Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 16
16 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Lítill skóli með stórt hjarta
Tjarnarskóli hélt upp á
tuttugu ára afmæli sitt á
föstudag. Róðurinn hefur
verið þungur fjárhags-
lega síðustu ár en bjart-
ari tímar eru framundan
fyrir einkarekna skóla.
Fyrir tuttugu árum stofnuðu
tvær bráðungar kennslukonur,
Margrét Theodórsdóttir og María
Sólveig Héðinsdóttir, einkaskóla
og nefndu hann eftir tjörninni
sem hann stendur við. „Okkur
langaði til að stofna skóla þar sem
meira væri hlúð að hverjum og
einum,“ segir Margrét sem er
skólastjóri Tjarnarskóla enn í dag
en María hefur nýverið dregið sig
í hlé. Þær kenndu báðar í stórum
unglingaskóla og söknuðu þess að
hafa ekki meira af krökkunum að
segja auk þess sem þeim fannst
margt brenna á unglingunum sem
laut að þessu stóra þroskaskeiði.
Margrét segir fjárhagslegan
róður skólans hafa verið erfiðan
síðustu ár. Hins vegar finnist
henni gæta töluverðrar viðhorfs-
breytingar hjá borgaryfirvöldum
og nágrannasveitarfélögum. Auk-
inn skilningur sé á því að
skólaflóran þurfi að vera fjöl-
breytileg. Skemmst er að minnast
að Reykjavíkurborg ákvað að
hækka rekstrarframlag á hvern
nemanda í einkaskólum um 25
prósent. „Það hleypir kappi í
kinn,“ segir Margrét og bætir við
að Tjarnarskóli sé lítill unglinga-
skóli með rólegu og yndislegu yf-
irbragði, en einkunnarorð skólans
eru „Allir eru einstakir“ og
„Tjarnarskóli er lítill skóli með
stórt hjarta.“
Margrét segir margt hafa
breyst á starfstíma skólans. „Við
erum mjög stoltar af því að okkar
hugmyndir hafa smám saman sí-
ast inn í almenna skólakerfið,“
segir Margrét en Tjarnarskóli
hefur kennt mannrækt og boðið
upp á heimanám frá upphafi.
Hún segir að kennarar í skólan-
um bindist krökkunum sterkari
böndum en gerist í venjulegum
skóla. Þá haldi nemendurnir sam-
bandi, sendi jólakort og kíki í
heimsókn.
„Okkur finnst þetta hafa verið
ómetanlegur tími. Það gefur
manni gildi að vinna með svona
ungu fólki og heldur manni síung-
um,“ segir Margrét sem er ánægð
með hve margir fyrrverandi nem-
endur og foreldrar litu inn eða
sendu skeyti á afmælisdegi skól-
ans.
solveig@frettabladid.is
Stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar efna til
sumarfagnaðar í Borgarleikhúsinu
miðvikudaginn 4. maí. Dagskráin hefst kl. 20.30
og eru allir velkomnir.
Á fjölbreyttri skemmtidagskrá koma m.a. fram:
• Jóhann Friðgeir Valdimarsson
• Vox femine undir stjórn Margrétar Pálmadóttur
• Halldóra Geirharðsdóttir
• Guðrún Gunnarsdóttir og Valgeir Skagfjörð
• Tómas R. Einarsson og Havanabandið
• Slagverkshópurinn Parabóla
Ávörp flytja:
• Halldór Guðmundsson, rithöfundur
• Margrét Gauja Magnúsdóttir, háskólanemi
• Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Kynnar:
• Jóhanna Vigdís Arnardóttir
• Árni Gunnarsson
Að lokinni skemmtidagskrá verður húsið opið áfram
til kl. 23.30.
Við vonumst til að sem flestir komi og eigi með okkur
skemmtilega kvöldstund.
S U M A R F A G N A Ð U R
Stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar
4. maí
1.307 ÍSLENDINGAR, FJÖRUTÍU ÁRA
OG ELDRI, STUNDA NÁM Á FRAM-
HALDSSKÓLASTIGI.
