verkum, skúlptúrum, lágmyndum
og fjórum myndbandsverkum.
Myndböndin, Tetralógía, voru
unnin í samvinnu við Björk Guð-
mundsdóttur, Daníel Ágúst Har-
aldsson, Ernu Ómarsdóttur og Sig-
urð Guðjónsson. Tónlistin við
Tetralógíuna, var unnin af fjórum
tónskáldum, Björk Guðmundsdótt-
ur, Borgari Þór Magnasyni, Daníel
Ágúst Haraldssyni og Jónasi Sen. ■
SAMGÖNGUMÁL Útgjöld til vega-
mála þurfa að aukast um meira en
tuttugu prósent ef gildandi sam-
gönguáætlun ráðuneytisins á að
ganga upp. Nefnd á vegum sam-
gönguráðuneytisins, sem Ingi-
mundur Sigurpálsson fer fyrir,
hefur skilað hugmyndum um veg-
og notendagjöld.
„Tekjur af umferð eru minnk-
andi og skila ríkinu alltaf minni
tekjum og við því þarf að bregð-
ast,“ segir Ingimundur. Nefndin
mælir með því að notendagjald
komi í stað þungaskatts og bensín-
gjalds því það nái til allra bifreiða
óháð því hvaða orkugjafa þær
noti. Taka á mið af eknum kíló-
metrum og er hugmyndin að stað-
setningartæki byggt á gsm-tækn-
inni verði í hverjum bíl frá árinu
2011. Þeim fyrstu eftir tvö ár.
Nefndin mælir einnig með
veggjöldum af einstökum mann-
virkjum.
„Við tökum ekki afstöðu til
hvaða mannvirki eigi að leggja
gjöldin á að öðru leyti en því að
við segjum að fara megi þá leið til
að afla viðbótartekna ef ökumenn
eiga annan kost á að komast á
milli staða,“ segir Ingimundur:
„Síðan er það pólitísk ákvörðun
hvað menn vilja safna miklum
peningum í gegnum kerfið.“
- gag
M
YN
D
/A
P
KENNARAR RÆÐA KJARAMÁL
Helgi Grímsson skólastjóri í Sjálandsskóla og Jón Pétur Zimsen kennari í Réttarholtsskóla
ræddu sérsamninga í Kiwanishúsinu með kennurum.
REYKJANESBRAUTIN
Ingimundur segir að hægt væri að innheimta veggjald af Reykjanesbrautinni þar sem ökumenn geti valið að fara Vatnsleysuströndina.
Nefnd á vegum samgönguráðuneytisins:
Milljarða vantar í ríkiskassann
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
Sjálandsskóli Garðabæjar enn án leyfa:
Hundrað kennarar
ræddu sérsamninga