Fréttablaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 78
AÐ MÍNU SKAPI
GUÐRÚN DÍS EMILSDÓTTIR, DAGSKRÁRSTJÓRI Á KISSFM 89,5
TÓNLISTIN Á KissFM eru spilaðir takt-
fastir, töff tónar sem fá mig til að brosa.
Ég trúi að tónlist hafi mikil áhrif á líðan
manns og vel því létta danstónlist, hip
hop og sexí R&B. Vilji ég detta í djúpan
fíling koma ýmsar grúbbur upp í hug-
ann, en núna er ég sökker fyrir Sigur-
rós, Jeff Buckley, Björk, Placebo og
70’s-tónlist.
BÓKIN Bækur Isabelle Allende eru dul-
ar og töfrandi. Höfundur lýsir staðar-
háttum og menningu Suður-Ameríku
svo vel að mér líður eins og stödd á
þeim framandi slóðum.
BÍÓMYNDIN Scareface, Braveheart,
Pretty Woman, Pulp Fiction, Forest
Gump, Motorcycle Diaries og Snatch
eru góðar. Einnig Sliding Doors því hug-
myndin er snilld. Sagan minnir mann á
að hver einasta ákvörðun lífsins skiptir
máli og hefur sínar afleiðingar.
BORGIN London er full af lífi og ólýsan-
legri spennu. Maður getur drekkt sér í
dýrindis búðum, gómsætum mat og
fjöri með þrælhressum Bretum. Látið
sig svo hverfa inn í St. James’s Park og
látið sólina sleikja úr sér þreytuna.
Þetta toppar ekkert nema kannski 101
Reykjavík á yndislegum sumardegi.
BÚÐIN Ég get hangið tímunum saman
í Top Shop á Oxford Street og sankað
að mér fötum og fylgihlutum fyrir lítinn
pening. Á Neil Street í London er glás
af litlum búðum sem selja notuð föt og
í norð-austur London eru ótal búðir
með föt eftir lítt þekkta hönnuði á
sanngjörnu verði. Heima versla ég mest
í Vero Moda, Spútnik og Centrum.
VERKEFNIÐ Að vera dagskrárstjóri Kiss-
FM því það er ögrandi og gefandi vinna
sem gefur sköpunargáfunni lausan
tauminn. Í augnablikinu vinn ég að
skrifum BA-ritgerðar í stjórnmála- og
fjölmiðlafræði þar sem ég fjalla um
hvort nauðsynlegt sé að hafa ákvæði
um eignarhald á fjölmiðlum.
50 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR
Þó nokkrar breytingarhafa verið gerðar á
Talstöðinni 90,9 en að-
eins eru um tveir mán-
uðir síðan útvarps-
stöðin fór í loftið.
Þátturinn Dagmál
með Ragnheiði
Gyðu Jónsdóttur
og Oddi Ást-
ráðssyni hefur verið blásinn af og
Sigurður G. Tómasson hefur verið
færður aftar í dagskránni. Frétta-
blaðið sér nú um tvo þætti á stöð-
inni, nýjan morgunþátt
á milli sjö og níu og
hádegisútvarp, en
Ragnheiður Gyða og
Sigurður G. skipta
með sér tímanum
þar á milli. Heyrst
hefur að aðrar
breytingar séu fyrir-
hugaðar á stöðinni
og þá gjarnan talað um að hún
verði send út í sjónvarpi.
Eins og framkemur annars
staðar á síðunni
eru miklar hrær-
ingar í miðlum
ætluðum ungu
fólki innan fjöl-
miðlafyrirtækisins
365, sem meðal
annars gefur út
Fréttablaðið. Árni Þór Vigfússon,
fyrrum sjónvarpsstjóri Skjás eins,
hefur tekið að sér að stýra ungmiðl-
unum og hefur víst boðað til sín
fjöldann allan af
fólki í viðtöl. Með-
al þeirra sem hafa
rætt við Árna Þór
eru Snæfríður
Ingadóttir, ritstjóri
Iceland Express-
blaðsins, Róbert
Róbertsson, að-
stoðarritstjóri Séð
og heyrt og Þóra
Sigurðardóttir úr
Stundinni okkar.
Fleiri hafa verið
nefndir til sögunn-
ar þar á meðal
fegurðardrottning-
arnar Ragnhildur
Steinunn Jóns-
dóttir og Elva
Dögg Melsted.
LÁRÉTT: 1 í vondu skapi, 5 karlfugl, 6
eink. st. skipa, 7 sólguð, 8 málmur, 9 lem-
ur, 10 átt, 12 ellegar, 13 tímgunarfruma,
15 á fæti, 16 sundfæri, 18 nöldur.
LÓÐRÉTT: 1 föggur, 2 klukkna, 3 tónn,
4 för, 6 met, 8 þrír eins, 11 óhljóð, 14
skelfing, 17 félagsskapur.
LAUSN
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
Uppnám á
Blönduósi
Kattaher súpukóngs
Skítur á leikskólalóð
– hefur þú séð DV í dag?
Sumar gjafir skipta
öll börn máli!
Gefum börnum góða sumargjöf
Hafinn er undirbúningur að
tveimur nýjum sjónvarpsstöðum
og einu blaði hjá fjölmiðlafyrir-
tækinu 365. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins er þar um að
ræða barnastöð, unglingastöð og
blað fyrir ungt fólk, svipað blöð-
um á borð við Vamm og Orðlaus
sem nýverið hætti starfsemi.
