Fréttablaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 58
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
25 26 27 28 29 30 1
Fimmtudagur
APRÍL
■ ■ LEIKIR
19.00 Breiðablik og FH mætast í
Egilshöll í átta liða úrslitum deildarbikars
karla í fótbolta.
19.00 ÍA og Keflavík mætast á
Akranesvelli í átta liða úrslitum
deildarbikars karla í fótbolta.
19.40 Haukar og ÍBV mætast á
Ásvöllum í lokaúrslitum DHL-deildar
kvenna í handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn.
07.30 Olíssport á Sýn.
08.00 Olíssport á Sýn.
08.30 Olíssport á Sýn.
16.45 Handboltakvöld á RÚV.
17.15 Olíssport á Sýn. Endurtekinn
þáttur.
19.00 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn.
19.30 Sterkasti maður heims á
Sýn.
19.35 DHL-deildin í handbolta á
RÚV. Bein útsending frá leik Hauka og
ÍBV sem mætast í lokaúrslitum DHL-
deildar kvenna í handbolta.
20.30 Þú ert í beinni! á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
00.15 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn. Endurtekinn þáttur.
Engar glufur á vörn Liverpool
30 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR
> Við furðum okkur á ...
... samskiptunum hjá æðstu mönnum
Stoke City. Með því að endurráða Tony
Pulis sem stjóra liðsins var stjórn
félagsins að starfa í óþökk
stjórnar Stoke Holding, og
það var fyrst og fremst
vegna endurráðningar
Pulis sem Magnús
Kristinsson ákvað að
hætta að setja
pening í Stoke.
sport@frettabladid.is
> Við hrósum ...
... knattspyrnuliði Þróttar sem gerði sér
lítið fyrir og lagði Valsmenn í 8-liða
úrslitum deildabikars karla í
fyrrakvöld. Willum Þór
Þórsson og lærisveinar
hans hjá Val höfðu borið
sigur úr býtum í öllum
mótum vetrarins en nú er
margra mánaða samfelld
sigurganga á enda.
Heyrst hefur ...
... að þegar íslenska landsliðið í
knattspyrnu ferðist til fjarlægra landa
sitji tveir menn á fyrsta farrými, þeir
Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og
fyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen.
Aðrir sem að liðinu koma þurfa að
sætta sig við að sitja á almennu
farrými - líkt og sauðsvartur
almúgurinn.
Landsliðsmaðurinn Hannes Sigurðsson, leikmaður Viking,
hefur verið mikið í fréttum í Noregi í vikunni. Ástæðan er sú
að viðskiptum hans og Frode Kippe, leikmanns Lilleström,
um síðustu helgi lauk með miklum látum þegar olnbogi
Hannesar endaði í andliti Kippe sem kjálka- og tvíkinn-
beinsbrotnaði. Menn í Noregi hafa skipst í tvær fylking-
ar um hvort olnbogaskot Hannesar hafi verið viljandi
eða óviljandi. Hannes sagðist í samtali við Frétta-
blaðið í gær hafa hreinan skjöld í málinu.
„Maður er mjög vinsæll þessa dagana,“ sagði
Hannes léttur á því. „Ég skil samt ekki af hverju
menn eru að gera svona mikið mál úr þessu.
Menn lyfta olnbogum hér í öllum leikjum og ein-
vígjum. Okkar einvígi var ekkert öðruvísi að öðru
leyti en því að hann slasaðist illa en það var al-
gjör óheppni. Þetta var alls ekki viljandi. Ég vissi
ekki einu sinni hvar hann var þegar ég fer
upp í boltann.“
Atvikið átti sér stað þegar hálftími var eftir
af leiknum en mikið hafði gengið á hjá Hannesi og
Kippe fyrsta klukkutíma leiksins. „Ég fékk heilahristing
þökk sé honum fyrr í leiknum þegar hann keyrði oln-
bogann í hnakkann á mér. Ég fékk líka skurð í því ein-
vígi,“ sagði Hannes sem er ekki enn farinn að æfa
á ný. Hann hefur verið með höfuðverk út af
heilahristingnum og læknirinn vill að hann
hvíli fram að helgi. Hannes var tekinn af velli í
kjölfarið enda hljóp mikill hiti í leikmenn
þegar þeir sáu blóðið á Kippe.
Hannes hefur mátt þola mikla gagnrýni á
köflum og til að mynda vill Bard Borger-
sen, miðvörður Start, fá Hannes í tveggja
ára bann en hann þarf einmitt að
stöðva Hannes um helgina þegar
Viking mætir Start. „Hann á fram-
tíð fyrir sér sem skemmtikraftur
þegar ferlinum lýkur,“ sagði
Hannes léttur en hann lætur
hasarinn ekki koma sér úr jafnvægi.
Markalaust jafntefli var niðurstaðan í fyrri leik Chelsea og Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildar-
innar sem fram fór í gærkvöldi. Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn fyrir Chelsea.
