Fréttablaðið - 04.05.2005, Page 2
2 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
FÉLAGSMÁL Borgarafundur um of-
beldi og fíkniefnavandann í ís-
lensku samfélagi var haldinn í
Ketilhúsinu á Akureyri í gær. Um
70 manns sátu fundinn og var al-
menn samstaða um að halda
áfram því starfi sem hófst á Ak-
ureyri með þögulli mótmæla-
stöðu gegn ofbeldi síðastliðinn
föstudag þar sem um eitt þúsund
Akureyringar gáfu ofbeldinu
rauða spjaldið. Stofnaður hefur
verið sérstakur félagsskapur á
Akureyri sem nefnist Hingað en
ekki lengra en hópurinn er skip-
aður ungu fólki og foreldrum
grunnskólanemenda á Akureyri.
Markmið hópsins er að spyrna
við fótum gegn ofbeldi og fíkni-
efnanotkun og er öllum velkomið
að leggja hópnum lið.
Í máli fundarmanna Í Ketilhús-
inu í gær kom fram sterkur vilji
til að berjast gegn ofbeldi og
vímuefnanotkun og töldu margir
fundarmenn þörf á að koma á fót
meðferðarstofnun á Akureyri fyr-
ir ungt fólk sem ætti við áfengis-
og vímuefnavanda að stríða.
Klukkan 17 á föstudaginn verð-
ur efnt til þögullar mótmælastöðu
á Ingólfstorgi í Reykjavík þar
sem ofbeldinu verður sýnt rauða
spjaldið eins og gert var á Akur-
eyri.
-kk
HEILBRIGÐISMÁL Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, kveðst fagna því
að heilbrigðisráðherra ætli að
láta athuga nánar hvort mikil
notkun Ritalins og skyldra lyfja
við ofvirkni og athyglisbresti
barna tengist á einhvern hátt of-
lækningum. Hún spurði ráðherr-
ann meðal annars hvort eðlilegt
þætti að á annað þúsund barna
upp að 14 ára aldri tækju þessi lyf
að staðaldri.
Sigurður Guðmundsson land-
læknir segir að þótt notkun Rital-
ins og skyldra lyfja sé meiri hér
en í nágrannalöndunum hafi notk-
unin aukist einnig þar og vísbend-
ingar séu um að farið sé að draga
úr aukningunni hérlendis. Ásta
Ragnheiður segir að þótt lyfin
geri gagn hafi foreldrar bundist
samtökum um önnur úrræði eins
og sálfræðiþjónustu. „Slík þjón-
usta er hins vegar ekki greidd og
því er fremur gripið til lyfjameð-
ferðar,“ segir Ásta Ragnheiður.
Landlæknir tekur undir það að
bæta þurfi sálfræðiþjónustu í
skólum.
Ásta Ragnheiður segir að fyr-
irspurnin og svör heilbrigðisráð-
herra verði rædd nánar á Alþingi
fyrir þinglok, en þau eru fyrir-
huguð í næstu viku. -jh
RÍKISÚTVARPIÐ Starfsmannasamtök
Ríkisútvarpsins telja rangt að
kjósa stjórn og útvarpsstjóra Rík-
isútvarpsins árlega eins og gert
er ráð fyrir í frumvarpi mennta-
málaráðherra um stofnunina.
Þetta kemur fram í athugasemd-
um samtakanna sem lagðar hafa
verið fram í menntamálanefnd
Alþingis. „Þetta fyrirkomulag
leiðir til þess að erfitt verður að
marka ákveðna stefnu og setja
fyrirtækinu skýr framtíðarmark-
mið.“ Jafnframt segist stjórn
samtakanna ekki skilja hvað átt
sé við með því að ný stjórn RÚV
eigi að að gefa út reglur um
fréttaflutning og vill að ákvæði
þar um verði fellt niður. Loks
mótmæla Starfsmannasamtök
Ríkisútvarpsins áformum um að
fella niður biðlaunarétt starfs-
manna hafni þeir boði um starf á
sambærilegum kjörum ef gerðar
verða formbreytingar á rekstrin-
um. Starfsmenn geti neitað að
vinna hjá nýju félagi án skerðing-
ar á slíkum réttindum.
Jóhanna Margrét Einarsdóttir,
formaður Starfsmannasamtaka
Ríkisútvarpsins, segir að ekkert
liggi á að afgreiða frumvarpið á
yfirstandandi þingi enda sé rök-
rétt að afgreiða það í tengslum
við frekari umfjöllun um fjöl-
miðlaskýrsluna svonefndu og
boðað frumvarp um málefni fjöl-
miðla næsta haust.
Stjórn BSRB lýsir andstöðu
við frumvarp um Ríkisútvarpið
enda muni það að óbreyttu skerða
kjör og réttindi starfsmanna.
Stjórnin telur einboðið að upp rísi
mál sem nauðsynlegt verði að út-
kljá fyrir dómstólum. Ekki sé
gert ráð fyrir neinni aðkomu
starfsfólks að stjórnkerfi stofn-
unarinnar eins og verið hafi allar
götur frá byrjun níunda áratugar
síðustu aldar. BSRB lýsir furðu á
að engin tilraun hafi verið gerð til
að ræða við fulltrúa Starfsmanna-
samtaka Ríkisútvarpsins eða
BSRB um fyrirhugaðar breyting-
ar svo forða megi augljósum slys-
um. Stjórn BSRB telur frumvarp-
ið óviðunandi og hvetur ríkis-
stjórnina til þess að draga það til
baka.
johannh@frettabladid.is
Gengisþróun:
Krónan
veiktist
EFNAHAGSMÁL Gengi íslensku krón-
unnar veiktist um rúmt prósent
strax eftir að markaðir opnuðu í
gærmorgun. Er breytingin meðal
annars rakin til viðbragða við
óvæntum fréttum af því að fjár-
málaráðherra ætli að greiða hund-
rað milljóna dollara skammtímalán
umfram það sem áætlað var í maí.
Jafngildir það um 6,4 milljörðum
króna miðað við gengið í gær.
Samhliða þessu ákvað Hagstofa
Íslands að breyta útreikningi á
neysluverðsvísitölunni með þeim
afleiðingum að hún lækkar um
0,45% í maí. Þessi ákvörðun léttir
þrýstingi af Seðlabankanum við að
halda verðbólgu innan markmiða
bankans. -bg
FREKARI HÆKKANIR
Bensínlítrinn með þjónustu er kominn yfir
110 krónur hjá öllum félögunum.
Olíufélögin:
Hækka öll
eldsneytisverð
NEYTENDUR Verð á eldsneyti hækk-
aði í gær hjá Olís og Skeljungi og
hafa því allir söluaðilar eldsneytis
hér á landi hækkað verð sín að
undanförnu.
Bensínlítrinn kostar nú á flest-
um stöðum rúmlega 110 krónur
með þjónustu en um 105 í sjálfsaf-
greiðslu. Lággjaldastöðvarnar
bjóða allar lítra af 95 oktana bens-
íni á í kringum 104 krónur.
Ástæður hækkananna eru þær
sömu hjá öllum fyrirtækjunum.
Hækkandi heimsmarkaðsverð og
veiking íslensku krónunnar gagn-
vart dollaranum. Á heimasíðu
Olíufélagsins eru þó áfram
bundnar vonir um að verð muni
lækka á næstunni. -aöe
SPURNING DAGSINS
Andri, er ekki ódýrara að flytja
fólkið suður?
„Nei, það er betra að búa fyrir norðan
og allir geta fengið lóð sem vilja.“
Andri Teitsson er framkvæmdastjóri KEA sem vill
reiða fram hundruð milljóna króna til flutnings
ríkisstofnana til Akureyrar.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar:
Gagnrýnir
vegaáætlun
VEGAÁÆTLUN Bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar gerði í gær alvarlegar
athugasemdir við vegaáætlun
fyrir tímabilið 2005-2008. Í
ályktun bæjarstjórnar er bent á
að ekki renni til nýframkvæmda
á höfuðborgarsvæðinu nema
rétt um fimmtungur af framlög-
um ríkisins til vegafram-
kvæmda.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
tekur þar með undir sjónarmið
sem stjórnarþingmennirnir
Gunnar I. Birgisson og Kristinn
H. Gunnarsson lýstu á Alþingi
fyrir skemmstu.
-oá
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
OECD-FUNDI LÝKUR Í dag lýkur
árlegum fundi fjármálaráðherra
OECD-ríkjanna sem hófst í gær.
Fundinn situr Geir H. Haarde
fjármálaráðherra. Geir ræddi
góða reynslu af skipulagsbreyt-
ingum í smærri ríkjum Evrópu
og taldi reynsluna geta orðið öðr-
um Evrópuríkjum hvatning til að
takast á við uppsafnaðan vanda.
ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR:
„Sálfræðiþjónusta í skólum er ekki greidd.“
Notkun lyfja við ofvirkni og athyglisbresti:
Greiða ber fyrir sálfræðiþjónustu
■ ALÞJÓÐASTJÓRNMÁL
RÍKISÚTVARPIÐ EFSTALEITI
Erfitt að móta stefnu og setja fyrirtækinu skýr framtíðarmarkmið ef kjósa á stjórn og út-
varpsstjóra Ríkisútvarpsins árlega.
Óbreytt frumvarp
veldur málaferlum
Stjórnarfrumvarp um Ríkisútvarpið leiðir til réttindaskerðingar starfsmanna
og málaferla að mati stjórnar BSRB. Ekkert liggur á að afgreiða frumvarpið
segir formaður Starfsmannasamtaka RÚV.
BORGARAFUNDUR Í KETILHÚSINU
Í máli fundarmanna kom meðal annars
fram að þörf væri á að koma á fót með-
ferðarstofnun á Akureyri fyrir ungt fólk
sem ætti við áfengis- og vímuefnavanda
að etja.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
Borgarafundur á Akureyri um ofbeldi og vímuefni:
Meðferðarstofnunar þörf
Heydalur:
Bílvelta í
lausamöl
STYKKISHÓLMUR Ökumaður fólks-
bíls var fluttur á slysadeild í
Reykjavík eftir að bílaleigubíll
með fjórum ferðamönnum valt í
lausamöl í Heydal um fimmleyt-
ið í gær. Aðrir farþegar sluppu
með skrámur.
Lögreglan í Stykkishólmi
segir fólk á sveitabæjum í ná-
grenninu hafa verið afar hjálp-
samt og aðstoðað við björgunar-
störf. Allir farþegar voru í bíl-
beltum. Að sögn vaktlæknis á
slysadeild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi er líðan mannsins
eftir atvikum góð og útlit fyrir
að hann nái fullum bata.
-oá