Heimild: Hagstofan
SVONA ERUM VIÐ
Í lok árs 2003 voru fimm þúsund
manns án heimilislæknis í Reykja-
vík og nágrenni. Flestir þeirra
bjuggu í Vogahverfinu í Reykjavík
en ætlunin var að reisa þar heilsu-
gæslu í lok árs 2004. Vandinn er
enn óleystur þar sem tæplega fjög-
ur þúsund manns voru enn án
heimilislæknis í nóvember síðast-
liðnum. Hins vegar segir Guð-
mundur Einarsson, forstjóri Heilsu-
gæslunnar í Reykjavík, tölur um þá
sem eru án heimilislæknis óná-
kvæmar. Ástandið standi allt til
bóta þegar hin langþráða heilsu-
gæslustöð fyrir Vogahverfi opnar í
Glæsibæ í haust. Þá hafi ný heilsu-
gæslustöð opnað í Kópavogi
snemma árs 2004 og ætlunin sé
að opna heilsugæslu í Hafnarfirði
á þessu ári.
Guðmundur telur því að í haust
geti allir íbúar Stór-Reykjavíkur-
svæðisins verið með eiginn heim-
ilislækni. Hins vegar sé ólíklegt að
allir geti verið með heimilislækni í
sínu hverfi. Til dæmis séu heilsu-
gæslur í Árbæ og víðar orðnar of
litlar. Hann vonast þó til að hægt
verði að stækka við heilsugæsluna
í Árbænum áður en líður á löngu.
Í öðrum fréttum segir Guðmundur
að opnuð hafi verið upplýsinga-
miðstöð fyrir þá sem ekki viti
hvert þeir eigi að snú sér í heil-
brigðiskerfinu. Upplýsingar verða
veittar í gegnum síma og er núm-
erið 1700.
Ástandið enn slæmt
EFTIRMÁL: LÆKNASKORTUR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
VERÐLAUNUM HAMPAÐ Grétar Ingi
og bróðir hans, sem lék undir á gítar,
hampa hér farandbikar Söngvarakeppni
fyrirtækja í Ölfusi.
SÖNGVARAKEPPNI
Í ÞORLÁKSHÖFN:
Máninn vann
Starfsmaður pizzahússins Mán-
ans bar sigur úr býtum í Söngv-
arakeppni fyrirtækja í Ölfusi
sem haldið var á stútfullu Ráð-
húskaffi í Þorlákshöfn á laugar-
dag. Um 300 gestir lögðu leið sína
á kaffihúsið til að hlýða á kepp-
endurna og má það teljast nokk-
uð gott hlutfall af hinum 1400
manna bæ. Jóhannes Bjarnason
sem rekur Ráðhúskaffi segist
alls ekki hafa búist við slíkri
mætingu og allar líkur séu á að
keppnin verði haldin aftur.
Segja má að Grétar Ingi stigi
með þessu sín fyrstu skref til
frægðar þar sem verðlaunin voru
stúdíótímar í Tónkjallaranum í
Þorlákshöfn. Í öðru sæti var
starfsmaður Frostfisks, Alexand-
er Axel Andrésson ættaður frá
Filipseyjum, sem heillaði með
tónmikilli rödd sem hann þandi í
kraftmiklum ballöðum. Þriðja
sætið hrepptu vaskir drengir frá
Rafgulli rafverkstæði sem spil-
uðu og sungu á gítara, bongó-
trommur, tómar bjórdósir og
skeiðar.
sumar gjafir
skipta öll
börn máli!
BEÐIÐ EFTIR LÆKNINUM Ný heilsugæslustöð var opn-
uð í Salahverfi í Kópavogi á síðasta ári.
AFMÆLI Á TJARNARBAKKANUM Tuttugu ára afmæli Tjarnarskóla var fagnað með við-
eigandi hætti á föstudag. Gestum og gangandi var boðið upp á pylsu og gos og þáði
fjöldi borgarbúa boðið í blíðunni sem þá ríkti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M