Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 70
34 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR VEITINGASTAÐURINN KÍNA HÚSIÐ LÆKJARGÖTU 8, 101 REYKJAVÍK Ragna Ingimundardóttir leirlista- kona er mikill matgæðingur. Mataráhugi hennar kviknaði á námsárunum þegar hún stundaði nám við Myndlista- og handíða- skóla Íslands. „Í skólanum var alltaf verið að tala um mat. Ég held að allir sem fara í gegnum myndlistarskóla séu duglegir að elda. Samnemendur mínir voru líka óhræddir við að prófa eitt- hvað nýtt. Á þessum árum var ég í stanslausum matarboðum,“ segir Ragna. Þegar hún fór í framhalds- nám í Listaháskóla í Amsterdam héldu matarveislurnar áfram. Í hennar bekk var jafn vinsælt að skiptast á mataruppskriftum og glerúngsuppskriftum. Áhugi á eldamennsku endurspeglast í list- sköpun hennar. Ragna er fræg fyrir fallegu leirskálarnar sínar sem eru allar eldfastar og því afar hentugar ef þarf að stinga réttum inn í ofn. Þó hún eldi mikið dags- daglega finnst henni alltaf jafn skemmtilegt að bjóða fólki í mat. Uppáhaldsmaturinn hennar er góð lambasteik með öllu tilheyrandi. Ragna er ekki bara góður kokkur heldur bakar hún heimsins bestu tertur og brauð. Í stað þess að fara með vinkonum sínum á kaffihús bakar hún með þeim bollur og ýmsar kræsingar. Þær eiga það til að taka heilan dag frá, baka, tala og hlusta á Megas. Aðspurð um að því hvað hún þurfi að eiga í eldhússkápunum til að geta búið til góða máltíð er svarið einfalt. „Ég þarf ekki að eiga neitt. Það er alltaf hægt að búa til eitthvað úr engu,“ segir hún og brosir. Upp- skriftin af ístertunni er ættuð frá Danmörku. Fyrir nokkrum árum var Ragna stödd í brúðkaupi hjá vinkonu sinni þar sem þessi ísterta var í desert. „Ég var svo heppin að sitja við hlið mannsins sem bjó til desert- inn og linnti ekki látum fyrr en hann lét mig fá uppskriftina,“ seg- ir hún. BOTNINN 300 gr hýðislausar möndlur 200 gr flórsykur 5 eggjahvítur 1/2 teskeið lyftiduft Möndlurnar eru hakkaðar í blandara. Flórsykri og lyftidufti er síðan blandað við möndlukurlið. Eggjahvíturnar eru stífþeyttar og þeim blandað varlega út í möndlu- hræruna. Klæðið tvö smelluform með smjörpappír og hellið deiginu út í. Botnarnir eru bakaðir í 20-25 mínútur við 190˚, fylgist vel með botnunum meðan þeir eru í ofnin- um. MARSÍPANÍS 3 eggjarauður 50 gr sykur 80 gr marsípan 4 dl rjómi Eggjarauður þeyttar með sykrinum. Rjóminn er þeyttur og settur útí. Marsípanið er rifið og sett út í hræruna. SÚKKULAÐIÍS 3 eggjarauður 50 gr sykur 200 gr suðusúkkulaði 4 dl rjómi Nota skal sömu aðferð og með marsípanísinn. Möndlubotnar eru kældir og smurðir með þunnu lagi af bróm- berjamarmelaði eða góðri sultu. Annar botninn er lagður í smellu- form án botns, gott er að setja það á kökudisk sem kakan verður bor- in fram á. Marsípanísinn er settur ofan á og hinn botninn þar ofan á og súkkulaðiísinn efst. Þetta er fryst yfir nótt. Best er að láta ískökuna standa í 20 mínútur áður en hún er borin fram. Það má setja rjóma yfir hana þegar hún kemur úr frystinum ef maður vill og skreyta með jarðaberjum eða kiwi. Ískaka með dönsku ívafi Glerfínar gluggafilmur – aukin vellíðan á vinnustað R V 20 39 Rekst rarvö rulist inn er ko minn út Hvaða matar gætir þú síst verið án? Ég gæti síst verið án ávaxta, sér- staklega vínberja því mér finnst þau svo góð. Þetta ástfóstur á vínberjum gerir það að verkum að mér finnst rúsínur mjög góðar og þar af leiðandi finnst mér rauðvín mjög gott. