Fréttablaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
GSM Heimasími Internet
Og1 er ný þjónusta Og Vodafone sem lækkar kostnað
heimila verulega og færir þeim rausnarlegan ávinning.
0 KR. HEIM
Nú hringja allir heim úr GSM án þess að
greiða mínútugjöld í allt að 60 mínútur á dag.
0 KR. Í VIN Í ÚTLÖNDUM
Hvert GSM númer fær 120 mínútur á mánuði
í heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem
Íslendingar eiga mest samskipti við.
Mánaðargjald fyrir GSM áskrift er 600 kr.
Gildir fyrir Frelsisnotendur með
500 kr. Frelsisáskrift.
0 KR. INNANLANDS
500 mínútur í aðra heimasíma eru innifaldar í
mánaðargjaldi. Flestir tala minna en í 500
mínútur á mánuði á milli heimasíma og greiða
því ekkert mínútugjald.
0 KR. Í VIN Í ÚTLÖNDUM
Hver Heimasími fær 120 mínútur á mánuði í
heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem
Íslendingar eiga mest samskipti við.
Mánaðargjald fyrir Heimasíma er 1.340 kr.
MEIRI HRAÐI, FRJÁLST NIÐURHAL
OG VERÐÞAK
Þú átt þess kost að fá 6Mb/s ADSL og
ótakmarkað niðurhal á 4.990 kr. á mánuði
eða 4Mb/s ADSL og 1GB niðurhal fyrir 3.990
kr. á mánuði.
ADSL hraði miðast við þjónustusvæði
Og Vodafone.
Heimili sem eru með allt hjá Og Vodafone, GSM áskrift, Heimasíma og Internet, geta skráð sig í Og1.
Þeir sem eru með síma eða nettengingu frá vinnuveitanda ættu einnig að kynna sér Og1.
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
81
26
04
/2
00
5
Skilnaðir eru búnir að vera mikiðtil umræðu að undanförnu.
Menn tala um skilnaðafaraldur. Og
fólk er svo hispurslaust og glatt og
ræðir um skilnaðinn sinn í blöðum
og tímaritum eins og það hafi aldrei
gert sjálfsagðari hlut. Og allt er
þetta svo jákvætt og spennandi.
Fólk er bara að fá nýtt líf. Að skilja
er orðið eins og að fara í lýtaaðgerð.
Og því er slegið upp í blöðunum
eins og það sé eitthvað spennandi
og eftirsóknarvert. Það er mark-
visst verið að gengisfella hjóna-
bandið og gera það ómerkilegt.
MÉR finnst ekkert sniðugt eða
skemmtilegt við skilnaði. Mér
finnst það sorglegt fyrirbæri. Skiln-
aður er neyðarúrræði sem grípa á
til þegar allt annað bregst. Skilnað-
ur er sjaldnast lausn á vandamáli
heldur bara flótti frá því. Skilnaðir
verða yfirleitt vegna þess að fólk er
of ruglað til að búa saman en fattar
það ekki. Og rugl hefur tilhneigingu
til að hlaða utan á sig ef maður
horfist ekki í augu við það. Og bak
við flesta skilnaði er fjölskyldu-
harmleikur. Og þar eru börnin yfir-
leitt aðalfórnarlömbin.
HJÓNABANDIÐ er heilög stofn-
un. Þegar maður giftist einhverjum
þá tengist maður honum á meiri
hátt en öllum öðrum. Maður hættir
að vera einn en verður eitt með
annarri manneskju. Og maður deilir
öllu með maka sínum, hlutum sem
maður mundi aldrei deila með nein-
um öðrum. Hjónabandið á ekki að
vera flipp. Það er ekki tilgangslaus
stofnun. Það þarf mann og konu til
að búa til barn og mér finnst rök-
rétt að það þurfi mann og konu til
að ala það upp. Enn það er ekki
alltaf gaman og það er stundum
erfitt. Og fólk vill frekar klæða sig
töff og vera úti að skemmta sér og
lifa „spennandi“ lífi og hitta nýtt
fólk og allt kjaftæðið sem fólk selur
sér til að þurfa ekki að horfa í eigin
barm.
MAÐUR fær að velja sér maka í
þessu lífi. Maður fær ekki að velja
sér foreldra. Oft er það fólk sem
maður hefði aldrei valið sjálfviljug-
ur. Samt heyrir maður aldrei um
það að fólk skilji við foreldra sína.
Maður getur ekki skilið við pabba
sinn vegna þess að maður er orðinn
leiður á honum, losað sig við hann
og fengið sér nýjan, jafnvel yngt
upp, fengið sér ungan og hressan
pabba. Að skilja er ekki það sama
og að skilja.
jongnarr@frettabladid.is
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
Skilnaður
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR