Fréttablaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 70
> Plata vikunnar ...
OUT HUD:
Let Us Never Speak of
It Again
„Elektróník fyrir
þenkjandi fólk
sem veit ekkert
betra í heiminum en að tapa sér
í dansi.“ BÖS
42 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Coldplay: Speed of Sound, Hal: Hal, Velvet
Revolver: Contraband, British Sea Power: Open
Season, Stereophonics: Language, Sex, Violence,
Other?, Oasis: Don’t Believe the Truth.
>
C
ol
dp
la
y
>
Velvet Revolver
Tónlistarmaðurinn Mugison, sem gaf út eina af
bestu plötum síðasta árs, Mugimama is this Mon-
keymusic?, hóf tónleikaferð sína um Evrópu í Wa-
les í fyrrakvöld.
Í kvöld spilar hann á The Windmill í
London en fer síðan til Skotlands
þar sem hann heldur þrenna tón-
leika. Í byrjun maí er ferðinni
svo heitið til Noregs og Sví-
þjóðar en þar hitar Mugison
upp fyrir bresku hljómsveitina Out
Hud sem hefur vakið nokkra athygli
upp á síðkastið. Eftir það fer hann til
Þýskalands þar sem hann heldur
tvenna tónleika, því næst til Belgíu og
ferðinni lýkur síðan í París þann ní-
unda maí.
Í spjalli við Fréttablaðið sagðist Mugi-
son hlakka mikið til tónleikaferðarinn-
ar. Flestir staðirnir sem hann spilar á
eru á stærð við Grand rokk hérna
heima og vonaðist hann eftir því að
sem flestir myndu láta sjá sig. Auk
þess að halda tónleika flest öll
kvöldin í ferðinni mun hann spila
eitthvað í útvarpi og því bjóst
hann við nokkuð stífri dagskrá.
Mugison verður á ferð og
flugi í sumar því hann
ætlar einnig í tónleika-
ferð um Vestfirði 23. til
26. júní ásamt fleiri
tónlistarmönnum og
skömmu síðar heldur
hann í víking til Dan-
merkur til að spila á
Hróarskelduhátíðinni
víðfrægu sem verður
haldin dagana 30. júní
til 3. júlí.
Bandaríska þungarokksveitin Megadeth heldur tón-
leika hér á landi þann 27. júní næstkomandi. Þetta
kemur fram á heimasíðu sveitarinnar og verða tón-
leikarnir að öllum líkindum í Kaplakrika.
Tónleikarnir eru hluti af Blackmail the Universe tón-
leikaferðinni sem hófst í Bandaríkjunum í október í
fyrra. Evróputúr Megadeth hefst 3. júní og verða tón-
leikarnir á Íslandi þeir síðustu í þeirri reisu. Sveitin er
að fylgja eftir sinni tíundu hljóðversplötu,
The System Has Failed, sem kom út á síð-
asta ári og fékk góðar viðtökur.
Megadeth var stofnuð árið 1983 af for-
sprakkanum Dave Mustaine, David Ellef-
son, Kerry King og Lee Rausch. Mustaine
hafði ári áður verið rekinn úr rokksveitinni
Metallica, sem hélt einmitt eftirminnilega
tónleika í Egilshöll síðasta sumar.
Liðsskipan Megadeth hefur breyst mikið í
gegnum tíðina og núna er Mustaine eini
upprunalegi meðlimurinn í sveitinni. Þeir
sem nú starfa með honum eru Glen
Drover, James MacDonough og Shawn
Drover.
Þungarokksveitin Megadeth til Íslands
MEGADETH Þungarokksveitin Megadeth, sem
var stofnuð fyrir 22 árum, heldur tónleika hér
á landi 27. júní.
Mugison á ferð og flugi
> Popptextinn ...
„If I had your love
I could live my dream
Flying high above
Everything.“
- Selma flögrar um á ástarskýi í
Eurovision-laginu If I Had Your
Love. Smáskífa með laginu
kemur út í næstu viku.
SYSTEM OF A DOWN Rokksveitin öfl-
uga heldur toppsæti X-Dómínóslistans
þrátt fyrir harða atlögu nýrra laga.
[ X-Dominoslistinn ]
TOPP 10 LISTI X-FM - 27. APRÍL
SYSTEM OF A DOWN
B.Y.O.B
WEEZER
Beverly Hills
WHITE STRIPES
Blue Orchid
COLDPLAY
Speed of Sound
AUDIOSLAVE
Be Yourself
NINE INCH NAILS
The Hand That Feeds
KASABIAN
l.S.F
INTERPOL
C’mere
OASIS
Lyla
MODEST MOUSE
The World at Large
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Michael Bublé: It’s Time
„Bublé vill verða næsti Frank Sinatra. Hann er
góður söngvari en of mikil eftirherma til að hægt
sé að setja hann á háan stall.“
FB
The Bravery: The Bravery
„The Bravery er líklegast hljómsveit sem þú átt
annaðhvort eftir að elska eða hata. Frumraun
þeirra er vandað sykurhúðað bílskúrsrokk sem
ætti að koma rokkáhugamönnum í gott skap,
a.m.k. að fá þá til að brosa.“
BÖS
Moby: Hotel
„Moby gefur út enn eina plötuna, og hverjum er
ekki sama? Merkilega sálarlaust, ódýrt og óáhuga-
vert. Tími Moby er liðinn.“
BÖS
[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
Fjölmargar athyglis-
verðar íslenskar plötur
verða gefnar út í sumar.
Freyr Bjarnason stiklaði
á stóru yfir það helsta
sem er á leiðinni.
Fjölmargar athyglisverðar ís-
lenskar plötur koma út í sumar. Þó
svo að eftirfarandi upptalning sé
ekki tæmandi gefur hún góða
mynd af því sem er í vændum fyr-
ir tónlistarunnendur.
Idol-keppendur með nýjar plötur
Af því sem er framundan hjá
Senu, sem áður hét Skífan, ber
fyrst að nefna smáskífu með
Eurovision-lagi Selmu, If I Had
Your Love, sem kemur út í byrjun
næstu viku. Þar er um að ræða
fína upphitun fyrir keppnina
sjálfa sem verður haldin í Kíev
dagana 19. til 21. maí.
Þann 5. maí kemur síðan út
fyrsta plata sigurvegara Idol-
keppninnar, Hildar Völu. Verður
hún samnefnd söngkonunni, eins
og svo oft er gert þegar nýir lista-
menn eru kynntir til sögunnar.
Davíð Smári, sem einnig sló í gegn
í Idol, gefur út sína fyrstu plötu um
miðjan júní en gripurinn hefur enn
ekki fengið nafn. Annar ungur og
efnilegur piltur, trúbadorinn Helgi
Valur Ásgeirsson, gefur að auki út
frumburð sinn 30. maí sem ber
heitið The Demise of Faith.
Ísbjarnarblús 25 ára
Þrjár af frægustu plötum ís-
lenskrar dægurtónlistar verða end-
urútgefnar hjá Senu. Ísbjarnar-
blús, frumburður Bubba Morthens,
verður 25 ára 17. júní og af því til-
efni verður gefin út viðhafnarút-
gáfa af plötunni með hvorki meira
né minna en tólf aukalögum. Voru
þau öll tekin upp áður en platan
kom út. Meðal annars eru þarna
tónleikaupptökur af þeim lögum
sem eru á plötunni og hljóðverslög
sem ekki komust þar inn á sínum
tíma. Eitt til tvö þessara tólf laga
hafa ekki verið gefin út áður.
Á þjóðhátíðardaginn verða
einnig liðin 30 ár síðan Sumar á
Sýrlandi með Stuðmönnum kom
út. Af því tilefni verður platan
endurútgefin með nokkrum auka-
lögum. Verður þar um að ræða
nýjar upptökur Stuðmanna af
þeim lögum sem fyrir eru á þess-
ari sígildu plötu. Í júlí kemur síð-
an út endurútgáfa af Bubbaplöt-
unni Konu, en þá verða 20 ár liðin
frá útgáfu hennar. Á plötunni
verða þrjú til fjögur aukalög, þar
af tvö óútgefin.
Í sama mánuði koma út safn-
plöturnar Íslandslög 7, Pottþétt 38
og Svona er sumarið. Ekki má
heldur gleyma safnplötunni
Svona er Eurovision sem kemur
út í maí en þar verður að mestu að
finna erlenda slagara.
Björk og Gargandi snilld
Smekkleysa gefur á mánudag
út nýja plötu frá Björk, með end-
urhljóðblönduðum útgáfum tón-
listarmanna á lagi hennar Army
of Me. Á meðal þeirra sem koma
við sögu er Dr. Gunni sem setur
lagið í raftónlistarbúning sem
verður að teljast óvenjulegt af
hans hálfu. Síðar í mánuðinum
stendur svo til að gefa út plötu
með tónlist við kvikmynd Ara Al-
exander, Gargandi snilld, sem
fjallar um íslenskt tónlistarlíf.
Um mitt sumar gefur Smekkleysa
síðan út aðra plötu rokksveitar-
innnar Kimono, en sú fyrsta hét
Mineur-aggressif og vakti tölu-
verða athygli. Í seinni hluta júlí er
að auki væntanleg ný plata frá
hljómsveitinni Dr. Spock.
Önnur plata Þóris
Fjórar plötur verða gefnar út á
vegum 12 tóna í sumar. Kán-
trípoppsveitin Hudson Wayne gef-
ur út plötu eftir um það bil þrjár
vikur og Stórsveit Nix Noltes er
væntanleg með sína fyrstu plötu í
fyrri hluta júlí. Sú sveit spilar að
mestu þjóðlög frá Búlgaríu í sín-
um eigin útsetningum. Trúbador-
inn Þórir kemur með nýja plötu í
ágúst eða september en upptökum
á henni er að ljúka. Þórir gaf út
eina af bestu plötum síðasta árs og
því verður spennandi að sjá
hvernig hann fylgir henni eftir.
Einnig munu 12 tónar dreifa
fyrstu EP-plötu rokksveitarinnar
Hölt hóra í sumar.
Nýtt frá Leaves og Hot Damn!
Af fleiri áhugaverðum plötum
sem eru væntanlegar er önnur
plata Leaves, The Angela Test,
sem kemur út 30. maí á vegum Is-
land/Universal útgáfufyrirtækis-
ins. Fyrsta plata dúettsins Hot
Damn!, The Big n’ Nasty Groove
O’ Mutha, er svo væntanleg 11.
maí, en lög af plötunni hafa náð
töluverðri spilun í útvarpi upp á
síðkastið. Hafnfirska rokksveitin
Úlpa gefur síðan út sína aðra
plötu, Attempted Flight By
Winged, síðla sumars. ■
Svona verður tónlistarsumarið
HILDUR VALA Idol-stjarnan gefur út sína fyrstu plötu 5. maí.
BUBBI Rokkkóngurinn fylgir í fótspor Idol-
krakkanna og sendir frá sér tvær athyglis-
verðar endurútgáfur.