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Ég hef ekki komist inn í þetta sushi dæmi, mér finnst það hálf ógeðslegt. Í mínum huga er sushi í sama flokki og þorramatur. Fyrsta minningin um mat? Ég man vel eftir því hvað mér fannst gaman að kaupa nammisígarettur. Ég hef áreiðanlega verið fimm eða sex ára en bróðir minn fór með mér út í sjoppu. Við erum á svipuðum aldri og gerðum nánast allt saman. Mér fannst mjög flott að vera með svona nammisígarettur en það stafar að því að mamma og pabbi reyktu og því fannst mér það flott. Besta máltíð sem þú hefur feng- ið? Við hjónin vorum í Lundúnum um daginn og droppuðum óvart inn á ítalskan veitingastað í Notting Hill. Á boðstólum var frekar venjulegur ítalskur matur en alveg óskaplega bragðgóður. Ég pantaði mér kjöt og pasta sem var bara alveg sérstakt. Ég get ekki lýst því nánar. Leyndarmál úr eldhússkápnum? Til tíu ára aldurs lifði ég á Nesquik kókómalti sem ég blandaði í nokkra dropa af mjólk. Þegar ég hrærði þessu saman kom út þetta fína súkklulaðikrem. Þessi lifnaðarháttur hefur komið niður á vaxtarlagi mínu í seinni tíð. En það er víst ekki hægt að hafa allt í jafnvægi. Hvað borðar þú þegar þú þarft að láta þér líða betur? Ég reyni að borða ekki mikið til að hugga sjálfan mig. Núna er ég byrjaður að borða létta ab mjólk með haframjöli og rús- ínum út á í morgunmat. Ég verð alveg stálsleginn af þessu. Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Við erum stór fjölskylda og eigum því alltaf mjólk. Upp á síðkastið höfum við hinsvegar keypt ógrynni af undan- rennu en það er bara af því hún er í bleikum umbúðum sem er uppá- haldslitur dóttur minnar. Svo eigum við alltaf ólífur, ost og ávexti. Ef þú yrðir fastur á eyðieyju, hvaða rétt myndir þú taka með þér? Ég myndi taka með mér gott lasagna og rauðvín. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað? Ánamaðka, en þá borðaði ég sem barn. MATGÆÐINGURINN ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON Hvernig er stemmningin? Það er nánast eins og maður komi í annan heim þegar Kína húsið er heimsótt. Staðurinn er innréttaður að kínversk- um sið með tilheyrandi innanstokks- munum. Rauði liturinn er mjög ein- kennandi fyrir staðinn sem er svolít- ið gamaldags. Auðvelt er að fá á til- finninguna að maður sé kominn 20 ár aftur í tímann. Gestalisti Kína hússins er afar fjölbreyttur. Það er bæði hægt að heimsækja staðinn hversdags og spari. Það fer allt eftir stemmningunni hverju sinni. Matseðillinn: Hann státar af kín- versku þema og bragðast maturinn þar æði vel. Hann er vel úti látinn og fjölbreyttur. Gaman er að smakka sitt lítið af hverju. Djúpsteikar rækjur og ýmsar gerðir af vorrúllum bragð- ast mjög vel ásamt núðluréttum. Vinsælast: Fjölbreytileikinn ræður ríkjum á Kína húsinu og eru bland- aðir réttir einna vinsælastir. Réttur dagsins: Réttir dagsins eru misjafnir frá degi til dags. Egils Premium er nýr bjór frá Ölgerðinni Agli Skalla- grímssyni þar sem saman fer besta fáanlega hráefni, þar á meðal íslenskt bygg, og aldagamlar aðferðir við bruggun. Úr verður bragðmikill gullinn úrvalsbjór með mýkt og góðri fyllingu. Alúðin sem fer í bruggun Egils Premium endurspeglar þann metnað sem verið hefur aðalsmerki Ölgerðarinnar í heila öld. Aðferðin tekur mið af bruggun í upprunalandi gullna lager- bjórsins, Tékklandi. Bruggunarferli Egils Premium er lengra en annarra bjóra. Bjórinn er tvímeskjaður og gerjunin hægari. Besta fáanlega hráefni er notað við bruggunina, þar á meðal íslenskt bygg. Allt þetta skilar sér í lagerbjór með sterkum karakter og mýkt í bragði og fyllingu. Íslenskt bygg virðist fá góðan hljómgrunn hjá Íslendingum því að bjórinn hefur selst afar vel og hefur söluaukningin orðið til þess að hann fæst nú í flestum Vínbúðum. Verð í Vínbúðum 216 kr. í 500 ml dós og 159 kr. í 330 ml flösku. Skemmtilega öðruvísi Kaupi undanrennu vegna umbúðanna Ragna Ingimundardóttir leirlistakona er listakokkur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N EGILS PREMIUM: Fæst nú í flestum Vínbúðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.