Fréttablaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 55
27FIMMTUDAGUR 28. apríl 2005
ódýras
ti
mega
Fyrir fólk með liðkvilla
vegna slitgigtar eða
yfirálags
Fæst í apótekum
FORSTJÓRI NÝHERJA
Þórður Sverrisson.
Öll viðskipta-
vild afskrifuð
Eigið fé lækkar um 17
milljónir vegna reglu-
breytinga.
Viðskiptavild Nýherja, sem metin
var á tæpar 45 milljónir króna í
upphafi árs, var verðlaus í lok
fyrsta ársfjórðungs. Skýrist það
af upptöku nýrra reikningsskila-
staðla. Þeim fylgir að viðskipta-
vild er metin af óháðum aðilum og
afskrifuð í takt við þær niðurstöð-
ur. Þær 45 milljónir sem við-
skiptavildin lækkaði um var
gjaldfærð á fjórða ársfjórðungi
síðasta árs og því hafa breyting-
arnar engin áhrif á afkomu ársins.
Viðskiptavildin varð til við
kaup á dótturfélagi í árslok 2003
en í ljós hefur komið að virði þess
var lægra en bókfært verð og
lækkar eigið fé um 45 milljónir
vegna þess.
Þróunarkostnaður sem hafði
verið eignfærður var breytt í
kostnað og lækkar eigið fé vegna
þess um 36 milljónir. Á móti þess-
um niðurfærslum eru 52 milljónir
sem var skattur sem ekki er talinn
koma til greiðslu.
Eigið fé lækkar um 17 milljón-
ir í heild vegna breytinga á reikn-
ingsskilareglum. - dh
Fasteignagjöld vega
þungt.
Skattbyrði fasteignafélaga er 68
prósent hagnaðar hér á landi og er
það mun meira en í nágrannalönd-
um okkar. Meðal annars er tekið
tillit til tekjuskatts, eignaskatts
og fasteignagjalda.
Fasteignagjöld vega þungt og
hafa þau aukist mikið í kjölfar
hækkana á fasteignaverði. Fast-
eignagjöldin eru reiknuð út frá
fasteignamati eigna. Fasteigna-
matið tekur mið af markaðsverði
fasteigna og hefur því hækkað
mikið að undanförnu án þess að
leigutekjur hafi aukist mikið.
Skattbyrði fasteignafélaga er
minnst í Noregi eða 29 prósent af
hagnaði. Í Bretlandi og Danmörku
er 30 prósent hagnaður á fast-
eignafélög. Frönsk fasteignafélög
borga næstmest í skatta eða 51
prósent af hagnaði.
Þessar niðurstöður komu fram
í könnun Deloitte á skattlagningu
fyrirtækja í níu mismunandi lönd-
um í samráði við skattahóp Sam-
taka atvinnulífsins. - dh
Bakkavör birtir þriggja mánaða
uppgjör í dag eftir lokun mark-
aða. Áætlaður hagnaður félagsins
er tæpar fjórar milljónir punda.
Hagnaðurinn á fyrstu þremur
mánuðum ársins 2004 var 2,2
milljónir punda og eykst því um
tæp 70 prósent ef spár bankanna
ganga eftir. Velta félagsins verður
í kringum 40 milljón pund.
Hluthafar Geest hafa sam-
þykkt kaup Bakkavarar á Geest
og verða félögin sameinuð um
miðjan maí. Þetta er því síðasta
uppgjör Bakkavarar í núverandi
mynd en velta næsta ársfjórðungs
verður mun meiri. - dh
ÍSLENSK FASTEIGNAFÉLÖG Borga 68
prósent hagnaðar í skatta.
Íslensk fasteignafélög
borga háa skatta
Ágúst Guðmundsson stjórnarformaður og
Lýður Guðmundsson forstjóri.
HAGNAÐARSPÁ Á FYRSTA
ÁRSFJÓRÐUNGI
– í milljónum punda
Íslandsbanki 4,5
Landsbanki 3,6
KB banki 3,0
Meðaltal: 3,7
Bakkavör spáð
auknum hagnaði