Inn í þessa nýju fjölmiðla
munu síðan fléttast útvarpsstöðin
FM957 og sjónvarpsstöðin Popp-
tíví. Árni Þór Vigfússon, fyrrver-
andi sjónvarpsstjóri Skjás eins,
var nýverið ráðinn til að hafa yfir-
umsjón með þessum nýju fjöl-
miðlum og hefur því haft í nógu
að snúast undanfarið. „Það er ver-
ið að þróa ákveðið konsept fyrir
yngri markhópa en þetta er allt í
mótun. Það verður væntanlega
meira að frétta af þessu í lok
næstu viku,“ segir Árni Þór, sem
hefur rætt við fjölda fólks sem
mun koma að þessum nýju
miðlum. „Þegar það
er verið að búa til
eitthvað nýtt verður
að fá gott fólk til að
vinna og þróa það,
eðli málsins sam-
kvæmt. Við höfum
verið að ræða við fólk
til að koma að verkefn-
inu.“
Ásgeir Kol-
beinsson hefur
þegar verið ráð-
inn útvarps-
stjóri FM 957 í
staðar Þrastar
3000 sem var
sagt upp störf-
um. Auk þess er
Steinn Kári
Ragnarsson hætt-
ur sem dagskrár-
stjóri Popptvíví.
Sigmar Vilhjálmsson, úr Idol,
leysti hann af tímabundið þar til
Árni Þór kom til starfa. ■
Tvær nýjar stöðvar í undirbúningi
Talsetning á íslensku útgáfunni af
Latabæ stendur nú yfir en áætlað
er að frumsýna þættina í Sjónvarp-
inu í haust. Búið er að ráða í öll
hlutverk nema eitt, hlutverk Nenna
níska.
Eins og kunnugt er voru sjón-
varpsþættirnir um Latabæ teknir
upp á ensku fyrir bandarísku sjón-
varpsstöðina Nickelodeon. Fyrir
vikið þarf að talsetja þættina á ís-
lensku og hafa leikarar sem flestir
hafa áður komið að gerð Latabæjar
verið ráðnir í verkið. Stefán Karl
Stefánsson og Magnús Scheving
verða á sínum stað sem Glanni
glæpur og Íþróttaálfurinn. Magnús
Ólafsson les rödd bæjarstjórans en
hann lék það hlutverk þegar Lati-
bær var fyrst settur upp í Loftkast-
alanum. Rúnar Freyr Gíslason,
sem tók þátt í sýningunni Glanni
glæpur í Þjóðleikhúsinu, les fyrir
Gogga mega og Guðmundur Þór
Kárason brúðugerðarmaður leikur
Sigga sæta. Guðmundur Þór stjórn-
aði og las einnig fyrir Sigga sæta í
ensku útgáfunni af sjónvarpsþátt-
unum. Ólöf Kristín Þorsteinsdótt-
ir, tólf ára stúlka, fær síðan það
vandasama hlutverk að lesa fyrir
Sollu stirðu. Hún kemur þar með til
að leysa af hólmi Juliönnu R.
Mauriello sem leikur Sollu stirðu,
eða Stephanie, í ensku útgáfunni.
„Við erum byrjuð að lesa og það
gengur bara nokkuð vel,“ segir Sig-
urður Sigurjónsson sem mun leik-
stýra talsetningunni. „Við erum
ekki búin að finna Nenna níska, en
það er allt að smella og upptökur
hófust fyrir nokkru síðan. Við
erum að vísu í fríi í dag en tökum
lestrartörn um eða eftir helgi.“
Latabæjarævintýri Magnúsar
Scheving hefur gengið eins og í
sögu frá því að samningar tókust
við Nickelodeon. Þættirnir hafa
verið seldir út um allan heim, til
dæmis til Þýskalands og Suður-
Ameríku. Þættirnir verða sem fyrr
segir frumsýndir í Sjónvarpinu í
haust. kristján@frettabladid.is
LATIBÆR: FRUMSÝNDUR Í SJÓNVARPINU Í HAUST
Talsetning á Latabæ hafin
......fá hugmyndasmiðirnir Fjóla
Jóhannesdóttir og Arngrímur
Einarsson, sem bjuggu til Barna-
gæluna, barnavagn sem ruggar
við barnsgrát og sendir smáskila-
boð til foreldra ef ruggið nær
ekki að róa barnið.
HRÓSIÐ
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Sexí, taktfastir, töff tónar, Top Shop og Lundúnir
BÆJARSTJÓRINN Magnús Ólafsson fær
aftur tækifæri til að túlka bæjarstjórann í
Latabæ.
ÍÞRÓTTAÁLFURINN Magnús Scheving verður á sínum stað og les fyrir Íþróttaálfinn í íslensku útgáfunni af Latabæ.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Lárétt:1fúll,5ara,6ve,7ra,8eir, 9
berð,10na,12eða,13gró, 15il,16
ugga,18nagg.
Lóðrétt:1farangur, 2úra,3la,4ferða-
lag,6virði,8eee,11arg,14ógn,17aa.
ÁRNI ÞÓR VIGFÚSSON Árni mun
hafa yfirumsjón með nýju sjónvarps-
stöðvunum.