LANDSLIÐSMAÐURINN HANNES SIGURÐSSON: UMDEILDUR EFTIR ÖFLUGT OLNBOGASKOT
Kjálkabrotið var algjört óviljaverk
FÓTBOLTI Leikurinn, sem fram fór á
Stamford Bridge, var langt frá
því að standa undir þeim vænting-
um sem gerðar voru til hans og
voru opin marktækifæri af skorn-
um skammti. „Við vörðumst
gríðarlega vel í kvöld en við
fögnum ekki. Það er aðeins
hálfleikur,“ sagði Steven Gerrard,
fyrirliði Liverpool, eftir leikinn.
Írski vængmaðurinn Damien
Duff stóðst ekki læknisskoðun
rétt fyrir leik og kom það því í
hlut Eiðs Smára Guðjohnsen að
leysa hann af á vinstri vængnum.
Með því sýndi Eiður Smári þar
með enn frekar fjölhæfni sína
sem leikmaður þó svo að hann
hafi dregið sig reyndar talsvert
niður á miðjan völlinn á köflum í
gær til að hjálpa til við að dreifa
spilinu, rétt eins og hann hefur
verið að gera með svo góðum ár-
angri í síðustu leikjum Chelsea.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea,
treysti Arjen Robben ekki til að
hefja leikinn og því sat hann á
bekknum þar til á upphafsmínút-
um síðari hálfleiks. Liverpool
stillti upp í leikkerfið 4-5-1 með
Gerrard í tiltölulega frjálsu hlut-
verki fremst á miðjunni fyrir aft-
an Milan Baros sem var einn í
framlínunni.
Eiður Smári komst nálægt því
að skora strax á 13. mínútu en þá
var hann rétt við að ná til boltans
eftir misheppnað skot Didier
Drogba. Fimm mínútum síðar
komst John Arne Riise í dauða-
færi en Peter Cech í marki Chel-
sea varði opið skot hans mjög vel.
Á 22. mínútu leit besta færi leiks-
ins dagsins ljós en þá skaut Frank
Lampard yfir á einhvern ótrúleg-
an hátt af tveggja metra færi.
Ekki frekar en þeir rúmlega 40
þúsund áhorfendur sem lögðu leið
sína á Brúna trúði enski landsliðs-
maðurinn sínum eigin augum.
„Ég tek það klúður á mig, ég
veit ekki hvernig ég fór að því að
brenna af þessu færi. En við
héldum hreinu og það var
mikilvægt,“ sagði Lampard eftir
leikinn
Chelsea var ávallt með frum-
kvæðið í leiknum og mun meira
með boltann en leikmenn Liver-
pool vörðust fimlega auk þess að
beita vel skipulögðum skyndi-
sóknum. Það var úr einni slíkri
sem Cech sýndi af hverju hann er
óumdeilanlega talinn besti mark-
vörður heims. Þá varði hann
skalla Baros sem stefndi í sam-
skeytin á stórbrotin hátt.
„Við á bekknum héldum að
þetta væri mark. Ég trúði því
varla þegar ég sá hann verja
skallann,“ sagði Rafael Benitez,
stjóri Liverpool í leikslok.
Í síðari hálfleik bökkuðu leik-
menn Liverpool enn frekar og
gáfu Chelsea leyfi til að dútla
með boltann á sínum vallarhelm-
ingi. En um leið og Eiður Smári
og félagar komust í nánd við víta-
teig Liverpool var eins og þeir
rækjust á múr, svo öflugur var
varnarleikur Liverpool. Á 59.
mínútu kom Robben inn á og
héldu margir að hann væri mað-
urinn til að leysa upp vörn Liver-
pool. Svo reyndist ekki vera og
það var alveg sama hvað leik-
menn Chelsea reyndu – aldrei
fundu þeir glufur á firnasterkri
vörn Liverpool þar sem hinn
magnaði Jamie Carragher var
fremstur meðal jafninga.
vignir@frettabladid.is
FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI!
Sólbakka 8
310 Borgarnesi
Miðási 23
700 Egilsstöðum
Víkurbraut 4
780 Höfn
Gagnheiði 13
800 Selfossi
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
Skeifunni 3c
108 Reykjavík
Viðarhöfða 6
110 Reykjavík
Melabraut 24
220 Hafnarfirði
Iðavöllum 8
230 Keflavík
Flugumýri 16
270 Mosfellsbæ
Smiðjuvegur 6
200 Kópavogi
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
LEIKIR GÆRDAGSINS
Meistaradeild Evrópu
CHELSEA–LIVERPOOL 0–0
Enska úrvalsdeildin
NEWCASTLE–MIDDLESBROUGH 0–0
ÓTRÚLEGT KLÚÐUR Hér sést þegar
Frank Lampard brennir af besta færi
leiksins í gær. Boltinn barst til Lampards
þar sem hann stóð á markteig en á
einhvern ótrúlegan hátt náði Lampard
að skjóta boltanum yfir markið.