Fréttablaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 68
40 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR
VEITINGASTAÐURINN
Á NÆSTU GRÖSUM
LAUGAVEGI 20B, 101 REYKJAVÍK
Svanbjörg Helena Jónsdóttir hef-
ur sett heilbrigðan lífsstíl ofar öllu
og finnst fátt skemmtilegra en að
matbúa. Hún er mikill sælkeri og
getur gleymt sér tímunum saman í
eldhúsinu enda er hún mikill dúll-
ari í sér. Þegar vel liggur á henni á
hún það til að búa til sitt eigið
pasta og svo er hún líka æði góð í
því að búa til konfekt úr fíkjum og
döðlum. Svanbjörg er einkaþjálf-
ari og starfar á sölu-og markaðs-
sviði Icelandair. Í frístundum
hleypur hún mikið og reynir að
fara hinn gullna meðalveg þegar
kemur að mataræði. Hún notar
gjarnan 80/20 regluna en hún
gengur út á að borða hollan mat í
80% tilfella með 20% af svindli.
Aðspurð um hvað hún þurfi að
eiga í eldhúsinu til að geta búið til
ljúffenga máltíð nefnir hún
parmesan ost, furuhnetur, kota-
sælu og góðar ólífuolíur.
„Balsamik edikið er líka nauð-
synlegt ásamt spínati, eggjum og
hveiti. Ef hugmyndaflugið er
virkt eru möguleikarnir óþrjót-
andi. Með þessu hráefni má gera
heimatilbúið pasta frá grunni með
spínatfyllingu,“ segir Svanbjörg
en henni finnst mjög skemmtilegt
að búa til ferskt og fyllt pasta.
Mataráhugi hennar kviknaði þeg-
ar hún flutti að heiman um tví-
tugt. Þá fór hún að grúska í mat-
reiðslubókum en hún hefur einnig
fengið mikið af góðum matarhug-
myndum hjá föður sínum og Eddu
konu hans. „Þau eru miklir mat-
gæðingar og mjög góðir kokkar
bæði tvö. Ég fæ stöðugt nýjar
hugmyndir þegar ég borða hjá
þeim og hafa þau haft mikil áhrif
á mína matargerð.“ Í kryddskápn-
um hennar Svanbjargar er að
finna karrý, tandori, cumin, kórí-
ander, gróft salt og nýmalaðan
svartan pipar. Hún segist líka
vera svag fyrir ferskum krydd-
jurtum. Eins og sést á krydd-
skápnum á indverskur matur upp
á pallborðið hjá henni ásamt
baunaréttum af ýmsu tagi. Þegar
hún fer út að borða finnst henni
skemmtilegast að fara á LaPrima-
vera, Austur Indíafélagið eða Ban
Thai. Þar sem sumarið er á næsta
leiti ætlar Svanbjörg að gefa les-
endum uppskrift að einföldum
sumarkjúklingi sem allir ættu að
geta matreitt.
HEILL KJÚKLINGUR
1 1/2 sítróna
5 msk ferskt timian (auk nokk-
urra timian stöngla til að setja
inn í kjúklinginn)
4 hvítlauksrif
2 tsk Maldon salt
2 tsk ferskur grófmulinn pipar
Byrjið á því að hita ofninn í
180˚-200˚ og hreinsið timian af
stönglinum. Kreistið safann úr
heilli sítrónu í skál og setjið timi-
an og pressaðan hvítlauk út í.
Stingið kjúklinginn vel og vand-
lega með gaffli til að hleypa
kryddinu að kjötinu og nuddið
kjúklinginn vel upp úr kryddleg-
inu og stráið saltinu og piparnum
yfir. Setjið 1/2 sítrónu (þvoið
börkinn vel) og nokkra timian-
stöngla inn í kjúklinginn og lokið
fyrir með tannstönglum. Leyfið
kjúklingnum að marinerast í
u.þ.b. 2-3 klst, eftir það er hann
bakaður í 1 klukkustund. Gott er
að hella soðinu af kjúklingnum í
skál og bera fram með kjúklingn-
um.
KARTÖFLURÉTTUR
8 kartöflur
250-300 gr kotasæla
200 gr Sharwoods Bengal spice
Mango Chutney (u.þ.b. 1/2 krús)
2 msk olía
Salt og pipar
Sjóðið kartöflur og skerið í
grófa teninga. Hitið olíu á pönnu
og léttsteikið kartöflurnar og bæt-
ið salt og pipar útí eftir smekk.
Hrærið kotasælu og Mango Chut-
ney saman. Bætið kartöflum útí
og setjið í eldfast mót. Setjið inn í
ofn í 20-30 mín á 180˚-200˚ hita.
Gott er að hafa ferskt salat
með kjúklingnum.
Get gleymt mér tímunum
saman í eldhúsinu
Svanbjörg Helena Jónsdóttir lumar á gómsætri uppskrift af sumarkjúklingi
Matgæðingurinn Svanbjörg Helena Jónsdóttir reynir að hafa hollustuna í fyrsta sæti.
Aðeins 599 kr.
5 690691 2000
08
16. tbl. 67. árg., 27. ap
ríl 2005.
Lífsreynslusaga • Heil
sa • • Matu
r • Krossgáturg•á~t
Persónuleikaprófið
Fjögur börn
rúmlega tvítug
Anna Þorvaldsdótti
r glímir við
ófrjósemi og er ein
þeirra sem
þurfa að fara í tækn
ifrjóvgun
Hjálp!
Mig vantar egg
Það sem þú
vissir ekki ...
