Fréttablaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 30
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald Verð frá 37.900 kr.* Bókaðu á www.icelandair.is Netsmellur til USA Bandaríkjaferðir á frábæru verði ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 28 05 4 0 4/ 20 05 Lærdómur á ferðalagi Margar ferðaskrifstofur bjóða upp á ferðir til landa í Evrópu þar sem hægt er að blanda saman tungumálanámi og fríi. Sérstaklega er vinsælt að sækja skóla í tvær vikur og eyða svo einni viku á sólarströnd.[ ] www.plusferdir.is N E T Hlí›asmára 15 • 201 Kópavogur • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is *Verðdæmi miðast við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman. Innifalið er flug, gisting, fararstjórn erlendis og flugvallarskattar. 1. júní, 6. júlí og 17. ágúst Feneyska Rivieran á Res Madrid í 7 nætur. Verð frá 46.620 kr.* 63.620 kr. ef 2 ferðast saman. Verð miðast við að bókað sé á netinu, ef bókað er í síma eða á skrifstofu bætast 2.000 kr. við hverja bókun. Clint kvöldsins og kúrekastemmning Einar ásamt dóttur sinni Bryndísi Einarsdóttur, framkvæmdastjóra hestamiðstöðvar Íshesta. Íshestar ehf. í Hafnarfirði byrjuðu að bjóða upp á svo- kallaðar Clint Eastwood-ferð- ir fyrir ári sína sem hafa sleg- ið rækilega í gegn. Þetta eru kúrekaferðir þar sem hópar fara í klukkutíma útreiðartúr eða göngutúr og skemmta sér síðan langt fram eftir kvöldi. „Þessi hugmynd kviknaði á „brain- storming“ fundi hjá starfsfólkinu. Það er skemmst frá því að segja að þessar kúrekaferðir hafa gert allt vitlaust. Þetta er greinilega það sem saumaklúbbar, vinahópar og starfsmannahópar höfðu verið að bíða eftir,“ segir Einar G. Bollason, framkvæmdastjóri Íshesta. Hóparnir í Clint-ferðunum byrja ferðina á útreiðartúr eða göngutúr í fallegu umhverfi Ís- hesta. Því næst tekur við línu- danskennsla í hlöðunni og eftir að dansinn hefur dunað í þó nokkra stund er hópnum skipt í tvö lið og keppa þau í skeifukasti. Þá er Clint kvöldsins, eða besti knapinn, verðlaunaður og best klædda parið og fá allir vinningshafar vegleg verðlaun. Eftir hasarinn er sest við matarborðin og hópurinn gæðir sér á ljúffengum réttum, eins og grilluðum svínarifum, maríneruðum kjúklingaleggjum og bökuðum kartöflum – ekta kúrekamat. „Síðan við byrjuðum hafa á fjórða þúsund manns farið á bak bara í þessum ferðum. Það er ekki mikið um kúrekaferðir yfir há- sumarið þar sem fólk er í sumar- fríi en í fyrra vorum við með hópa fram í desember í snjó og kulda,“ segir Einar en ferðirnar hafa vakið þvílíka lukku að þeim hefur lítið mátt breyta. „Við höfum aðal- lega styrkt innviðið. Núna leggj- um við aukna áherslu á dans eftir matinn og ef um hópa er að ræða fáum við kúrekabandið frá Hvammstanga til að spila en son- ur sjálfs kúreka norðursins, Hall- björns Hjartarsonar, er meðlimur í bandinu.“ Kúrekabandið mun gleðja kúrekahópana strax þar næstu helgi. „Við ætlum að gera betur en venjulega og opna húsið almenn- ingi seinna um kvöldið,“ segir Einar en mikilvægt er að mæta í alvöru kúrekafatnaði. „Við erum með kúrekahatta til sölu á vægu verði sem hópar hafa pantað hjá okkur. Það er rosalega gaman að sjá hvað fólk mætir í flottum föt- um – leðurbuxum, köflóttum skyrtum og með flotta kúreka- hatta. Síðan er allt skreytt hjá okkur í kúrekastíl sem eykur stemmninguna. Við erum með gamlar kúrekamyndir og myndir af Clint Eastwood á veggjunum þannig að það er voðalega huggu- legt hjá okkur.“ Verð í ferðirnar er 4.900 krón- ur á mann fyrir allan pakkann og innifalið er einn bjór eða gos. Hjálmar, stígvél, vettlingar og all- ur hlífðarfatnaður er á staðnum og þarf enginn að vera hræddur við að fara á bak því Íshestar eru bæði með hesta fyrir vana og óvana hestamenn. lilja@frettabladid.is s: 570 2790www.baendaferdir.is hjólaferðir til evrópu Austurríki og SlóveníaHjólað og siglt í Hollandi 26. júní - 5. júlí 2005 Fararstjóri: Þórður Höskuldsson 11. – 18. júní 2005 Fararstjóri: Þórður Höskuldsson LÉTT FERÐ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Veggirnir hjá Íshestum eru skreyttir göml- um kúrekamyndum til að skapa alvöru kúrekastemmningu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.