Selma
Björnsdóttir
Eignuðust tvo
syni með sjö
mánaða millibili
Fyrsta barn
45 ára
Sjúk í tómata
á meðgöngu?
- eða eitthvað
annað?
Fjörugur
mömmu-
klúbbur
Flott
föt á
ung-
barnið!
Aðeins
599 kr.
00 Vikan16.
tbl.'05-1
14.4.2005
18:04 Page
1
Náðu í eintak á næsta sölustað
ý og fersk í hve
rri viku
Hvaða matar gætir þú síst verið
án? Ég gæti ekki lifað án indversks
matar og heldur ekki án fisks. Sérstak-
lega fisksins sem mamma matreiðir,
hún er sérlega góður kokkur.
Er einhver matur sem þér finnst
vondur? Já, þó ég sé hrifinn af fiski
hefur mér aldrei líkað við sushi. Ég er
heldur ekki mikið fyrir villibráð og
borða alls ekki lifur eða neitt slíkt.
Fyrsta minningin um mat? Ætli
það hafi ekki verið á jólunum 1983
eða ‘84 þegar ég var að leika mér
með brúnu sósuna sem var með
kalkúninum. Ég var búinn að klína sós-
unni upp um alla veggi því ég var svo
spenntur að opna pakkana. Mig minn-
ir að ég hafi fengið einhverja kalla og
bíla í jólagjöf.
Besta máltíð sem þú hefur feng-
ið? Þær eru margar. Eina af þeim
bestu fékk ég á dögunum í Los Angel-
es á staðnum Rainbow en það er
gamall og frægur rokkstaður. Hann er
veitingastaður á daginn og kvöldin en
á nóttunni breytist hann í bar. Ég
fékk mér steikarsamloku sem
var mjög góð. Það var líka
skemmtilegt að borða þarna
því stemmningin var svo góð
og ég var í góðum félagsskap.
Leyndarmál úr eld-
hússkápnum? Náttúr-
lega alls konar krydd
eins og Season All og
sjávarsalt. Svo finnst
mér alltaf jafn gott að
fá mér Ritz-kex með
rækjusalati.
Hvað borðar þú
þegar þú þarft að
láta þér líða betur?
Það er gott að borða sterk-
an mat þegar maður er
þunnur, allt frá taílenskum yfir
í indverskan. Svo er mexíkóskur matur
alltaf jafn góður ásamt ítölskum.
Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Ég
á alltaf til mjólk því ég er alger
mjólkurkarl. Stundum er líka til
appelsín.
Ef þú yrðir fastur á eyðieyju,
hvaða rétt myndir þú
taka með þér? Ég myndi
taka með mér tikka ma-
sala kjúkling, kryddkar-
tölfur og nanbrauð.
Hvað er það
skrýtnasta sem þú
hefur borðað? Ég
borðaði einu sinni
kanínu á Ítalíu. Ég
man að hún bragðað-
ist alveg eins og
kjúklingur svo ég hef lát-
ið það nægja eftir það að
borða bara kjúkling.
MATGÆÐINGURINN KRUMMI Í MÍNUS
Hvernig er stemmningin? Veit-
ingastaðurinn Á næstu grösum er
einn af elstu grænmetisveitinga-
stöðum borgarinnar. Innréttingarnar
eru hlýlegar með skandinavísku
yfirbragði. Staðurinn laðar að sér
breiðan hóp fólks á öllum aldri. Það
er létt yfir staðnum og er alltaf jafn
gaman að koma þangað hvort sem
hann er heimsóttur í hádeginu eða
á kvöldin. Á næstu grösum er vin-
sæll hjá hópum því auðvelt er að
setja saman borð og láta fara vel
um alla. Einnig er gaman að fara
þangað í síðdegiskaffi því staðurinn
býður upp á heimsins bestu kökur.
Matseðillinn: Hráefni úr jurtarík-
inu er allsráðandi Á næstu grösum
þótt££ staðurinn sé ekki beinlínis
heilsustaður. Þeir sem eru hrifnir af
grænmetisbuffum, lasagna og ind-
verskum mat ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi, en boðið er
upp á indverskan mat allar helgar.
Á matseðlinum eru líka heimsins
bestu kökur og er franska
súkkulaðikakan orðin fræg um víð-
an völl.
Vinsælast: Þar sem réttir dagsins
eru breytilegir frá degi til dags er
erfitt að henda reiður á hvaða réttir
eru vinsælastir. Réttur dagsins
hverju sinni er yfirleitt mest tekinn.
Réttur dagsins: Boðið er upp á
rétti dagsins, sem eru misjafnir frá
degi til dags. Um er að ræða bæði
grænmetisrétti og súpur.
YELLOW TAIL:
Ástralska undravínið
Enginn vínframleiðandi í Ástralíu hefur náð eins
góðum árangri á jafn skömmum tíma og Yellow Tail
en vínið kom fyrst á markað 2001. Í dag er Yellow
Tail vinsælasti ástralski framleiðandinn í Bandaríkj-
unum. Ekkert vín selst eins mikið í 750 ml flöskum í
Bandaríkjunum og Yellow Tail Shiraz. Sama er að
gerast hér á landi. Yellow Tail Shiraz er að verða vin-
sælasta ástralska vínið þrátt fyrir að hafa aðeins
verið á markaðnum í skamman tíma.Yellow Tail fæst
í fimm mismunandi útgáfum og er vert að prófa þær
allar.
Yellow Tail Shiraz, Cabernet/Shiraz, Merlot og Cabernet eru
á kynningarverði á 1.190 kr. og Chardonnay á aðeins 1.070 kr.
Heimsins besta súkkulaðikaka
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
:
G
VA
Sterkur matur bestur við þynnku